Tíminn - 05.03.1978, Qupperneq 7
Sunnudagur 5. marz 1978
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Stein-
grímur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300.
Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftír kl. 20.00:
86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Áskriftargjald'tu-. 1700 á
mánuði. Biaðaprent h.f.
Atvinnuleysi
ungs fólks
Málgagn Efnahags- og framfarastofnunarinnar,
OECD Observer, helgar allt janúarblað sitt þvi
málefni, sem nú er talið langmesta vandamál
flestra þeirra þjóða, sem taka þátt i þessum sam-
tökum, en það eru flest rikin i Vestur-Evrópu,
Bandarikin, Kanada og Japan. Þetta vandamál er
atvinnuleysi ungs fólks, sem fer stöðugt vaxandi
hjá flestum aðildarþjóðum OECD. Yngra fólkið er
sá aldursflokkurinn, sem verður harðast úti i sam-
keppninni á vinnumarkaðnum, þegar atvinnuleysi
er, þvi að þeir, sem eru eldri og reyndari, eru oftar
látnir sitja i fyrirrúmi. Yngra fólkið er jafnframt
sá aldursflokkurinn, sem verður fyrir mestum og
iskyggilegustum áhrifum af atvinnuleysi. Þessu er
lýst mjög greinilega i umræddu tölublaði OECD
Observer, jafnhliða frásögnum af þeim aðgerðum,
sem beitt er til að draga úr atvinnuleysi ungs fólks.
Þvi miður hafa þær enn ekki borið slikan árangur
sem skyldi þvi að atvinnuleysi ungs fólks fer vax-
andi hjá flestum þátttökuþjóðum OECD.
Það er ánægjulegt fyrir íslendinga, að þeir eru
ein fárra aðildarþjóða OECD, sem eru lausar við
þetta mikla vandamál. Hér hefur ungt fólk haft
næga vinnu á undanförnum árum. Islenzkir æsku-
menn þekkja sem betur fer ekki þetta böl, sem
ungt fólk verður að búa við i flestum öðrum vest-
rænum löndum. Það er meiri gæfa en þeir, sem
ekki hafa kynnzt þessu af eigin raun, gera sér yfir-
leitt ljóst.
Þvi fer hins vegar fjarri, að Islendingar búi við
eitthvert annað og meira öryggi i þessum efnum
en aðrar þjóðir og þetta böl geti ekki sótt þá heim
alveg eins og þær. Þvert á móti er efnahagsleg að-
staða íslendinga á ýmsan hátt veikari. Þeir, sem
hafa farið með stjórn á undanförnum árum — og
gildir það jafnt.um vinstri stjórnina og núverandi
stjórn — hafa sett sér það mark að beina atvinnu-
leysinu frá þjóðinni. Sem betur fer hefur það tek-
izt.
Það er einn megintilgangur efnahagslaganna,
sem nýlega voru sett á Alþingi, að tryggja þjóðinni
næga atvinnu, jafnhliða þvi sem stefnt er að þvi að
draga úr verðbólgunni og tryggja jafnmikinn
kaupmátt launa og á siðastliðnu ári. Ef verðbólgan
hefði fengið að halda áfram með jafnmiklum
hraða og orðið hefði að óbreyttum aðstæðum,
hefðu mörg atvinnufyrirtæki stoðvazt og atvinnu-
leysið sótt þjóðina heim. Hætt er við, að ekki hefði
tekizt að útrýma þvi frekar en annars staðar, þar
sem það hefur komið til sögunnar, heldur hefði það
farið sivaxandi likt og þar.
Þeir, sem hafa beitt sér gegn efnahagslögum
rikisstjórnarinnar, þurfa að gera sér næga grein
fyrir þvi hversu mikilvægt atvinnuöryggið er. Það
myndi vafalitið breyta afstöðu margra þeirra.
