Fréttablaðið - 07.09.2006, Síða 17
FIMMTUDAGUR 7. september 2006 17
AUSTURRÍKI, AP Í húsi austurríska
mannræningjans Wolfgang
Priklopil, sem fyrirfór sér eftir
að hin átján ára gamla Natascha
Kampusch
strauk úr haldi
hans, fannst
tölva sem er svo
gömul að
austurríska
lögreglan er í
mestu vandræð-
um með að
rannsaka gögn
úr henni.
Tölvan er af
gerðinni
Commodore 64, en slíkar tölvur
nutu mikilla vinsælda fyrir um
tveimur áratugum. Gerhard
Lang, yfirmaður í rannsóknar-
deild austurrísku lögreglunnar,
segir að erfitt verði að flytja
gögnin yfir í nútímatölvu án þess
að eitthvað glatist. - gb
Austurríski barnsræninginn:
Gömul tölva
veldur vanda
NATASCHA
KAMPUSCH
SPÁNN Spænska og franska
lögreglan gerðu þrjú tonn af
hreinu kókaíni upptæk af
seglskútu í síðustu viku. Skútan
er skráð í Bretlandi og fjallaði
breska ríkisútvarpið, BBC, um
málið.
Skútan var stöðvðuð við
strendur Kanaríeyja, en
smyglarar velja oft að flytja
eiturlyf til Evrópu í gegnum
Spán.
Verðmæti kókaínsins mun
vera um 18 milljarðar króna.
Ellefu manns, sem allir eru
taldir tilheyra sama eiturlyfja-
hringnum, hafa verið hand-
teknir í tengslum við málið. - smk
Kanaríeyjar:
Þrjú tonn af
kókaíni fundust
NEYÐARAÐSTOÐ Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra hefur
ákveðið að veita tuttugu milljón-
um króna í neyðar- og mannúðar-
aðstoð í Darfúr-héraði í Súdan.
Sex milljónir króna renna til
Hjálparstarfs kirkjunnar vegna
hjálparstarfs alþjóðasamtaka
kirkna, ATC, í héraðinu og
200.000 bandaríkjadalir fara til
neyðaraðstoðar á vegum Mat-
vælaáætlunar Sameinuðu
þjóðanna.
Samkvæmt áætlunum Samein-
uðu þjóðanna eru meira en tvær
milljónir manna heimilislausar
vegna ófriðar í landinu og fer
ástandið versnandi. - rsg
Utanríkisráðuneytið:
Tuttugu millj-
ónir til Darfúr
BARN Í DARFÚR Rúmlega tvær milljónir
manna eru heimilislausar í héraðinu.
SJÁVARÚTVEGUR Gamli slippurinn í Vestmannaeyjum verður lagður niður
um næstu mánaðamót og síðasta verbúðin þar í bæ mun heyra sögunni
til í nóvember næstkomandi.
Tré- og skipasmíðastöðin Stoð og stytta hefur verið með aðstöðu sína
við gamla slippinn en húsnæðið sem og slippsvæðið er í eigu Vinnslu-
stöðvarinnar. Stjórnendur hennar hafa nú ákveðið að rífa húsið við slipp-
inn og flytja þangað olíu- og lýsistanka fyrir bræðsluna, að sögn Sigurgeirs
Brynjars Kristgeirssonar framkvæmdastjóra. Verbúð Vinnslustöðvar-
innar hefur verið í húsnæðinu sem nú stendur til að rífa og hefur leigu-
samningum við íbúa verið sagt upp. Verða þeir komnir í annað húsnæði
fyrir í nóvember næstkomandi að sögn Sigurgeirs Brynjars. Einn íbúi þar
hefur verið á verbúð Vinnslustöðvarinnar í 30 ár.
Mikil starfsemi fór fram í gamla slippnum og segir Þórólfur Vil-
helmsson hjá Stoð og styttu að tugir manna hafi unnið þar um miðbik
síðustu aldar og fjölmörg skip verið smíðuð þar. Skipalyftan ehf. er hins
vegar stærsta slippstöðin í Vestmannaeyjum og eftir næstu mánaðamót
sú eina. - jse
Breytingar á svæði gamla slippsins í Vestmannaeyjum:
Gamla slippnum og verbúðinni lokað
GAMLI SLIPPURINN Húsið með græna þakið lengst til hægri verður rifið en þar í
kjallaranum hefur Tré- og skipasmíðastöðin Stoð og stytta verið með aðstöðu sína.
Verbúð Vinnslustöðvarinnar er á efri hæðum. ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Margverðlaunað
fyrir hollustu og bragðgæði
AÐEINS
0,7% FITA
Léttreykta kjúklingaáleggið frá
Holtakjúklingi er margverðlaunað
fyrir hollustu og bragðgæði.
Þú finnur vart fituminna álegg.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
5
2
1
8
Geimskoti frestað Bandaríska
geimferðastofnunin NASA frestaði
í gær að skjóta upp geimskutlunni
Atlantis eftir að vandkvæði komu í
ljós á raforkukerfi skutlunnar. Reynt
verður aftur næstu daga.
BANDARÍKIN