Tíminn - 16.04.1978, Síða 28
28
Sunnudagur 16. aprfl 1978
Sjötugur:
Indriði Indriðason
rithöfundur
i.
Indriöi Indriöason frá
Ytra-Fjalli i Aðaldal hefur viða
komið við í félagsmálum á liðinni
ævi og hvarvetna þótt ágætlega
liötækur maður. Hér verður þó
ekki um annað rætt en störf hans
að bindindismálum.
Þegar stúkan Andvari var
stofnuð i Reykjavik árið 1948 var
Indriði meðal stofnendanna, en
hafði áður starfað allmörg ár i
stúkunni Verðandi, elztu stúku á
Suðurlandi. Hefur hann gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum i stúku
sinni á þessum 30 árum og jafn-
framt verið þingtemplar i
Reykjavik um skeið. Fyrir
heildarsamtök templara hefur
hann unnið trúnaðarstörf bæöi
hér á landi og erlendis. Hann var
kanzlari i Stórstúku tslands
1964-74, en stórkanzlari er vara-
maður stórtemplars. Aður haföi
hann skipað önnur embætti i
framkvæmdanefnd Stórstúkunn-
ar i þrjú ár. Siðastliðin tvöár hef-
ur hann verið stórtemplar. ÖU
þessi störf hefur Indriði rækt af
árvekni og samvizkusemi, enda
er þaö i samræmi viö alla gerð
mannsins. Hannhefur oft skrifaö
um bindindismál i blöð og þegar
Reglan á tslandi var 75 ára, 1959,
tók hann saman sögu hennar. Þaö
erekkistórt rit en skipulega sam-
ið og geymir furðumikinn fróð-
leik. Þar er einnig i fáum orðum
en skilmerkilegum gerð grein
fyrir tilgangi Reglunnar og hvers
vegna starfsemi hennar hefur
verið og er eins mikilvæg og hún
er. Þar kemst hann meöal annars
svo að orði:
„Afengisvandamálin verða
ekki leyst fyrr en einstaklingar
þjóðfélagsins finna og viðurkenna
samábyrgð sina. Þjóðarviljinn
einn, studdur vitsmunum og sam-
ábyrgð þjóðhagslegra stað-
reynda, hlýtur að marka þá
stefnu, er ráöa skal I framtiðinni.
Sú steftia gæti haftaö einkunnar-
orðum: Allsgáðir menn i sam-
ábyrgu og sjálfstæðu þjóðfélagi.”
Þetta verður varla betur orðað.
Og sannleikurinn i þessu veröur
tæplega hrakinn með rökum. En
miklu skiptir það fyrir islenzka
þjóö að sem flestir átti sig á þess-
um sannleika.
Indriði er að mörgu vel fallinn
til að vera forustumaöur I menn-
ingarsamtökum eins og Reglan
er. Hann er fróður i sögu henn-
ar og skilur vel tilgang hennar og
eðli. Hann er gætinn i ákvörðun-
um og traustur i málflutningi.
Ræður hans eru skipulegar og
venjulega grafið að kjarna i
hverju máli. Hann er vel að sér i
fundarsköpum og þekkir lög, siði
og skipulag Reglunnar út i æsar.
Og trúnaður hans við málstaðinn
er heill og óskiptur.
Gott væri Reglunni að eiga sem
flesta menn er vildu feta þar i fót-
spor Indriða Indriðasonar, þótt
ekki gætu nema fáir þeirra korm
izt eins langt og hann hefur náð.
II.
Hér skal með fám orðum
minnzt á þau ritstörf Indriða Ind-
riðasonar sem sumir munu telja
aö ekki þurfi mikla rithöfundar-
hæfileika til að inna af hendi, en
það eru ættfræðiiðkanir hans. Er
það og rétt að til þeirra starfa
þarf annað en til þess að semja
snotrar smásögur eða skrifa læsi-
lega ævisögu manns, en þetta
hvort tveggja hefur Indriöi leyst
af hendi eins og kunnugt er. En til
þess að geta unnið afrek i ætt-
fræöistörfum þarf gætni og var-
færni — þvi að margur stafur er
myrkur i þeim rúnum — og einnig
þarf dómgreind að vera i góöu
lagi. Þó má ekki vera skortur á
hugkvæmni. Iöni og eljusemi er
einnig nauösynleg ef nokkuð á að
vinnast. Þá er þörf á að minni sé
trútt, raunar helzt lika gott, en
um fram allt trútt, þvi að á þessu
sviði eins og raunar fleirum er
betra að muna ekki og gera sér
þess grein heldur en að muna
rangt og vita ekki af þvi. Alla
þessa kosti hefur Indriöi til að
bera i rikum mæli.
