Tíminn - 05.03.1978, Page 21
Sunnudagur 5. marz 1978
21
AUTO 78
Fyrsta alþjóðlega bíla-
sýningin hérlendis
ESE — Dagana 14—23-apríl n.k.
verbur haldin fyrsta alþjóðlega
bflasýningin hér á landi. Sýningin
verðurhaldin á vegum Bílgreina-
sambands Islands, i samráði við
framleiðendurerlendis. Þetta er i
fyrsta sinn sem alþjóðleg viður-
kenning fæst fyrir sýningu af
þessu tagi hérlendis og verður
það til þess að framleiðendur
munu vanda betur til sýningar-
innar en ella, en sú hefur orðið
raunin á fyrri bflasýningum, að
þær hafa verið haldnar upp á ein-
dæmi umboðanna sjálfra. Sýn-
ingunni hefur verið valið heitið
AUTO 78 og verður hún haldin i
nýju sýningarhúsnæði,
Sýningarhöllinni að Bildshöfða
20, auk þess sem sýningargripir
verða einnig til húsa að
Tangarhöfða 8—12. Þetta er
einnig fyrsta sýning af þessu tagi,
sem haldin er i heild innanhúss.
Rúmt ætti að vera um sýningar-
muni, svo og gesti, þvi að alls
verður sýningarsvæðið um 9000
fermetrar.
t sýningunni munu taka þátt öll
bifreiðaumboð hér á landi, utan
eins, sem ekki sá sér færa þátt-
töku. Vegna hins alþjóðlega
st-impils, sem á sýningunni er,
munu erlendir gestir sækja hana
og vist er, að framleiðendur
munu kappkosta að hafa nýjustu
bifreiðategundirnar til sýnis og
þess má geta i þvi sambandi að
bfll ársins i Evrópu i fyrra verður
meðal sýningargripa.
Flugleiðir munu gefa afslátt á
ferðum og gistingu vegna sýn-
ingarinnar og sérstakt bila-
happdrætti verður á meðan sýn-
ingu stendur. Einnig verður gefið
út sérstakt uppsláttarrit vegna
sýningarinnar og i þvi verður að
finna allar helztu upplýsingar um
þær bifreiðategundirsem til sýnis
verða og bilgreinina sjálfa. A
meðan sýningunni stendur verður
sérsýning i gangi þar sem gefur
að lita gömul ökutæki og saga
bflsins á Islandi rakin.
Halldór E. Sigurðsson sam-
gönguráðherra mun opna sýning-
una og verður hann jafnframt
verndari hennar.
AUTO 78 verður opin frá kl.
15—22 daglega og frá kl. 13—22
um helgar og á sumardaginn
fyrsta.
Forsvarsmenn Bilgreinasambandsins kynna AUTO 78, frá vinstri
örn Guðmundsson, Sigfús Sigfússon, Ragnar Jónsson
Tfmamynd: Gunnar
Stærrí - Kraftmeirí - Betrí 1978
Undrabíllinn
SUBARU 1600
er væntanlegur
seinnipa rt
mánaðarins.
Allur
endurbættur
Breiðari,
stærri'
vél,
rýmra milli
sæta,
minni snún-
ingsradíus/
gjörbreytt
mælaborð/
nýir litir
o. fl. o. fl.
Það er ekki
hægt að
lýsa Subaru
þú verður að
sjá hann
og reyna
Greiðsluskilmálar þeir
hagstæðustu sem
völ er á í dag
og með ábyrgð upp í
20.000 km akstur
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1
Sýningarbílar
á staönum
Eyjólfur Ágústsson, bóndi, Hvammi,
Landssveit, segir í viðtali um Subaru:
,,Ég fékk einn af fyrstu Subaru-bilunum og
hefur hann reynst i alla staði vel og tel ég þá
henta sérstaklega vel til allra starfa við bú-
skapinn. Ég hef farið á honum inn um allar
óbyggðir og yfirleitt allt, sem ég áður fór á
jeppa. Subaru er góður i hálku, duglegur i
vatni og sparneytinn — og nú er ég að fá mér
1978 árgerðina.”