Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 20
20 25. september 2006 MÁNUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR:
Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson
Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á
suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Fyrst örlítil saga úr hversdags-lífinu: Í liðinni viku flutti kunn-
ingi minn af landi brott. Konan
fékk vinnu við þróunarhjálp. Þau
ætla að dvelja í fjarlægu landi í
fjögur ár. Síðasta vikan í Reykja-
vík var nýtt til að ganga frá íbúð
og eignum, segja upp samningum
og áskriftum. Hann hringdi upp í
Efstaleiti og tilkynnti að fjölskyld-
an myndi hætta að borga afnota-
gjöldin af RÚV.
„Af hverju?“ var spurt á móti.
„Við erum að flytja burt af
landinu.“
„Nú? Og hvað verðiði lengi?“
„Fjögur ár.“
„Þú verður að sýna fram á það.“
„Hvernig þá?“
„Geturðu komið með farseðl-
ana?“
„Koma með farseðlana? Ég hef
nú eiginlega ekki tíma til þess. Við
erum að pakka allri búslóðinni og
leigjendurnir flytja inn á morg-
un.“
„Já, það er líka nóg að koma
bara með ljósrit af þeim.“
Hérna var kunninginn orðinn
pirraður og svaraði með örlitlum
þjósti:
„Það tekur nú alveg jafn mik-
inn tíma. Ég er búinn að henda
sjónvarpinu.“
„Hvar er það?“ spurði starfs-
maður innheimtudeildar Ríkisút-
varpsins.
„Það er í kerru hérna fyrir
utan. Ég get tekið mynd af því og
sent þér í tölvupósti.“
„Nei. Þú verður að koma með
sjónvarpið.“
„Ha? Koma með sjónvarpið?“
„Já. Þú verður að koma með
sjónvarpið hingað upp í Efsta-
leiti.“
Hér varð kunninginn kjaft-
stopp. Allt í einu leið honum eins
og hann væri að tala við Skömmt-
unarskrifstofu gjaldeyris árið
1956. Þá gall við í vinkonu þeirra
hjóna sem var að hjálpa til við að
bera kassa út úr íbúðinni: „Má ég
ekki bara eiga sjónvarpið?“ Kunn-
inginn spurði þá starfsmann RÚV:
„En ef ég gef sjónvarpið?“
„Já, þú getur gefið það. En þá
verð ég að fá kennitölu þess sem
fær það.“
Kunninginn gaf innheimtu-
deildinni upp kennitölu vinkonu
sinnar og málið var leyst.
Sama dag var NFS lokað. Hér
kristallaðist hið skringilega ástand
sem ríkir á fjölmiðlamarkaði
okkar. Á meðan ein stöð hefur slíkt
tröllatak á áskrifendum sínum að
þeir eru jafnvel eltir til útlanda af
innheimtumönnum hennar neyðast
aðrar til að loka vegna taprekstrar.
Ríkisútvarpið gefur ekkert eftir;
auglýsir sjálft sig jafn grimmt og
það auglýsir fyrir aðra, innheimtir
skylduáskrift af ofangreindri
hörku og tapar samt hundruðum
milljóna á ári hverju. En það er
ríkisverndað tap og því verður
aldrei neinum rásum lokað á RÚV.
Ég sé eftir NFS. Vissulega
fannst manni hugmyndin brött í
upphafi. Var ekki ráðlegra að leyfa
Talstöðinni að lifa í nokkur ár og
leyfa sjónvarpsstöðinni að þróast
upp úr henni? En stöðin varð þó
skemmtileg viðbót við markaðinn.
Eins og Róbert Marshall lýsti
fallega í umdeildu bréfi var stöðin
lýðræðislegur samfélagsfundur
þar sem þúsund raddir fengu að
hljóma. Ég hlustaði reyndar meira
en horfði og sé nú á bak félaga í
dagsins önn; þegar Talstöðin er
horfin úr loftinu er fátt eftir í
útvarpinu. Það var líka skemmti-
legur heimsborgarablær yfir því
að sjá alíslenska fréttaþuli flökta
á flatskjám í búðum og bönkum,
anddyrum sundlauga og hótela,
með allra nýjustu fyrirsagnir á
textafloti yfir skjáinn. En eftir á
að hyggja var þetta bara lúxus
sem við fengum að njóta í eitt ár.