Fyrir þá væri hollt að kynna sér frásagnir i janú-
arblabi OECD Observer af atvinnuleysi ungs fólks
og afleiðingum þess. Þeir myndu þá vafalaust
margir hverjir gera sér betri grein fyrir ráðstöf-
ununum, sem stefna að þvi að tryggja og treysta
atvinnuöryggið, eins og gert er með nýju efna-
hagslöggjöfinni.
Þvi má svo bæta við, þótt það snerti annað atr-
iði, að skýrslur OECD benda til, að efnahagshorfur
séu nú þannig i heiminum, að það megi telja góðan
árangur, ef hægt verður að tryggja á þessu ári
sama kaupmátt launa og á siðastl. ári, en þetta er
eitt af aðalmarkmiðum efnahagslaganna, ásamt
þvi að tryggja atvinnuöryggið og draga úr verð-
bólgunni. Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Chirac og Marchais
óttast bandamennina
Það mun einkenna fyrri umferð frönsku kosninganna
FYRRI umferð frönsku
kosninganna, sem fer fram
næsta sunnudag, verður með
nokkuð sérstæðum hætti.
Aðalbaráttan þá verður milli
þeirra flokka, sem munu svo
fylkja liði saman i siðari um-
ferðinni, sem fer fram sunnu-
daginn næsta á eftir (19.
marz). Þá fyrst verða endan-
leg úrslit ráðin.
A sunnudaginn kemur munu
stjórnarflokkarnir ganga til
leiks I tveimur fylkingum,
sem munu heyja harða
baráttu. Annars vegar verða
það Gaullistar undir forustu
Jacques Chirac, fyrrum for-
sætisráðherra og núv. borgar-
stjóra i Paris. .Hins vegar
verða það flokkarnir, sem
fylgja Giscard forseta að mál-
um, en þeir hafa nú fyrir kosn-
ingarnar myndað með sér
bandalag, sem gengur undir
nafninu Lýðræðisbandalagið.
Aðalflokkarnir i þvi eru lýð-
veldisflokkurinn, sem Giscard
veitti forustu áður en hann
varð forseti, sósial-
demókratiski miðflokkurinn
undir forustu Jeans Lecanuet
og radikali flokkurinn undir
forustu hins þekkta blaða-
manns Servan-Schreibers.
Upphaflega var það ætlunin,
að allir stuðningsflokkar
stjórnarinnar fylktu liði sam-
an strax i fyrstu umferð kosn-
inganna, en Gaullistar höfn-
uðu þvi er til kom. Þeir töldu
hlut sinn verða betri, ef þeir
væru einir sér i fyrri umferð-
inni. Servan-Schreiber- hafði
þá forustu um, að hinir flokk-
arnir þrir mynduðu Lýðræðis
bandalagið. Akveðið er að
Gaullistar og Lýðræðisbanda-
lagið hafi samvinnu i siðari
umferðinni.
Stjórnarandstæðingar ganga
einnig tviklofnir til leiks i fyrri
umferðinni. Annars vegar eru
kommúnistar, undir forustu
Georges Marchais, og hins
vegar sósialistar undir forustu
Mitterands. Upphaflega var
einnig rætt um, að þeir hefðu
með sér bandalag straxp fyrri
umferðinni, en kommúnistar
höfnuðu þvi er til kom og
ákváðu að vera einir sér. ÞÓtt
þvi sé enn ekki formlega lýst
yfir, er yfirleitt reiknað með
þvi að þessir flokkar standi
saman i siðari umferðinni.
Keppnin verður mjög hörð
milli flokkanna i fyrri umferð-
inni.Milli Gaullista og Lýð-
ræðisbandalagsins er það af
þvi, að þeir munu sameinast i
seinni umferðinni um þann
frambjóöanda þessara flokka
sem fær flest atkvæði i fyrri
umferðinni, en nær þó ekki
kosningu þá, en til þess þarf
hreinan meirihluta. Af sömu
ástæðum er keppnin hörð milli
kommúnista og sósialista. í
þingkosningunum 1973 fengu
fylgismenn Giscards tiltölu-
lega miklu fleiri þingmenn en
þeim bar miðað við heildarat-
kvæðatölur, þvi að frambjóð-
endur þeirra höfðu orðið hlut-
skarpari en frambjóðendur
Gaullista i mörgum kjör-
dæmum, þar sem kjósa þurfti
aftur. A sama hátt græddu
sósialistar lika meira en
kommúnistar á bandalaginu i
siðari umferðinni.
