Tíminn - 30.07.1978, Síða 3
Sunnudagur 30. júll 1978
3
Timarit Máls og menningar tileinkaö
að hluta Jóhannesi úr Kötlum
Annaö hefti Timarits Máls og
menningar fyrir þetta ár er ný-
komiö Ut. Heftiö er 112 blaöslöur
og er aö þessu sinni aö hluta
helgaö Jóhannesi úr Kötlum og
skáldskap hans, sem tiöast er litiö
til sem höfuöskálds islensks sósi-
alisma. Birtist i heftinu m.a. áöur
óbirt ljóö eftir Jóhannes, „Metta
Kristin Egilsdóttir”. Og Sveinn
Skorri Höskuldsson og Njöröur P.
Njarövik rita greinar um skáld-
skap hans.
Auk annars efnis i blaöinu má
nefna greinina Popperismi og
marzismi eftir Kristján Arnason,
grein um kúbönsku byltinguna
eftir Gabriel Garcia Márquez,
ræöu Kjarstans Flögstad sem
hann flutti er hann tók á móti bók-
menntaverölaunum Noröur-
landaráös og sögur eftir Vagn
Lundbye og Kristján Jóhann
Jónsson. báeruljóöeftir Kristján
Arnason, Steinunni Siguröar-
dóttur og Njörö P. Njarövik.
Adrepur eru eftir Magnús
Kjartansson, Helgu Hjörvar og
bröst Ölafsson og bókaumsagnir
eftir Véstein ólason, Silju Aöal”
steinsdóttur, Kristján Arnason og
ritstjórann, borleif Hauksson.
Timaritiö er prentaö i prent-
smiöjunni Odda hf.
Félag áhugasafnara
Félag áhugasafnara var stofn-
aö 1. nóv. 1975. Er þaö félag fólks
sem hefur áhuga á aö safna og
varöveita ýmsa hluti og muni.
Ahugasviö félagsmanna eru
ótrúlega mörg m.a. bækur, fri-
merki, steintegundir, dýr, gamlir
munir úr atvinnusögu og lifi
þjóöarinnar o.fl. Tilgangur
félagsins er aö tengja saman
safnara meö skyld sviö, auka
kynni og samstarf safnara úti á
landi, halda fræöslufundi og
standa aö sýningum. Markmiö
félagsins er aö efla náttúrugripa-
söfn hjá skólumog veita leiöbein-
ingar þar um. Einnig gengst fé-
lagiö fyrir sumarferöum til
náttúruskoöunar meö söfnun i
huga.
beir sem áhuga hafa á aö
kynna sér nánar starfsemi fé-
lagsins, skal bent á aö snúa sér til
Kristjáns S. Jósepssonar i sima
26628 og veitir hann nánari upp-
lýsingar.
veiðihornið
Mokveiði i Laxá i Ás- Góð meðalþyngd úr
um Laxá i Aðaldal
Veiöihorniö hafði i gær sam-
band við Kristján Sigfússon á
Húnsstööum og spurðist frétta
af veiði i Laxá I Asum. Kristján
sagöi veiðina hafa gengið mjög
vel og nú væru komnir um 1000
laxar á land. Tvær stangir eru
leyfðar i ánni og má veiöa 20
laxa á hvora stöng yfir daginn.
Kristján sagöi að nær undan-
tekningarlaust heföi veiðimönn-
unum tekist aö veiða upp I þenn-
an kvóta, og ef reglur leyföu þá
hefði hæglega verið hægt að
veiða mun fleiri laxa, þrátt fyrir
að ekki hefur viðrað vel til lax-
veiði aö undanförnu.
Laxá i Mývatnssveit
Hólmfriður Jónsdóttir, veiöi-
vörður viö Laxá i Mývatnssveit
hafði samband við horniö og
vildi koma þvi á framfæri, aö
hún væri ekki alveg sátt við það
sem sagt var i Veiðihorninu fyr-
ir nokkru, en þar sagði að Hólm-
friður væri ráöskona i veiðihús-
inu við Laxá i Laxárdal. Við
tökum undir þaö sem Hólmfriö-
ur segir, þvi hafa ber þaö sem
sannara reynist, og er Hólm-
fríöurbeðin velviröingar á þess-
um mistökum. Annars sagöi
Hólmfriöur, aö nú væru komnir
1184 silungar á land úr ánni, og
væriveiðinóöum aö batna. Litiö
slý er nú i ánni og sérstaklega
hefur veiðst vel eftir þvi sem
neðar dregur i ánni t.d. á móts
viö Brettingsstaöi. 18 stangir
eru I ánni og aö sögn Hólmfriöar
þá er töluvert laust af dögum,
en heill dagur kostar 5500 krón-
ur.
Geimfarinn búinn að fá
fjóra
Veiði i Laxá i Dölum hefur
gengið sæmilega, og að sögn
Erlu Siguröardóttur þá var Neil
Armstrong, geimfari meö
meiru, búinn aö fá fjóra væna
laxa i gær. Alls eru nú komnir
108 laxar á land úr ánni sem
mun vera svipað magn ög á
sama tima i fyrra, en heldur
munu hinir erlendu stangaveiöi-
menn vera linir viö veiðiskapinn
a.m.k. ef miðað er við ís-
lendinga sjálfa.
Nú munu vera komnir rúm-
lega 1200 laxar á land úr Laxá i
Aðaldal. Aö sögn Helgu Hall-
dórsdóttur ráöskonu i Veiðihús-
inu á Laxamýri þá hefur veiðin
gengiö ágætlega, og eru laxarn-
ir yfirleitt mjög vænir, þó aö
minna sé um mjög stóra laxa en
oft áður. Helga sagði að veðriö
hefði verið fremur leiöinlegt aö
undanförnu þó aö það heföi ver-
ið sæmilegt til veiða.