Ég nota því tækifærið og segi takk
fyrir mig.
Líklega var NFS bara tíu árum
of snemma á ferð. Þar til þá verð-
ur Nýja fréttastofan Næsta frétta-
stöðin.
Stöðin fékk aldrei þann byr
sem hún átti skilið og var beinlínis
lögð í einelti af ákveðnum fjöl-
miðlum. Ég skildi aldrei hvernig
blaðamenn gátu verið á móti sjón-
varpsrás sem flutti þjóðfélags-
umræðu og fréttir allan sólar-
hringinn. Aldrei hef ég heyrt
nokkurn íþróttamann tala niðrandi
um íþróttarásina Sýn. Þórðargleð-
in sem heyrist nú úr herbúðum
sumra yfir látnum félaga lýsir
heldur ekki mikilli stórmennsku.
Víst voru margir skrýtnir þætt-
ir á NFS — heimatrúboð sjálfstæð-
ismanna á Hrafnaþingi föstudags
líklega besta dæmið — en þar
fengu líka málið afskiptir hópar
líkt og feministar, umhverfis-
verndarfólk, nýbúar og framsóknar-
menn. Og þar fengu líka andstæð-
ingar „Baugsmiðla“ endalaus
tækifæri til að tala gegn ljósinu
sem á þá skein. Þar var líka frétta-
skýringaþátturinn Kompás sem
setti ný viðmið í íslenskri þáttar-
gerð. Og þegar mikið lá við var
NFS á staðnum í beinni. Nýjabrum
sem neyddi gamlan risa á fætur.
NFS var gluggi að samtíman-
um, gluggi sem nú hefur verið
lokað. Íslenskt þjóðfélag er
fátækara að stöðinni genginni.
Blessuð sé minning hennar.
HALLGRÍMUR HELGASON
Í DAG | Fjölmiðlar
Portúgal
Tyrkland
Bókaðu strax á www.plusferdir.is
39.900kr.
Heitt TILBOÐ
Portúgal - Gisting á Alagoamar
Tyrkland - Gisting á Club Ilaida
Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100
Innifalið: Flug, flugvallarskattar,
gisting í 7 nætur og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
PL
U
33
82
9
08
/2
00
6
www.plusferdir.is
Umræðan
Vændi
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn frumvarp
um breytingar á kynferðisbrotakafla
hegningarlaga. Meðal breytinga er að
refsiákvæði um að stunda vændi er
afnumið og lagt er bann við að auglýsa
vændi. Báðar breytingarnar eru spor í
rétta átt en það vantar mikilvægasta
skrefið, sem er að gera kaup á vændi
refsivert. Skoðanir fólks eru skiptar um
hvaða leið er best að fara, hvort sem fólk
er hlynnt vændi eða ekki. Því miður líta sumir enn
svo á að vændi eigi að flokkast með frjálsum við-
skiptum manna á milli en slík afstaða viðheldur
völdum karlmanna yfir konum. Þau sem eru and-
snúin vændi greinir líka á um leiðir en kvenna-
hreyfingin hér á landi hefur sameinast um afdráttar-
lausa afstöðu, að fara sænsku leiðina.
