Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 6
6 25. september 2006 MÁNUDAGUR
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og mynd-
um. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
� Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
� Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
Mannleg samskipti skyndihjálp.
� Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhalds-
nám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“.
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS,
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00.
Heimasíða: www.menntun.is
Martha Jensdóttir
kennari.
Tollsk‡rsluger›
Hagn‡tt og ítarlegt námskei› í ger› tollsk‡rslna, um me›fer› allra
innflutningsskjala og allar helstu reglur er var›a innflutning.
Á námskei›inu er nota› n‡tt og sérútbúi› kennsluefni, kennslubók
og ítarefni. Einnig er kennt a› nota forrit í tollsk‡rsluger› í Navision
frá Maritech.
A› námskei›i loknu eiga flátttakendur a› geta;
• fiekkt fylgiskjöl me› vörusendingum og hva›a tilgangi flau fljóna
• Gert tollsk‡rslur og reikna› út a›flutningsgjöld
• Nota› tollskrána til a› tollflokka vörur
• Haft grunnskilning á fríverslunarsamningum og gildi fleirra
• fiekkt helstu reglur var›andi innflutning, innflutningstakamarkanir og undanflágur
Lengd: 21 kennslustund. Kennt er flri›judaga og fimmtudaga og er
hægt a› velja um morgunnámskei› kl. 8:30 - 12:00 e›a
kvöldnámskei› kl. 18:00 - 21:30. Hefst 28. september og l‡kur 10.
október. Ver›: kr. 28.000,- (Allt kennslu- og ítarefni innifali›)
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
STJÓRNMÁL Landssamband fram-
sóknarkvenna leggur áherslu á að
kynjahlutfall sé jafnt í fjórum
efstu sætum framboðslista flokks-
ins fyrir komandi alþingiskosn-
ingar. Fjögur efstu sætin hafi mest
um það að segja hverjir fái sæti á
Alþingi og mikilvægt sé að rétta
hlut kvenna á Alþingi. Þannig geti
konur haft áhrif á áframhaldandi
mótun samfélagsins. Þetta kemur
fram í ályktun frá sambandinu.
„Við viljum jafnt kynjahlutfall
í fjórum efstu sætunum vegna
þess að reynslan sýnir að konur
eru oftast neðar á listum og færri
í efstu sætunum en karlar,“ segir
Bryndís Bjarnarson, formaður
sambandsins.
„Það mætti túlka síðustu
alþingiskosningar þannig að
konum hafi fækkað þar því það
voru færri konur í fjórum efstu
sætunum heldur en karlar. Við
teljum mikilvægt að auka hlut
kvenna með þessu.“
Hún segist þó ekki telja konur
eiga undir högg að sækja í Fram-
sóknarflokknum. „Það er alls ekki
raunin. Samt sem áður þurfum við
að vera vakandi yfir hlut kvenna.
Við viljum með þessu vekja konur
til umhugsunar og hvetja þær til
þess að gefa kost á sér.“ - sþs
Landssamband framsóknarkvenna ályktar um kynjahlutfall á framboðslistum:
Jafnt hlutfall í efstu sætunum
BRYNDÍS BJARNARSON Segir mikilvægt
að auka hlut kvenna á Alþingi, reynslan
sýni að konur séu oftast neðar á listum
en karlar. Því leggi framsóknarkonur
áherslu á jafnt kynjahlutfall í fjórum
efstu sætunum á framboðslistum
flokksins.
STJÓRNMÁL Viðbrögð stjórnmála-
flokkanna við tillögum Samfylk-
ingar um lækkun matvöruverðs
eru neikvæð. Talsmenn flokkanna
segja niðurfellingu innflutnings-
tolla á einu og hálfu ári munu hafa
slæm áhrif á íslenskan landbúnað.
Einnig sé alls óvíst að breyting-
arnar skili sér í vasa neytenda.
Tillögur Samfylkingar, sem
birtar voru á laugardag, verða
lagðar fram á Alþingi í haust. Í
þeim felast meðal annars afnám
vörugjalds og tolla í áföngum auk
lækkunar virðisaukaskatts á mat.
„Mér finnst gæta mikillar ein-
földunar í málflutningi Samfylk-
ingarinnar í þessu máli, stað-
reyndin er sú að í matarkörfunni
eru íslenskar landbúnaðarvörur
ekki nema fimm til sjö prósent,“
segir Hjálmar Árnason, þing-
flokksformaður Framsóknar-
flokksins. „Ég veit ekki hvernig á
að lækka verðið um tvö hundruð
þúsund ef það á einungis að horfa
á landbúnað.“ Hann segir megin-
atriðið hjá Framsókn vera að
lækka matarverð en vera viss um
að aðgerðir skili sér í vasa neyt-
enda.
Arnbjörg Sveinsdóttir, for-
maður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, segist ekki sjá að það
geti gengið upp að fella niður inn-
flutningstolla á einu og hálfu ári.
Það sé of stuttur aðlögunartími
fyrir bændur. „Hins vegar er
margt annað í matvöruverðinu
sem má skoða, landbúnaðarfram-
leiðslan sem slík er það lítill hluti
af innkaupakörfu fjölskyldunnar.“
„Eigi að fella innflutningstolla
niður á einu og hálfu ári finnst
mér það ansi bratt,“ segir Guðjón
Arnar Kristjánsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins. „Það þarf
að ræða þetta við bændur og innan
bændasamtakanna hvernig svona
breytingar eiga að eiga sér stað.
Það er ekki hægt að gera þetta ein-
hliða og taka ekki tillit til bænda.“
Aö sögn Steingríms J. Sigfús-
sonar, formanni Vinstri grænna,
yrði íslenskum landbúnaði greitt
þungt högg með því að opna fyrir
óheftan og jafnvel niðurgreiddan
innflutning á einu og hálfu ári.