ÁSTÆÐAN til þess, að
Gaullistar og kommúnistar
vilja vera sér i fyrri umferð-
inni, er sprottin af svipaðri
rót. Þeir óttast fylgisaukningu
bandamanna sinna, og telja
sig helzt geta hamlað gegn
henni með öflugri baráttu
gegn þeim ifyrri umferðinni. I
þingkosningunum 1973
fengu kommúnistar 21,4%
greiddra atkvæða, en sóáfa-
listar 20.4%. Nú spá skoðana-
kannanir þvi, að kommúnistar
fái um 20-21 % greiddra at-
kvæða, en sósialistar 27-28
%. Aðrir vinstri flokkar fái um
2-3 %. Gaullistar fengu i þing-
kosningum 1973 34.5 %
greiddra atkvæða, en fylgis-
menn Giscards 12.3 %. Nú spá
skoðanakannanir þvi, að
Gaullistar fái ekki meira en 22
% en fylgismenn Giscards um
19 %. Aðrir flokkar til hægri
fái um 4 %. I þingkosningun-
um 1973fengu kommúnistar 73
þingmenn kosna, en sósialist-
ar 101, þrátt fyrir lægri heild-
aratkvæðatölu þá. Það sýnir,
að þeim veitti betur i siðari
umferðinni. Þá fengu
Gaullistar 171 þingsæti en
fylgismenn Giscards 114, þótt
þeir fengju miklu minna fylgi
en Gaullistar, eins og áður er
rakið. Þeim veitti yfirleitt bet-
ur i seinni umferðinni.
EINS OG sést á framan-
greindum spám skoðanakann-
ana, virðast vinstri flokkarn-
ir geta fengið um 50 % atkvæð-
anna, en stjórnarflokkarnir
um 45%. Þrátt fyrir þetta eru
úrslitin engan veginn ráðin.
Kjördæmi eru mismunandi
fjölmenn i Frakklandi. Þannig
hafa 10 f jölmennustu kjördæm
in um 2.3 milljónir ibúa sam-
anlagt, en 10 fámennustu kjör-
dæmin hafa um 890 þús. ibúa
samánlagt. Stjórnarflokkarn-
ir eru yfirleitt hlutfallslega
sterkari i minni kjördæmun-
um. Það háir kommúnistum,
að þeir eiga meginfylgi sitt i
borgum, þar sem kjördæmi
eru yfirleitt fjölmenn. Fylgi
sósialista dreifist hins vegar
um allt landið og þvi fá þeir
fleiri frambjóðendur i siðari
umferðinni en kommúnistar.
Fylgismenn Lýðræðisbanda-
lagsins eru lika öllu meira
dreifðir um landið en Gaullist-
ar og styrkir það stöðu þeirra
til að fá fleiri frambjóðendur
en Gaullistar i siðari umferð-
inni.
Þvi er nokkuð almennt
spáð, að það verði langvisast
sóáialistar og fylgismenn
Giscards, sem leiði saman
hesta sina i siðari umferðinni.
Svo getur farið, að bæði sósia-
listar og fylgismenn Giscards
þurfi að hliðra þannig til i sið-
ari umferðinni, að þing-
mannafjöldi kommúnista og
Gaullista verði ekki óeðlilega
litill miðað við bandamenn
þeirra. Það mun stafa af þess-
um ástæðum, að kommúnistar
hafa enn ekki endanlega lýst
yfir þvi, að þeir hafi bandalag
við sósialista i siðari umferð-
inni, þótt fastlega sé búizt við
að þeir að þeir geri það.
Mitterand hefur látið i ljós, að
hann skilji þetta sjónarmið
kommúnista og muni verða
tekið tillit til þess. Þ.Þ.
Georges Marchais