Tíminn - 25.05.1978, Page 24
Sýrð eik er
sígild eign
£CiÖGN
TRÉSMIDJAN MÉIDUR
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafélag
IKWÍWtJ. Fimmtucla9ur 25- maí 1978 107. tölublað —62. árgangur.
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar
2598 manns í kj ör i
Hó — Rcykjavlk. —1 bæjar- og
sveitarstjórnarkosningunum,
sem fram eiga aö fara á sunnu-
daginn, á að kjósa i kaupstööum
landsins og hinum svokölluðu
kauptúnahreppum. Kaupstað-
irnir eru 22 og kauptúnahrepp-
arnir 34. Alls á þá að kjósa
stjórn i 56 sveitarfélögum.
Listar hafa komið fram f 52
sveitarfélögum. A fjórum
stöðum kom enginn listi fram og
verður kosningin óhlutbundin á
þeim stöðum. Geta menn þá
valið úr öllum þeim, sem á kjör-
skrá eru, jafnmarga menn eða
færri og sitja eiga i hreppsnefnd
á viðkomandi stað. Þessir staðir
eru: Súðavik, Hvammstangi,
Hrisey og Stöðvarfjöröur. A
2,2% kjósenda í framboði
einum stað eru úrslit þegar
kunn. Það er á Eyrarbakka, þar
sem aöeins einn listi kom fram.
Er hann þvi sjálfkjörinn. 1 hinni
nýju hreppsnefnd á Eyrarbakka
eiga sæti eftirtaldir menn:
Kjartan Guðjónsson, Bjarn-
finnur R. Jónsson, Þór Hagalín,
Guðrún Thorarensen, Kristján
Gislason, Magnús K. Hannesson
og Valdimar Sigurjónsson.
1 kaupstöðunum 22 eru alls
staðar listar f kjöri. A þessum
listum eru samtals 1570 fram-
bjóðendur, aðalmenn og vara-
menn. 1 kauptúnahreppunum
eru 1028 i framboði, aöalmenn
og varamenn. Samtals eru þetta
2598 manns.
Samkvæmt tölum Hag-
stofunnar eru á kjörskrá á þeim
stöðum sem kosið veröur á nk.
sunnudag samtals 119.998, þar
‘af 106.154 i kaupstöðunum en
13.844 i kauptúnahreppunum.
Taka verður tölur um kjörskrá
meö varúð þar eð kjörnefnd á
hverjum stað gengur endanlega
frá kjörskránni. Geta orðið
breytingar á henni af ýmsum
ástæðum. Dauðsföll, flutningar
fólks, vangá og misskiiningur
hafa áhrif á kjörskrána.
Samkvæmt þessum tölum eru
2,2 af hundraði kjósenda i fram-
boði. Þetta hlutfall er þó langum
hærra i hinum fámennari
byggðarlögum. 1 kauptúna-
hreppunum eru frambjóðendur
alls 1028. en á kjörskrá þar eru
13.844. Þar er þvi 7,4 af hundraði
kjósenda i framboöi.
Sennilega eru hvergi fleiri
frambjóðendur i hlutfaili við
kjósendur en i Höfnum. Þar eru
um 100 manns á kjörskrá, en
tveir listar i framboði, með
samtals 20 frambjóðendum. 20
af hundraði kjósenda eru þvi i
framboði. Næstir koma Reyð-
firðingar. Þar'eru fimm listar i
kjöri. Á þeim eru samtals 70
frambjóðendur. A kjörskrá eru
403 og eru þvi 17,3 af hundraði
kjósenda i framboði.
Stokkseyringar eru lika
•áhugamenn um kosningar. Þar
eru fjórir listar og fram-
bjóðendur 50. 15 af hundraði
kjósenda eru á þessum listum.
A Þingeyri eru lfka rúmlega 15
af hundraði kjósenda á fjórum
listum.
Myndir Svavars
Guðnasonar
falsaðar
í Danmörku
Svavar Guðnason.
Löng biðröð myndaöist við miðasölu Listahátiðar i gær þegar aðgöngu-
miðasala á atriði hátiðarinnar hófst.
Timamynd G.E.
