Tíminn - 05.03.1978, Page 15
Sunnudagur 5. marz 1978
15
[1 i 1 W" w
HL fv iyi».- * p j TjZ'Sfa
. á
|k. 1 Jm
Þaö var áriö 1780 aö ritstjóri aö nafni Robert Raikes byrjaöi hinn fyrsta
sunnudagaskóia í bænum Gloucester á Englandi.
Sunnudagaskóli
KFUM 75 ára
8. marz n.k. á litil starfsgrein
merkilegt afmæli. Sunnudaga-
skóli K.F.UJM.er 75. ára.
Hann var stofnaður i Melsteds-
húsi við Lækjartorg 8. marz 1903
af Knud Zimsen verkfræðingi,
sem siðar varð borgarstjóri i
Reykjavik. Knud Zimsen veitti
siðan sunnudagaskólanum for-
stöðu i nærri 40 ár.
Er K.F.U.M. seldi MelstedshUs
og byggði á Amtmannsstig, flutti
sunnudagaskólinn þangað og
hefur starfað þar fram á þennan
dag. Starf sunnudagaskólans var
um margra ára skeið mjög blóm-
legt, enda var þaö brautryðjenda-
starf og áratugum saman einu
barnaguðsþjónusturnar, sem
haldnar voru innan þjóðkirkjunn-
ar. A þeim árum sótti mikill fjöldi
barna sunnudagaskóla K.F.U.M.
Muna menn eftir þvi að um 700
börn voru talin út úr K.F.U.M.
húsinu á einum sunnudegi og voru
þá notaðir 3 salir fyrir fundina.
Það liggur þvi i augum uppi, að
mikill fjöldi bæjarbúa hefur á
þessum árum komið i sunnudaga-
skólann og margir hafa látið i
ljósi, að þeir eigi þaðan góðar
minningar.
Er bærinn óx og farið var að
skipta honum i fleiri sóknir, var
nauðsynlegt að taka upp barna-
guðsþjónustur á fleiri stöðum.
Þannig hefur barnastarf dreifzt
út um allan bæinn en blómlegast i
nýjustu hverfunum, þar sem
barnafjöldinn er mestur. Ekki er
vitað með vissu á hve mörgum
stöðum barnaguðsþjónustur eru
nú haldnar i Reykjavik, en vart
munu þeir vera færri en 15.
Sunnudagaskóli K.F.U.M., sem
Knud Zimsen stofnaði fyrir 75 ár-
um má teljast upphaf þessa fjöl-
þætta barnastarfs.
A þessum timum, eins og
ávallt, er mikil nauðsyn að leggja
rækt við bamastarfið. „Fræð
þann unga um veginn, sem hann á
að halda og á gamals aldri mun
hann ekki af honum vikja”, segir
heilagt orð. Allir, sem lata sér
annt um kristilegt uppeldi þjóðar-
innar, hljóta að gleðjast yfir
hverju þvi verki, sem miðar að
þvi að sá hinu góða sæði i hjörtu
barnanna.
Megi Drottinn blessa hinn
margvislega ávöxt starfs sunnu-
dagaskóla K.F.U.M. á 75 árum.
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar:
„Kirkjan athvarf
æskunnar”
I dag, 5. marz, er æskulýðsdag-
ur Þjóðkirkjunnar. A þeim degi
kallar kirkjan sérstaklega á ungt
fólk. Yfirskrift dagsins er að
þessu sinni „Kirkjan athvarf
æskunnar”. Æskulýðsstarf Þjóð-
kirkjunnar hefur gert veggspjald,
sem á að minna á starfa kirkj-
unnar.
Kirkjan er athvarf, sem ungt
fólk þarfnast ekki siður en full-
orðnir, og kirkjan þarfnast einnig
æskumanna til starfa. Um allt
land verða æskulýðsmessur og
æskulýðssamkomur með þátttöku
æskumanna, miklum söng, helgi-
leikjum- o.fl. Vill æskulýðsstarf
Þjóðkirkjunnar vekja athygli á
þessu og biðja menn að huga vel
að auglýsingum.
Æskulýðsdagurinn á að minna
æskuna á, að kirkjan á erindi til
hennar. Þetta erindi er boðskap-
urinnum Jesúm Krist. Ætlunin er
að láta yfirskrift dagsins verða
yfirskrift alls ársins og mun
Æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar
þvi oftar minna á þetta
„athvarf”, sem kirkjan er.
(Frétt frá Æskulýðsstarfi
Þjóðkirkjunnar)
Verðið á Oldsmobile Delta 88
Royale verður um 6 milljónir
fyriralmenning, en til atvinnubif-
reiðastjóra er það 4,4 millj., mið-
að við núverandi gengisskrán-
ingu. Innifalið i þessu verði er öll
hugsanleg þægindi, s.s. sjálf-
skipting, vökva- og veltistýri, afl-
hemlar, litað gler i öllum rúðum,
rafmagnsklukka, upphituð aftur-
rúða, rafknúnir upphalarar á
hliðarrúðum, rafknúnar hurðar-
læsingar, timarofi á þurrkum,
auk krómlista á öllum möguleg-
um stöðum og margra annarra
þæginda. Billinn er byggður á
heila grind og gormafjöðrun á öll-
um hjólum, en það gerir hann
mjög heppilegan til aksturs hér-
lendis.
Billinn verður til sýnis hjá
Véladeíld Sambandsins i dag frá
kl. 10-17.
Oldsmobile Delta 88 Royale — Hljóölátur og kraftmikill dísilbill.
Kristján Sveinbjörnsson aö koma lir vinnu i frystihúsinu, en þangaö sækja flestir SUÖviking-
ar vinnu sina.
Séö niður á bryggjuna ISiiöavik. Til hægri á myndinni má sjá gamla krambúö. í þessari búö ermargt
unntaö fá, þótt ekki sé þar vitt til veggja. Eigandi búöarinnar er Aki Eggertsson, en ekki viidi hann
leyfa okkur aö taka mynd af sér inni i búðinni.