Meirihluti þeirra sem eru seld í vændi og mansal
eru konur en flestir kaupenda eru karlar. Kynja-
vinkillinn er skýr þar sem karlmönnum er í raun
tryggður aðgangur að líkömum kvenna og þeirra
karla sem lenda neðst í valdapíramídan-
um. Afleiðingar vændis eru svipaðar
afleiðingum kynferðisofbeldis og skömm-
in og niðurlægingin er hvergi meiri en
hjá þeim sem eru í vændi. Þessar mann-
eskjur þarfnast félagslegra úrræða til að
komast út úr erfiðum aðstæðum. Rétt
eins og við refsum fólki ekki fyrir sjálfs-
morðstilraunir eða aðrar sjálfsmeiðingar
heldur réttum þeim hjálparhönd þurfum
við að koma eins fram við þau sem eru í
vændi. Hvað varðar kaupendur er staðan
allt önnur. Hver einasti kaupandi á að vita
að hann er að skaða aðra manneskju og
beita hana ofbeldi. Kaupandinn á að vita
um háa tíðni kynferðisofbeldis í fortíð vændis-
kvenna, tenginguna við fíkniefni, neyð og mansal.
Hann á einnig að vita að ef svo ólíklega vill til að
hann lendi á hinni hamingjusömu hóru þá tryggir
hann með kaupunum að hamingjan endist ekki lengi
þar sem afleiðingarnar verða á endanum eins og í
öðru kynferðisofbeldi. Það er því með ólíkindum að
samfélag sem kallar sinn samtíma upplýsingaöld
nýtir ekki þá þekkingu sem til er með því að gera
kaup á vændi refsivert.
Höfundur er talskona Femínistafélags Íslands.
Ofbeldi án refsingar
KATRÍN ANNA
GUÐMUNDSDÓTTIR
NFS (2005 – 2006)B
andaríska stórblaðið The New York Times greinir frá
því í gær að í trúnaðarskýrslu, sem hefur að geyma
samantekt á mati bandarískra leyniþjónustustofnana á
hættunni á hryðjuverkum, sé komizt afdráttarlaust að
þeirri niðurstöðu að innrásin í Írak og hernám landsins
hafi alið af sér heila nýja kynslóð íslamskra öfgamanna og hætt-
an á hryðjuverkum gegn bandarískum skotmörkum hafi aukizt til
muna síðan 11. september 2001.
Að sögn blaðsins var lokahönd lögð á þessa skýrslu í apríl-
mánuði síðastliðnum. Í henni er kveðið mun skýrar að orði en í
öðrum nýlegum gögnum Bandaríkjastjórnar um það hve þýðingar-
miklu hlutverki Íraksstríðið gegndi í að kynda undir útbreiðslu
íslamskrar öfgahugmyndafræði í heiminum á síðustu árum.
Í skýrslunni, sem ber titilinn „Þróun hryðjuverkastarfsemi í
heiminum og hvernig hún snertir Bandaríkin“, segir „að Íraksstríðið
hafi gert heildarhryðjuverkavandann verri,“ að því er New York
Times hefur eftir leyniþjónustumanni sem kom að gerð skýrslunn-
ar. Nafns hans er ekki getið enda um trúnaðarplagg að ræða, en
blaðið segist hafa rætt við fjölda manna sem annað hvort komu að
gerð skýrslunnar eða hafa lesið hana í sinni endanlegu mynd.
Þessar niðurstöður eru mjög í samræmi við mat evrópskra
leyniþjónustna, til dæmis birti danska öryggislögreglan skýrslu
á dögunum þar sem komizt er að sömu niðurstöðu. Þessar niður-
stöður koma líka fáum sem fylgjast með alþjóðamálum á óvart.
Þær eru hins vegar í augljósri mótsögn við þá mynd sem ríkis-
stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta hefur viljað halda fram
um afleiðingar innrásarinnar í Írak. Forsetinn og varnarmálaráð-
herrann Donald H. Rumsfeld hafa reynt að telja bandarískum
almenningi trú um að hernaðurinn í Írak sé mikilvægur áfangi í
„stríðinu gegn hryðjuverkum“ og að heimurinn sé öruggari eftir
innrásina en fyrir hana.
