Tíminn - 16.04.1978, Síða 13
Sunnudagur 16. aprfl 1978
13
Risapöndurnar i dýragarði
Peking-borgar leika sér á morgn-
ana, þegar loftíð er svalt og milt.
t útigirðingu, sem tengist pöndu-
húsinu, veltast pöndudungarnir
um og fljúgast á i hlýju sólskin-
inu. Klunnalegar en fagrar
hreyfingar þeirra, þegar þeir
klifra upp mjóan stiga, koma
börnunum til að hlæja og vekja
aðdáun fullorðinna.
Fullorðnu risapöndurnar þrjár
og ungarnir þrir i dýragarðinum
hafa mikið aðdráttarafl fyrir þær
tugþúsundir gesta, sem garðinn
sækja daglega.
Feldur pöndunnar er silfurlitur,
en hárin á eyrum hennar, fótum
og herðakambi og umhverfis aug-
un eru svört. Hún er holdug eins
og bjarndýr, en þó fim eins og
kettlingur.
Kinverskar risapöndur eru
mjög fáar, enda eru þær eitt af
sjaldgæfustu stóru dýrum verald-
ar. Þær eru ekki frjósamt dýr og
hlutfall þeirra unga, sem lifa, er
ekki hátt. Það er geysilega erfitt
að fá ófrjálsa kvenpöndu til að
eignast afkvæmi. Árið 1963 tókst
þó i dýragarði Peking-borgar
aðfá kvenpöndu tilað gjóta. Tvær
af þeim þremurungpöndum, sem
nú eru i dýragarðinum, fæddust
eftir að mæðurþeirra höfðu verið
fangaðar. Þær voru færðar frá
mæðrum sinum við fimm mánaða
aldur. í dag þrifast þessir tveir
ungar vel á þeirri fæðu, sem
starfsfólk dýragarðsins færir'
þeim. Þeir eru nú annar 12 mán-
aða en hinn 2 ára gamall.
Kvenpöndur hafa sterka
móðurhvöt. Þær taka nýfæddan
unga sinn upp með kjaftinum og
leggja hann við kvið sér. Unginn
tekur að nærast á móðurmjólk-
inni tveim stundumeftir fæðingu.
Næstu fimm mánuði eða þar um
bil er það algeng sjón að sjá
móðurina reika um með unga
sinn ikjaftinum eða halda honum
i fangi sér til að hugga hann, ef
hann grætur. Sé unginn siðan
skilinn frá móðurinni kveinar
hann og skriður með erfiðismun-
um um, eins og barnsem leitar að
móður sinni. Þótt hann lifi vel af
eftir að hafa verið færður frá
móður sinni, mundi hann þekkja
hana aftur og hlaupa til hennar,
ef hann sæi hana.
Bæði fornleifafræðingar og
dýrafræðingar álita, að á Pleis-
tocene-skeiðinu fyrir 500.000 til
600.000 árum hafirisapandan ver-
ið til á miklu stærra svæði en i
dag, og þá á svæðum, sem ná yfir
allan suðurhluta Kina. Siðar —
þegar menning mannsins breiddi
úr sér — voru gifurleg landflæmi
bambusskóga felld og rudd. Við
það minnkaðimjög næringarforði
risapöndunnar. Þetta leiddi til
þess að heimkynni hennar og
fjöldi dróst verulega saman.
Risapandan var mikið átvagl.
Auk þess höfðu fremstu tennurn-
ar i bæði efra og neðra gómi úr-
kynjast, svo að hún hafði misst
hæfni grimmra kjötæta til að rifa
kjötið í lengjur. Liffæri hennar til
að ráðast á og góma bráð sína
höfðu einnig úrkynjast. Af þess-
um sökum gat dýrið ekki lagað
sig að breyttu umhverfi. Af-
leiðingin varð sú, að nú á timum
lifir pandan aðeins á mjög af-
mörkuðum skógivöxnum svæðum
i fylkjunum Szetsjúan, Kansú og
Sénsi i Kina.
Vanglang-svæði i Pingvú-sýslu
i Szetsjúan-fylki, sem er eðúleg
heimkynni risapöndunnar, hefur
verið gert að verndarsvæði, sem
fyrst ogfremst er ætlað að vernda
þetta sjaldgæfa dýr. Risapanda
sú i dýragarði Peking-borgar,
sem nefnd er Vei Vei, var veidd
þar, þegar hún var aðeins þriggja
til f jögurra mánaða gömul. Svæði
þetta er við austurjaðar Tsing-
hæ-Tibet-hásléttunnar i 2.400 til
4.980 m hæð yfir sjávarmáli. Þar
eru gnæfandi fjöll, þröng gil og
striðar ár. Hitastigið er lágt, en
helzt alljafnt allt árið um kring.
Rakastígiðer hátt,endaer vöxtur
bambussins blómlegur á þessum
slóðum. Bambusskógarnir eru
aðalheimkynni risapöndunnar.
Þar finnur hún rikulega fæðu og
ágæta felustaði.
Risapöndur hafast við uppi við
hálendið i skógum, þar sem vaxa
bæði barrtré og lauftré. Oft finn-
Risapanda i friðlandi i Wanglang i Kina.
RISAPANDAN
— vel verndað, sjaldgæft dýr 1 Kína
eftir Húa Tsin
ast leifar bambusgreina og taðs,
sem pandan hefur skilið eftir sig i
frumskógum eða fjallahellum.
Oft drekkur hún úr ám. Nokkrir
könnuðir sáu eitt sinn risapöndu
sem mókti undir tré og bærði ekki
á sér fyrr en hún vaknaði við
könnuðina sem nálguðust. Hafi
risapandan veður af hættu, þýtur
hún burt og leitar skjóls, klifrar
upp i hátt tré eða syndir jafnvel
yfir straumharðar ár með mikl-
um hraða og lipurð.
