Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 79

Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 79
43 Kvikmyndin The Godfather er af mörgum talin vera einhver besta kvikmynd sem gerð hefur verið. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Mario Puzo um Cor- leone-fjölskylduna sem berst um völd og yfirráð í New York. Puzo skrifaði síðan sjálfur handritið að myndinni. The Godfather er erkitýpa allra mafíósamynda, upphaf- ið að öllu. SAGAN Mario Puzo byggði fjölskylduföðurinn Don Vito Corleone á tveimur þekktum mafíuforingjum, annars vegar glæpaforingj- anum Frank Costello sem réði ríkjum í New York og hins vegar Vito Genovese sem næstum tókst að ná undir sig öllu veldi mafíunnar í Bandaríkjunum. Puzo notaðist við minningabrot þeirra og eru nánast öll atvikin í myndinni byggð á lífsreynslu þessara manna. DON VITO CORLEONE Þó að Frank Sinatra hefði mikla andúð á þessari skáldsögu Marios Puzo grennslaðist hann fyrir um hvort Francis Ford Coppola hefði áhuga á að fá hann til liðs við sig. Tengsl Sinatra við mafíuna hafa lengi verið á milli tannanna á fólkinu í Hollywood og gekk Sinatra svo langt að bjóða Copp- ola aðstoð sína. Leikstjórinn vildi hins vegar ekki sjá Sinatra og taldi að einungis Marlon Brando eða Sir Laurence Olivier gætu túlkað Don Vito Corleone enda væru það bestu leikarar allra tíma. Á RÉTTUM STAÐ Al Pacino hlaut heimsfrægð fyrir túlkun sína á Michael Corleone en hann var langt frá því að vera efstur á óskalistanum. Francis Ford Coppola og yfirmaður Para- mount, Robert Evans, reyndu að fá þá Warren Beatty, Alain Delon og Burt Reynolds til að taka hlutverkið að sér. Þegar það gekk ekki vildu þeir fá Robert Redford til liðs við sig. Coppola hafði samt alltaf í huga ungan leikara sem hafði nýverið hlotið Tony-verðlaunin á Broadway, Al Pacino. Evans var ekki par hrifinn af Pacino og kallaði hann oft „dverginn“ í samtölum sínum við Coppola. Þegar Pacino frétti að Redford væri númer eitt réð hann sig í kvik- myndina The Gang That Couldn‘t Shoot Straight. Að endingu varð Paramount þó að láta undan kröfum Coppola og var Pacino keyptur frá Metro Goldwyn Meyer. Til gamans má geta þess að Robert De Niro hafði fengið lítið hlutverk í fyrstu Guðföðurmyndinni en gaf það frá sér til að taka að sér hlutverk Pacinos í The Gang. Þetta gerði honum kleift að snúa aftur til liðs við Coppola í öðrum hluta Guðföðurins en túlkun hans á hinum unga Vito Corleone skaut De Niro upp á stjörnuhimininnn. SKEMMTILEG STAÐREYND Sylvester Stallone reyndi að fá lítið hlutverk í myndinni en fékk ekki. Hann ákvað þess í stað að hæfileikar hans lægju í handritaskrifum og skrifaði handritið að kvikmyndinni The Lords of Flatbush þar sem hann fór sjálfur með aðalhlutverkið. Guðfaðir Coppola SÍGILD SNILLD The Godfather (1972): Fyrsta kvikmynd Francis Ford Coppola um Corleone-fjölskylduna er sígild snilld og er það skylda hvers kvikmyndaáhugamanns að hafa séð hana oftar en einu sinni. The Godfather: Part II (1974): Annar hlutinn var engu síðri en þar er brugðið upp minningarbrotum frá upp- hafsárum Vito Corleone sem Robert DeNiro túlkar stór- kostlega. Pulp Fiction (1994): Quentin Tarantino kom sér í hóp bestu kvikmyndaleikstjóra sögunnar með þessari snilldarkvikmynd þar sem hver stórleikurinn af fætur öðrum blómstrar. Handrit hans og Roger Avery er sann- kallaður gullmoli. 12 Angry Men (1957): Þessi tímalausa Sidney Lumet- mynd með þeim Jack Warden og Henry Fonda í aðal- hlutverkum er af mörgum talin vera einhver besta spennumynd allra tíma. Segir frá kviðdómanda sem reynir að sannfæra aðra kviðdómendur um að ekki sé allt með felldu í morðmáli. Cidade de Deus (2002): Snilldarverk Fernando Meirell- es um götubörnin í Rio er ótrúlega áhrifamikið og skilur áhorfendann eftir í áfalli yfir þeim lifnaðarhætti sem þar í hávegum hafður. The Silence of the Lambs (1991): Styrkur þessarar myndar liggur fyrst og fremst í rafmögnuðu sambandi Hannibal Lecter og Clarice Starling. Anthony Hopkins sýnir stjörnuleik. Fight Club (1999) David Fincher fékk þá Edward Norton og Brad Pitt til að lumbra hvor á öðrum í hrottalegri kvikmynd sem er ádeila á VISA og IKEA. Bestu glæpamyndirnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.