Tíminn - 16.04.1978, Blaðsíða 14
14
Sunnudagur 16. aprll 1978
Tíminn heimsækir Breiðdalsvík
Atvinna meiri en heimamanna
Oft hef ur maður fengið
þær fréttir af Breiðdals-
vík, að þar sé mikið um
atvinnuleysi og þar sé
engin uppbygging. En allt
annað blasti við blaða-
manni Tímans, þegar
hann leit þar við á dögun-
um. Þá var nýtt frystihús
fyrir nokkru tekið til
starfa og mikill hugur í
mönnum að kaupa fleiri
veiðiskipt til þess að
tryggja atvinnuna. Þar er
sláturhús í byggingu og
mörg íbúðarhús, sé miðað
við stærð staðarins. Og
atvinnan var svo mikil að
þangað höfðu fimm út-
lendingar verið ráðnir í
vinnu. Nú ræða menn um
að koma einhvers konar
iðnaði á fót til að skjóta
fleiri stoðum undir at-
vinriulíf ið.
MÓ.
Frá Brei&dalsvlk
Bjartari tímar
á Breiðdalsvík
— en lengi hafa verið, segir
Sigmar Pétursson oddviti
kr. i fyrra og 80 millj. kr. árið
Sigmar Pétursson
Hér er nú bjartara framund-
an, en lengi hefur verið, sagöi
Sigmar Pétursson oddviti i
Breiðdalshreppi i viðtali viö
Timann nýlega. Frystihúsiö tók
til starfa i febrúar og hingaö
kom loðna litlu siðar og loðnu-
bræðslan fór i gang. Hins vegar
er þvi ekki að leyna aö nokkrar
blikur eru á lofti varöandi hrá-
efnisöflun.Togarinn var af okk-
ur tekinn, og þótt um hafi veriö
talaö, að við fengjum afla frá
Fáskrúðsfirði, hefur svo ekki
orðið, enda afli togaranna frem-
ur litill enn sem komið er.
Frambúðarlausn okkar er að fá
hingað togskip, og trúi ég ekki
ööru en stjórnvöld aðstoði okkur
i þvi máli.
Mikið hefur verið unniö aö
hafnargerð hér hin siðari ár. Til
að reka endahnút á það verk
þarf að reka 60 m langt stálþil
niður með nýjum hafnargarði,
og er þá komin ágætis aðstaða
fyrir báta og togskip. Verulegu
fjármagni hefur verið varið til
hafnarframkvæmdanna frá
1971, t.d. varunnið fyrir 20 millj.
1976.
Nú þegar hafnarframkvæmd-
ir eru komnar vel á veg og
frystihúsið komið i notkun, von-
umstviðtilað hjólin fari að snú-
ast á réttan veg og atvinnuleysi
heyri til liðinni tiö. Hugmynd
okkar er að sameina undir einn
hatt alla útgerð héðan og fisk-
verkun og gera úr þessu sterkt
fyrirtæki.
Undanfarin ár hefur verið
mikið um ibúðarhúsabyggingar
hér á Breiðdalsvik. A sildarár-
unum voru örfá hús hér i þorp-
inu, en þau ár var hér mikið um
byggingarframkvæmdir. Sið-
ustu árin hafa menn á ný hafizt
handa um byggingarfram-
kvæmdir. 1 þorpinu eru nú um
50 þús.
Arið 1973 var byrjað hér á
varanlegri gatnagerð og höfum
við unnið litillega aö þvi máli á
hverju ári til þess að gera um-
hverfið skemmtilegra. Aðal-
áherzluna leggjum viö þó á aö
koma hafnarmannvirkjunum i
sem beztlag, enda er þaö undir-
staða þess að hér eflist og
blómgist bvpo*
Þá erhugmyndin að byrja hér
á skólabyggingu i vor, en nú fer
öli kennsla fram i Staðarborg,
sem er inni i sveitinni, skammt
fyrir innan þorpið. Þangað er
börnum ekið daglega.
Ibúar i Breiðdalshreppi eru
alls um 380. Þar af búa 220 i
þorpinu en hinir i sveitinni.
Byggð i sveitinni helzt nokkurn
veginn, og litið er um að jarðir
fari i eyðir.
1 fyrra var byrjað á byggingu
sláturhússá Breiðdalsvik. Þar á
að vera unnt að slátra 600 kind-
um á dag. Vonazt er til að húsið
komist i notkun fyrir haustið.
Hugmyndin er siðan að nýta það
fyrir iðnað úr landbúnaðarvör-
um aðra tima árs en á haustin.
Þannig mætti auka fjölbreytni i
atvinnulifinu i Breiödal og gera
það tryggara. Mó.
Mörg nýleg hús eru á Breiödalsvlk
Riðuveiki og
garnaeitrun
— alvarlegustu sjúkdómarnir hér, segir Hákon
Hansson dýralæknir á Breiðdalsvík
Alvarlegustu sjúkdómarnir
hér eru riðuveiki og garnaeitrun
ogeru þeir báðir að breiðast hér
út, sagði Hákon Hansson dýra-
læknir á Breiðdalsvik i samtali
við Timann. Riðan fannst hér
fyrst i fyrra, og er nú vitað með
vissu um hana á þremur
bæjum á svæðinu. Riðan er
ólæknandi sjúkdómur. Gárna-
eitrunin stingur sér niður viöa
og gerir oft mikinn.skaða. Bólu-
efni er tii gegn þessari veiki, en
bólusetning kemur ekki alltaf aö
gagni.
Hákon er fyrsti dýralæknirinn
i Austurlandsumdæmi syöra.
Þaö umdæmi var stofnað i fyrra
og nær f rá Lónsheiði að Reyðar-
firði. Tvö hundruð km eru á
milli endimarka svæðisins,
þannig að oft þarf Hákon að
taka á sig löng ferðalög. T.d.
ekur hánn a.m.k. 260 km dag-
lega i sláturtiðinni á haustin.
A svæðinu eru um 90 bændur
ogbúa þeir aðallega við fé. Þrjú
sláturhús eru á svæðinu og var
þar slátrað 32 þúsund fjár á
siöastliðnu hausti. í umdæminu
eru um 250 kýr.
Hákon er Reykvikingur, en
stundaði nám og störf i Þýzka-
landi áöur en hann kom tii
Breiðdalsvikur. Kvaö hann
mikil umskipti að koma i jafn
mikið fámenni og væri þar
eystara, en sér likaöi afar vel og
fólkið hefði tekið sér mjög vel.
— Það kom mér jafnvel mest
á óvart, sagði Hákon, hve fólk er
hér ánægt og lifir heilbrigðu lifi.
Það notar sér það sem upp á er
boðið, t.d. sótti mikið fjölmenni
dansnámskeið, sem hér var
haldið. Ég sótti þetta námskeið
og hefði af þvi mikið gaman.
Hins vegar býst ég ekki við að
ég hefði farið á slikt námskeið,
ef ég hefði verið i Reykjavik.
MÓ
Hákon Hansson