Litið um 2-3 punda sil-
ung i Mývatni
Veiðihorninu hefur borist
eftirfarandi grein um rannsókn-
ir Veiðimálastofnunarinnar á
Mývatni:
Rannsóknir Veiðimála-
stofnunarinnar á Mývatni I
sumar hafa sýnt aö mjög litið er
af tveggja og þriggja vetra
bleikju i vatninu, en þessir ár-
gangar veröa veiöanlegir sumr-
in ’79 og '80. Nokkuð viröist enn
vera eftir af fjögurra og fimm
vetra fiski, erl hann hefur borið
uppi þá góðu veiði sem verið
hefur i Mývatni frá i fyrrasum-
ar. bessi fiskur er nú mjög
vænn, eða 1-1,5 kg. aö þyngd. Aö
fengnum þessum niöurstööum
taldi fundur i Veiðifélagi Mý-
vatns aö rétt væri að friða þenn-
an fisk nú þegar, þannig aö þaö
sem eftir væri af honum gengi
óhindrað á riðstöövarnar i
haust. Samþykkt var aö stööva
allar veiðar i vatninu frá og með
25. júli, þó meö þeim undan-
tekningum aö hver bóndi má
leggja tvö net til heimilisnota
einu sinni i viku fyrir sinu landi.
Fyrirkomulag veiöanna i Mý-
vatni s.l. 2 ár hefur verið
þannig, aö ekki hefur veriö leyft
aö hafa fleiri en 160 net i vatninu
samtimis. bar áöur var áætlaö
aö oft heföu veriö 700-1000 net I
vatninu samtimis. Ástæöan fyr-
ir þvi aö svo litiö er af tveggja
og þriggja vetra bleikju nú, er
aö náttúrulegt klak heppnast
misvel milli ára. baö er ætlun
Veiðifélagsins aö efla klak og
eldisstarfsémi sina, og draga
með þvi úr sveiflum i árganga-
stærð.
Umsjónarmaöur silungsrann-
sókna i Mývatni er Jón
Kristjánsson, fiskifræðingur.
— ESE
Egill ólafsson: — Viö erum hingaö komnir tii aö láta list af okkur leiöa.... bóröur Arnason og Mr. Kay,
upptökustjóri I baksýn.
Þursar á Klambratúni annað kvöld
ESE — Annað kvöld kl. 20 stund-
vislega ætla liösmenn bursa-
flokksins að efna til útihljómleika
á Klambratúni í samráöi viö út-
gefanda sinn Fálkann h.f.
Eins og menn rekur vafalitiö
minni til þá hétu bursar því á
hljómleikum Stranglers á dögun-
um, að þeir myndu bráölega efna
til hljómleika og nú er þetta loforð
þeirra sem sagt i þann veginn
aö rætast.
A blaöamannafundi, sem hald-
inn var s.l. miðvikudag i Hljóörita
i Hafnarfirði gafst blaðamönnum
kostur á aö heyra efni af hinni
nýju plötu bursaflokksins sem
væntanleg er á markaö i septem-
ber, en auk þess drap Egill ólafs-
son, burs, nokkuð á þaö sem er á
döfinni hjá flokknum á næstunni.
Að loknum hljóm leikunum á
mánudag og eftir að upptökum á
plötu bursaflokksins lýkur, þá
eru uppi hugmyndir um það aö
bursaflokkurinn taki sig til og
haldi út á landsbyggöina til
uppákomuhalds og þá i þeim
byggðum landsins sem afskiptar
hafa verið menningarlegum sam-
komum á undanförnum árum. Til
þess aö þetta sé mögulegt þá ætla
bursar aö sækja um styrk til
opinberra yfirvalda. og eins ætlar
Fálkinn h.f. aö vera bursum — og
þá jafnframt landsbyggðarfólki
— innan handar í þessu efni og
greiöa fyrir þvi að af þessum
uppákomum geti orðið. Egill
Ólafsson gat þcss, að ef vel tii-
tækist þá yröi hér um meiri
háttar menningarviöburð að ræöa
og ekki væri það peninga-
spursmálið scm sæti i fyrirrúmi,
heidur leituðust bursar viö aö
veita eins mörgum af list sinni og
framast væri unnt, en hvort af
þessu yrði færi allt eftir viöbrögö-
um hins opinbera.
Fjölþykktarolía í hæsta gæðaflokki
Unifarm, nýja vélarolían frá ESSO er fjölþykktarolía *
hcesta gceðaflokki. Engin vélarolta, setn seld er á Islandi í dag
hefur fengið hcerri gceðaflokkun. API (American Petroleum
Institute) flokkar hanaAPI SE/CD, en SE er hcesta gceðaflokkun
fyrir hensínvélar og CD er hcesta gceðaflokkun fyrir diselvélar.
Flókinn ogdýrlageróþarfur
Unifarm er framleidd sérstaklega með bcendur t huga
þvt aðalkostur hennar er að hún ein getur komið t stað ncer
allra gömlu tegundanna sem bcendur nota nú á hinar ýmsu vélar
stnar. Með notkun Unifarm verður því óþarfi að reka stóran og
dýran lager hinna mismunandi olíutegunda. Og ennþá mikil-
vcegara: Engin hcetta er á að röng olíutegund sé notuð.
Eftirleiðis er þvt ekki vandi að velja rétta oliu af lag-
ernum. Aðeins ein kemur til greina, þ.e. Unifarm.
' UNIFARM
ein olíutegund istað margra
Olíufélagið hf.