Allt þetta fyrir
Til öryrkja 1.365.000
Station 1.930.000
Til öryrkja 1.510.000
— Hámarkshraði 155 km— Bensíneyðsla um 10 lítr-
ar per 100 km — Kraftbremsur með diskum á öllum
hjólum — Radial-dekk — Tvöföld framljós með
stillingu— Læst bensínlok— Bakkljós— Rautt Ijós í
öllum hurðum — Teppalagður — Loftræstikerfi —
öryggisgler-2ja hraða miðstöð — 2ja hraða rúðu-
þurrkur— Rafmagnsrúðusprauta — Hanzkahólf og
hilla — Kveikjari — Litaður baksýnisspegill —
Verkfærataska — Gljábrennt lakk — Ljós í farang-
ursgeymslu — 2ja hólfa kaborator — Synkronester-
aður gírkassi — Hituð afturrúða — Hallanleg sætis-
bök — Höfuðpúðar.
FIAT EINKAUMBOD A ISLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumúla 35 Símar 38845 — 38888
'Umboðsmaður okkar á Akureyri er
VAGNINN S.F. Furuvöllum 9, sími (96) 1-14-67
*
Ekki orkar það tvimælis að
enginn maður jafnast á við Ind-
riða um þekkingu á þingeysku
fólki og þingeyskum ættum. Er
með þessu á engan hátt verið að
gera lítið úr þekkingu annarra
þingeyskra manna á þvi sviði. En
hér er þekking Indriða svo
afburðamikil að menn geta verið
ágætlegaaðsérí þeimefnum þótt
þeir standi honum langt að baki.
Og það sem meira er: þekking
Indriða i ættfræðinni er traust,
reist á öruggum heimildum þar
sem þvi verður við komið en llkur
studdar rökum og þá glögglega
sýnt hvort þær séu svo sterkar aö
stappi nærri sönnun eða hvort
þær séu veikar. Heimtar þetta
allt i senn — eins og áður var sagt
—: varfærni, hugkvæmni og dóm-
greind.
Indriði Indriðason tók við góð-
um arfi i ættaþekkingu þar sem
var safn föður hans, Ind-
riða Þorkelssonar á Fjalli.
Þann arf hefur hann drjúg-
um ávaxtað á mörgum undan-
förnum árum. Tvö bindi eru þeg-
ar komin út af Ættum Þingeyinga
(1969 og 1976) en efni á hann I
mörg fleiri. Væri vel að honum
entist heilsa til aö ganga frá þeim
og koma þeim fyrir almennings-
sjónir.
Ég hika ekki við að telja Ind-
riða Indriðason einhvern allra
færasta ættfræðing þeirra manna
sem nú eru á lifi.
Ólafur Þ. Kristjánsson
Indriði Indriöason rithöfundur
er sjötugur á morgun. Hann
fæddist að Ytra-Fjalli i Aðaldal i
Suður-Þingeyjarsýslu 17. april
1908, sonur hjónanna Indriða
Þórkelssonar, bónda og skálds á
Ytra-Fjalli, og Kristinar Sigur-
laugar Friðlaugsdóttur. Indriði
Indriðason stundaði nám I ungl-
ingaskóla á Breiöumýri veturinn
1923-’24, en veturinn 1927-’28
stundaði hann nám i ensku og
enskum bókmenntum við Mark
Hopkins Polytechnic Highschool i
San Fransisco. Hann dvaldist i
Bandarikjunum (San Fransisco)
frá 1926-’30 og vann þar við
trésmfðar og fleira. Arin 1930-’32
var Indriði bóndi á Grenjaöar-
stöðum i Aðaldal, og á Aðalbóli,
sem er nýbýli, (1/5 hluti Grenjað-
árstaða), frá l932-’35.
