Tíminn - 05.03.1978, Blaðsíða 29
Sunnudagur 5. marz 1978
29
hljómsveitinni breytzt á einhvern
hátt gagnvart pólitiskum lögum
og mótmælasöngvum?
BM: Nei, það er ekki hægt að
segja það, en sú staðreynd verður
ekki umflúin, að ungt fólk vill
ekki heyra eins mikið um pólitik
og áður, það vill heyra um Rasta-
fari og annað sem getur hjálpað
heiminum. Astarsöngvar eru
nauðsynlegir, en þó ekki eins og
þeir sem kerfið vill heyra. Kerfið
vill heyra ástarsöngva eins og
Frank gamli Sinatra söng.Kerfið
vill ekki heyra söngva sem mót-
mæláandi er i og gætu valdið smá
vandræðum.
SP: Þú myndir þá ekki gefa út
plötu þar sem aðeins ástarsöngva
er að finna?
BM: Nei, alls ekki. Einn til þrir
ástarsöngvar á plötu er nóg fyrir
þá sem þurfa að fá að vita um
Rasta. Þeir kaupa plötuna og
komast sjálfkrafa i snertingu við
Rasta. Einnig er ekki gott að
einhæfa plötur um of, þvi að sá
boðskapur, sem á plötunum er,
kemst til skila, án þess að það sé
gert. Við erum t.d. mjög ánægðir
ef Kinverjar og Arabar kaupa
plötuna. Við erum ekki gefnir
fyrir að draga fólk i dilka, af
þeirri einföldu ástæðu, að allir
menn eru Rastatrúar, þó að þeir
geri sér e.t.v. ekki grein fyrir þvi.
Það er bara spurning um hve vel
menntað fólk er. Menntunin mun
kenna fólki að viðurkenna Rasta.
SP: Getur þú hugsað þér þig
vera að syngja opinberlega eftir
t.d. 20 ár á sama vettvangi og nú.
BM: Ég sé sjálfan mig i anda
búsettan i Afriku eftir u.þ.b. átta
ár. Þar mun ég búa með minu
fólki i sátt og samlyndi við alla
menn.
SP: Hvað finnst þér um hina
nýju stefnu i tónlistarmálum, þ.e.
hið svo kallaða Ræflarokk?
BM: Sjáðu nú til. Ræflar elska
Reggae tónlist. Þeir eru á móti
Babylonkerfi heimsmálanna.
Margir hafa látið þung orð falla i
þeirra garð, og fyrst i stað hélt ég
að þeir væru slæmir, en seinna
komst ég að þvi að það er rangt.
Ég tel að Ræflarnir hafi 900% rétt
fyrir sér. Þeir eru að sjálfsögðu
ekki Rasta, en ef þeir væru svart-
ir á litinn þá væru þeir það, það er
enginn efi á þvi. Hvað tónlist
þeirra snertir, þá hef ég lúmskt
gaman af „God save the Queen”
með Sex Pistols. Ég vil ekki ýta
undir ákveðna tegund heimsku,
en þegar þeir segja drottninguna
og stjórn hennar einræðissinnaða,
þá er ég þvi sammála.
SP: Þvi hefur verið fleygt að
Rasta væri á móti jafnréttisbar-
áttu kvenna. Hver er þin afstaða
til hennar?
BM: Sko sjáðu nú til. Það eina
sem við þurfum að vita, er það að
karlmaður er karlmaður og kona
er kona. Djöfullinn hefur reynt á
undanförnum árum að stuðla að
kynþáttamisrétti og deilum á
milli svartra og hvitra. Nú ætlar
hann sér að etja saman karl-
manni og kvenmanni. Mér er
ómögulegt að skilja að konur séu
jafnar körlum. Ekki get ég t.d.
fætt börn og á meðan ég man, þá
var t.d. móðir min kona. Við
verðum alltaf að bera tilhlýðilega
virðingu fyrir konum, þó að i hófi
sé.
SP: Getur þú imyndað þér guð
sem konu? t
BM: Nei, alls ekki. Það er fra-
leitt að ætla að svo sé. Það er á
móti öllum náttúrulögmálum.
(Gaman væri að vita álit unnustu
Marleys á þessum málum, sem
var, er sfðast fréttist, Cindy
Breakspeare, fyrrverandi ungfrú
alheimur, en hún sótti Island
heim ekki alls fyrir löngu).
Eins og sjá má á þessum við-
ræðum, þá er Bob Marley allt
annað en málefnalegur og ekki
auðveldur viðræðu. En hvað um
það, nú biða menn bara i ofvæni
eftir nýjasta framlagi hans á tón-
listarsviðinu. Ekki er að efa að
þar er enn eitt meistarastykkið á
ferðinni og full ástæða er til aö
benda mönnum á að hafa eyrun
og augun opin á fulla gátt, þvi að
senn verður hún á me&al vor,
hljómplata KAYA með Bob
Marley & The Wailers, snilling-
unum frá Jamaica.
—ESE
Mosfellshreppur
— Forstöðustarf
við leikskólann að Hlaðhömrum er laust
til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 18. marz.
Umsóknum skal skilað til undirritaðs sem
gefur nánari upplýsingar.
Sveitarstjóri.
Mosfellshreppur
— Lóðaúthlutun
Mosfellshreppur auglýsir hér með eftir
umsóknum um einbýlishúsalóðir í Tanga-
hverfi.
Umsóknum sé skilað fyrir 18. marz 1978.
Eyðublöð fást á skrifstofu hreppsins, Hlé-
garði.
Áætlað er að svæðið verði byggingarhæft
siðari hluta sumars.
Sveitarstjóri.
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla
Sporfvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 ■ Sími 1-17-83
léttir
medfærilegir
viðhaldslitlir
fyrir stein-
steypu.
Avallt fyrirliggjandi. Góö varahlutaþjónusta.
m Þ. ÞQRGRÍMSSON & CO
Armúla 16 ■ Reykjavík ■ sími 38640
sagarbloð
steypusagir
öa
|
þjoppur
it
bindivirsnillur
BEZTU KAUP ÁRSINS
nú er hver Eigum fyrirliggjandi nokkra biia af
SÍÐASTUR! gerðinni 160 Hardtop SSS árgerð
1977 á sérstakiega góðu verði
Bíllinn er einn af topp-bílum verksmiðjanna og hafa verið eftirsóttir
í Rally-keppnir — enda unnið í mörgum slíkum — undir
skráningunni DATSUN BL 710 —
Áætlað verð kr. 2.775.000 með ryðvörn, beltum og fleiru.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 8-45-10 & 8-45-1 1