„Það er sýnd veiði en ekki gefin að
það skili sér allt til neytenda þó að
tollinum yrði létt af.“
salvar@frettabladid.is
Fáir sammála tillögu
Samfylkingarinnar
Talsmenn stjórnmálaflokkanna eru ekki sammála tillögu Samfylkingar um lækk-
un matvöruverðs. Þeir segja niðurfellingu innflutningstolla geta farið illa með
íslenskan landbúnað og efast um að breytingarnar skili sér í vasa neytenda.
MATVÖRUVERSLUN Formaður Vinstri grænna segir óvíst að ávinningur af afnámi inn-
flutningstolla myndi allur skila sér til neytenda. Íslenskum landbúnaði yrði greitt þungt
með opnun fyrir óheftan og jafnvel niðurgreiddan innflutning á einu og hálfu ári.
GUÐJÓN ARNAR
KRISTJÁNSSON
ARNBJÖRG
SVEINSDÓTTIR
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
HJÁLMAR
ÁRNASON
KJÖRKASSINN
Ert þú með yfirdrátt?
Já 45%
Nei 55%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Átt þú þér uppáhaldslið í
íslenskri knattspyrnu?
Segðu skoðun þína á visir.is
HEILBRIGÐISMÁL Læknafélagi
Íslands hafa verið gerðar upp skoð-
anir af hálfu Félags svæfingar- og
gjörgæslulækna. Gengið sé út frá
staðlausum stöfum þegar fullyrt sé
að Læknafélagið vilji tefja fram-
kvæmdir á uppbyggingu nýs sjúkra-
húss við Hringbraut. Þær fram-
kvæmdir hafi Læknafélagið stutt
opinberlega frá árinu 2000. Þetta
segir Sigurbjörn Sveinsson, for-
maður Læknafélags Íslands, um
yfirlýsingar svæfingar- og gjör-
gæslulæknafélagsins.
Í yfirlýsingu frá stjórn svæfing-
ar- og gjörgæslulæknafélagsins
segir að málflutningur Lækna-
félagsins á síðasta aðalfundi þess
þyki svo fjarstæðukenndur að ýmsir
félagsmanna hafi hvatt stjórnina að
leita leiða til að segja skilið við
Læknafélag Íslands þar sem ljóst sé
að þeir eigi enga samleið með öflum
sem þar virðist ráða ríkjum.
Sigurbjörn segir þessar harð-
orðu yfirlýsingar svæfingar- og
gjörgæslulæknafélagsins um
úrsögn einnig staðlausar þar sem
það sé sérgreinafélag lækna sem
eigi ekki aðild að Læknafélagi
Íslands. Því sé marklaust að tala um
úrsögn þess. „Þetta er dæmi um
mál þar sem hlutirnir hafa ekki
verið skoðaðir nægilega vel áður en
farið var af stað með yfirlýsingar,“
segir Sigurbjörn. - kdk
Formaður Læknafélags Íslands hrekur yfirlýsingar:
Félaginu gerðar upp skoðanir
SIGURBJÖRN SVEINSSON Formaður
Læknafélags Íslands segir svæfingar- og
gjörgæslulækna hafa gert Læknafélag-
inu upp skoðanir.
Jarðskjálfti við Bárðarbungu
Jarðskjálfti upp á 3,8 á Richter-kvarða
mældist norðan við Bárðarbungu um
klukkan 18:30 í gærkvöldi. Jarðskjálft-
inn átti upptök sín undir Dyngjujökli
og á annan tug eftirskjálfta fylgdu í
kjölfarið.
JARÐHRÆRINGAR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík kærði 24 ökumenn fyrir of
hraðan akstur á einni og hálfri
klukkustund í fyrrakvöldi,
aðallega á Hringbraut og Miklu-
braut. Það er langt yfir meðallagi.
Sá yngsti sem var stöðvaður er 17
ára og var aðeins rúm vika frá því
að hann tók bílpróf. Pilturinn
hafði því ekki fengið ökuskírtein-
ið í hendur og varð að framvísa
bráðabirgðaskírteini.
Töluvert hefur verið um
hraðakstur í borginni undanfarna
daga. Í fyrradag voru þrír fluttir
á sjúkrahús eftir ofsaakstur
sportbíls í Ártúnsbrekkunni. -kdk
Ekkert lát á hraðakstri:
Ók of hratt
viku eftir bílpróf
Eldur kviknaði í vélaskemmu á
Þorgautsstöðum í Hvítársíðu síðustu
nótt. Þegar slökkvilið kom á staðinn
var skemman að mestu brunnin.
Nokkrar vélar sem voru þar inni eyði-
lögðust og tjónið töluvert. Talið er að
eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni.
SLÖKKVILIÐ
Mikill eldur í vélaskemmu
WASHINGTON, AP Áhrifamikill
evangelískur predikari lýsti því
yfir í gær að fólkið í sínu kjör-
dæmi myndi leggja harðar að sér
við að koma í veg fyrir mögulegt
forsetakjör demókratans Hillary
Clintons en þótt Lúsifer sjálfur
færi í framboð.
Séra Jerry Falwell lét þessi
ummæli falla á „fundi um
gildismat“ með öðrum bandarísk-
um trúarleiðtogum. Á fundinum
var rætt um þau gildi og hefðir
sem áhersla yrði á í kosningabar-
áttunni. Aðstoðarmaður Falwells
gerði lítið úr ummælunum og sagði
prestinn ekki hafa ætlað að líkja
frú Clinton við djöfulinn. - kóþ
Evangelískur predikari:
Frekar Satan en
Hillary Clinton