Listahátíð 1978:
Mestur áhugi á
Oscar Peterson
og Dubliners
— miðasala hófst í gær
Kás—Fyrir skömmu kom ungur
Islendingur, nýkominn frá Dan-
mörku, að máli við Svavar
Guðnason listmálara, en hann
mun þekktastur núlifandi
islenzkra málara þarlendis, meö
mynd sem hann haföi keypt þar
ytra og merkt var Svavari á
ramma og bað hann aö signera
fyrir sig. I ljós kom við nánari
athugun, að myndin var fölsuö,
alls ekki gerð af Svavari. Verö
myndarinnar var afar hagstætt,
meira en helmingi lægra verð en
myndir Svavars ganga á I Dan-
Danmörku.
1 samtali við Timann sagði
Svavar, að umrædd mynd hefði
veriðmerkt honum á ramma meö
bíokkstöfum. Sagði Svavar, að
myndin væri alls ekki eftir hann,
hann heföi aldrei framið neitt I
þessu verki, enda merkti hann
myndir sinar ekki með blokk-
stöfum.
Þá sagöi Svavar, að þessi
Islendingur hefði séö a.m.k. eina
aðra mynd eftir hann I þessu
sama sölugallerii i Kaupmanna-
höfn, aðeins merkta á ramma en
ósigneraða. Einnig heföu veriö til
sölu listaverk eftir fleiri höfunda,
sem eins var háttað, þ.e.
ósigneruö og merkt á ramma.
Svavar sagðist ætla að láta
athuga þetta nánar, og lfklega
skýröust málin bráðlega. Um-
rædd mynd hefði verið gjörólik
hans verkum. Það væri auðvelt
að ljúga svona löguðu inn á ungt
fólk, sem gini viö þessu, þvl það
heföi ekki þá þekkingu sem nauö-
synleg væri i þessum efnum.
ESE — Salan hefur gengið mjög
vel og má segja að hér hafi veriö
látlaus straumur fólks I allan dag,
sagöi Guðriður Þórhallsdóttir hjá
Listahátiðer blaöamaöur Timans
hafði samband viö miðasölu
Listahátiðar I Gimli I gær.
Aberandi mestur áhugi viröist
vera fyrir Oscar Peterson og
Dubliners og einnig selst mjög vel
á hljómleika brezku popphljóm-
sveitarinnar Smokie svo og á
hljómleika með þeim söngkonum
sem veröa á Listahátið.
Við seljum hér miöa á 23 atriði
listahátiðar svo að segja má að
miöaverð sé fjölbreytt að sama
skapi. Hæstur er aðgangseyrinn á
hljómleika Oscars Petersons og
Smokie eða 4500 krónur, en ódýr-
ast er á leikrit Jökuls Jakobsson-
ar 800 krónur á ódýrasta stað
sagði Guðriöur Þórhallsdóttir aö
lokum.
Lenti undir
strætisvagni:
Er
vart
hug-
að
líf
ESE— Mjög alvarlegt umferðar-
slys varð I Reykjavik i gærmorg-
un um klukkan ellefu fyrir há-
degi, þegar rúmlega sextugur
maður lenti fyrir strætisvagni á
gangbraut á Laugaveginum á
móts við Mjólkursamsöluna.
Maður þessi sem fæddur er áriö
1917 var á leið norður yfir götuna
þegar óhappið átti sér stað og
-virðist sem hann hafi ekki tekið
eftir strætisvagninum sem var á
leið austur Laugaveg og átti
skamman spöl ófarinn að biðstöð
sem er þarna skammt frá.
Maðurinn hlaut mikil höfuð-
meiðsli auk annarra áverka og er
blaðið hafði samband við gjör-
gæzludeild Borgarspitalans I gær
þá var hann i mikilli lifshættu.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík
heldur fund í Þórscafé, Brautarholti 20 í dag, fimmtudaginn 25. maí kl. 20,30.
Fundarefni: Kosningarnar
Olafur Jóhannesson, dóms- og viðskiptaráðherra mætir á fundinum.
Áríðandi er að bæði aðal- og varafulltrúar mæti. Stjórnin