Risapandan nærist aðallega á
bambuslaufum og greinum auk
bambussprota og barkar kin-
versku furunnar. Hún neytir
hvorki meira né minna en 20 kg
nýrra bambuslaufa eða greina á
sólarhring. Stundum étur hún
smærri dýr. Til eru sögusagnir
um það að risapöndur fari i
næturránsferðir inn i bækistöðvar
skógarhöggsmanna til að stela
sér kjöti. . t dýragarði
Peking-borgar fá risapöndurnar
tvær máltiðir á dag af heilnæmri
fæðu, sem samanstendur af
mjólk, hrisgrjónum, hreinsuðum
sykri, borðsalti, beinum og mais,
sáldraðri baunaköku og eplum
auk hæfilegs magns af nýju
bambuslaufi og vatni. Pöndu-
ungarnir hafa þyngzt að meðal-
tah um tvö tíl þrjú kg á mánuði.
Fullorðin panda vegur 100 til 130
kg.
Risapandan er næm bæði fyrir
miklum kulda og miklum hita.
Henni litur best við 10 til 25 gráð-
ur C. Á verndarsvæðunum úti i
sjálfri náttúrunni skiptir risa-
pandan um dvalarstöðvar eftir
árstiðum. A sumrin og haustin
hefst hún við á stöðum sem eru
meira en 3.000 metra yfir sjávar-
máli, en á veturna og vorin flytur
hún sig i skjólgóð gil, sem liggja
lægra, og þar sem minna er af
snjó.
Risapandan á sér ekkert fast
bæli. Þegar kvendýrið er komið
að goti, leitar hún að skógardæld
eða helli, þar sem hún getur setzt
að, gotið ungum sinum og annazt
þá. Nýfæddur ungi er engu stærri
enfullorðinhvit mús og vegur að-
eins um 100 g. Hárið á skinni hans
er gisið, hvitt á litinn og unginn
getur ekki skriðið um fyrr en
hann er orðinn þriggja mánaða
gamall. Hann getur komizt af á
eigin spýtur sex manaða gamall,
og fjölgað sér að 6 til 7 árum liðn-
um.
Pandan sér fremur illa, en
heyrn hennar og lyktarskyn er
með ágætum. Hún situr upprétt
og heldur jafnvægi á afturfótun-
'um, þegar hún hámar af góðri
lyst af frjósömum bambusnum.
Pandan er þekkt undir nafninu
,,lifandi steingervingur”. Sem
fulltrúi fornra dýra hefur hún
ákaflega mikið visindalegt gildi
fyrir dýrafræðilegar rannsóknir.
Steingervingar dýra frá Neolit-
hic-skeiðinu, sem fundizt hafa i
Læpi'ng-sýslu á sjálfstjórnar-
svæðinu Kvangsi Tsjúang, sýna
að stærð hinnar þáverandi risa-
pöndu var svipað stærð hins núlif-
andi afkomanda hennar.
Risapöndunni, sem aðeins er til
i Kina, hafði nærri verið útrýmt
fyrir stofnun Alþýðulýðveldisins.
Það var vegna vanrækslu hinna
fyrrverandi afturhaldsstjórna. I
stað þess að vernda þetta dýr-
mæta dýr leyfðu þær ótak-
markaðar veiðará þvi. Á árunum
eftir frelsunina vandaði alþýðu-
stjórnin vel til verka við verndun
villtra dýrategunda og tók upp
ýmis ráð þeim til verndar. Risa-
pandan hefur verið sett hátt á
listann yfir þau veiðidýr, sem
ekki má veiða nema takmarkað
af. Skóglendi þau, sem risapönd-
ur hafast við á, eru afmörkuð sem
náttúruverndarsvæði. Enga
pöndu má veiða nema með
heimild frá rikisstjórninni. Til að
verndá viðkomu pöndunnar
kunngerir rikisstjórnin viðs veg-
ar mikilvægi þess að vernda
sjaldgæf dýr og styðja stjórnar-
stefnu rikisins varðandi þessa
verndun. Þetta gerir hún meðal
annarsmeðþviað senda sérstaka
hópa tíl að sýna skuggamyndir
um lif þeirra i þeim kommúnum
sem næstar eru verndarsvæðun-
um. Finni meðlimur staðar-
kommúnu pönduunga af tilviljun,
sendir hann ungana tíl viðkom-
andi stofnunar, sem annast vel
um hann. Eftir tilkomu náttúru-
verndarsvæðanna njóta risa-
pöndur nú hinna beztu skilyrða til
að fjölga sér og viðhalda stofnin-
um.
Sííí
■
S :
Gjörbylting í nýtingu
TELEXTÆKJA
Nú geta fyrirtæki og stofnanir sameinast um
nýtingu telextækja á ódýran og hentugan hátt.
Telecoder, nýja strimiltækið frá Skrifstofuvélum
h.f., tengist beint við hvaða IBM kúlurafritvél sem
er.
Telecoder strimiltækið er algjörlega óháð
telextækinu.
Telecoder tryggir þér villulaust handrit af telex-
skeytum þínum, — og fullfrágenginn telexstrimil,
sem er tilbúinn til útsendingar þegar í stað.
Telecoder er tilvalinn fyrir deildir stærri fyrir-
tækja, — og þá ekki síður fyrir einstök fyrirtæki,
sem geta þannig sþarað stórfé með því að sam-
einast um leigugjald á einu telextæki.
RITVEL
TELECODER
TELEX
v.KUC^
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
7* • • v •" vS? Hverfisgötu 33
Simi 20560