Sumarið 1934 gerðist Indriði
blaðamaður við Nýja dagblaðið
og upp frá þvi hefur hann gegnt
ýmsum störfum i Reykjavik, en
þó langsamlega lengst á Skatt-
stofu Reykjavikur, þar sem hann
hefur unnið siðan árið 1944, og
verið fulltrúi þar siðan 1955.
Indriði Indriðason hefur mikið
látið félagsmál til sin taka. Hann
var um skeið i stjórn Félags
ungra framsóknarmanna, og átti
sæti i nefnd, sem stóð að stofnun
Landssambands ungra fram-
sóknarmanna 1939. Þá hefur hann
setið i stjórn Félags Vestur-ís-
lendinga, i stjórn Félags Þingey-
inga I Reykjavik, Félags
Islenzkra rithöfunda, i stjórn
Rithöfundasambands Islands og
stjórn Þjóðræknisfélags tslend-
inga. Enn fremur hefur Indriði
starfað mikið að bindindismál-
um, hann hefur setið I fram-
kvæmdanefnd Stórstúku Islands
og i stjórn Reglu musterisriddara
frá 1949, hann var fulltrúi Islands
á aldarafmli Góðtemplararegl-
unnar I New York, Chicago og
Minneapolis 1951. Þá var hann og
fulltrúi Reglu musterisriddara á
móti i Stokkhólmi árið 1961.
Indriði Indriðason hefur gerzt
mikilvirkur rithöfundur.
Smásagnasafn hans, örlög, kom
út 1930, Dagur er liöinn (ævisaga
Guðlaugs frá Rauðbarðaholti),
kom út 1946. Enn fremur liggja
eftir hann ritin Menningin frá
minningunni, Einstaklingurinn
og áfengismálin, Góötemplara-
reglan á íslandi 75 ára, Sigfús
Bjarnason (sérpr.), Afmælisrit
Jaöars ásamt öörum, og smá-
sögur hafa birzt eftir hann I Ið-
unni, Eimráðinni og viðar. Auk
þessa alls liggur eftir hann mikið
af þýðingum. Siðast en ekki sizt
berað telja hið mikla rit Indriða,
Ættir Þingeyinga, en af þvi eru nú
komin tvö bindi, og hið þriðja er I
prentun...
Auk frumsaminna og þýddra
rita Indriða Indriðasonar hefur
hann séð um Utgáfu á eftirtöldum
verkum: Jón Arnason áttræöur,
1955, Baugabrot, ljóðmæU Indriða
Þórkelssonar, og Milli hafs og
heiða, þjóöfræöaþættir eftir sama
höfund.
Hinn 17. júli 1931 gekk Indriði
Indriðasonað eiga Sólveigu Jóns-
dóttur Jónatanssonar ritstjóra og
alþingismanns á Ásgautsstöðum.
— VS
Þakkarávarp
Innilegar þakkir til allra sem heiðruðu mig meö gjöfum,
heillaóskum og heimsóknum á niutiuára afmæli minu
lO.april 1978.
Guö blessi ykkur öll.
Helgi Gunnlaugsson
frá Hafursstööum.
Þakkarávarp
Innilegar þakkir til skyldra og vandalausra fyrir hlýjar
kveðjur og gjafir á 90ára afmæli mlnu þann 8. þ.m.
Lifiö heil.
Sigurður Guðmundsson
frá Kolsstöðum.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Sigurður Jónasson
skógarvörður, Laugabrekku, Varmahlið
sem lézt þriðjudaginn 11. april,veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju, miðvikudaginn 19. aprii, ki. 10.30.
Sigrún Jóhannsdóttir,
Svanhildur Siguröardóttir, Hilmar Þór Bjarnason,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Jón Adólf Guðjónsson,
Jóhann Sigurösson, Margrét Valdimarsdóttir,
Siguröur J. Sigurösson, Asdis Erla Kristjónsdóttir
og barnabörn.
Kveöjuathöfn vegna andláts
Snorra Sigfússonar
fyrrum námsstjóra
fer fram i Dómkirkjunni föstudaginn 21. þ.m. kl. 10,30.
Snorri verður jarösunginn frá Dalvlkurkirkju laugar-
daginn 22. þ.m. kl. 13,30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Bjarnveig Bjarnadóttir.