Í grein New York Times er einnig vitnað til nýlegrar skýrslu
óháðs, fjölþjóðlegs hóps sérfræðinga í hryðjuverkamálum,
Council on Global Terrorism, þar sem sérfræðingarnir gefa þeim
ráðstöfunum sem bandarísk stjórnvöld hafa gripið til á undan-
liðnum fimm árum í baráttunni gegn hryðjuverkaógn íslamskra
öfgamanna falleinkunnina „D plús“. Hópurinn ályktaði að „allar
vísbendingar bentu til að öfgahreyfingum í múslimalöndum sé að
vaxa fiskur um hrygg en ekki öfugt“.
Í skoðanakönnunum vestra hefur komið fram að æ fleiri Banda-
ríkjamenn telja hernaðinn í Írak ekki þjóna hagsmunum þeirra,
einmitt af þessari ástæðu: að hann beinlínis kyndi undir andúð á
Bandaríkjunum í löndum múslima og geri öfgahópum auðveldara
að fá fleiri menn til liðs við sig, úti um allan heim. Þetta er áhyggju-
efni fyrir Bush og samherja hans í Repúblikanaflokknum, nú þegar
innan við tveir mánuðir eru til kosninga til beggja deilda Banda-
ríkjaþings. Það kæmi því ekki óvart þótt ríkisstjórn Bush breytti
á næstunni um áherzlur varðandi hina kostnaðarsömu hernaðar-
útgerð í Írak. Að minnsta kosti er ljóst að Íraksmálin gefa höggstað
á Bush og stjórn hans sem gagnrýnendur hans og andstæðingar í
bandarískum stjórnmálum munu vafalaust geta nýtt sér í komandi
kosningum.
Bandarískar leyniþjónustustofnanir telja Íraks-
stríðið hafa aukið á hryðjuverkahættu:
Sýnir ógöngur
Íraksstefnu Bush
AUÐUNN ARNÓRSSON SKRIFAR
Leiftrandi samstarf
Það er ekki langt síðan Steingrímur J.
Sigfússon biðlaði um kosningasam-
starf til Samfylkingarinnar. Í kjölfarið
bauð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
honum og Guðjóni A. Kristjánssyni í
kaffispjall. Aukið samstarf var boðað.
Nú hefur Samfylkingin kynnt tillögur
um lækkun matvöruverðs, meðal
annars með afnámi innflutn-
ingstolla. Og hver skyldi vera
á móti því? Jú, Steingrímur J.
Sigfússon.
Fýsilegt samstarf
Samfylkingarfólk þarf ekki
að örvænta þótt Steingrím-
ur Joð sé á móti. Það á vísan
stuðning frá félögum í Frjáls-
hyggjufélaginu. Á aðal-
fundi félagsins var samþykkt ályktun
og skorað á stjórnvöld að halda áfram
á braut frelsisins. Stjórnmálamenn
eigi að „afnema virðisaukaskatt og
tolla, færa landbúnaðarkerfið úr viðj-
um ríkisafskipta og niðurgreiðslna.“
Einnig telur Frjálshyggjufélagið brýnt
að lækka skatta á launatekjur nær
þeim skatthlutföll-
um sem gilda
um fjár-
magnstekj-
ur og skatt
af hagnaði
fyrirtækja.
Vinstri leyniþjónusta
„Þegar ég fór, sem embættismað-
ur í forsætisráðuneytinu, með Geir
Hallgrímssyni, forsætisráðherra, til
Rússlands árið 1977 í fyrstu opinberu
heimsókn íslensks forsætisráðherra
þangað, tók háttsettur embættismað-
ur mig í einskonar einkatíma í kvöld-
verðarboði í Kreml til að fræða mig
um, hve ég hefði miklar ranghug-
myndir um Sovétríkin. Samtalið
bar þess glögg merki, að emb-
ættismaðurinn var vel upplýstur
um skoðanir mínar á öryggis-
málum og skrif,“ skrifar Björn
Bjarnason á vef sínn. Það hefur
ekki eingöngu verið „hægri“ leyni-
þjónusta starfrækt í landinu eftir
allt saman.
bjorgvin@frettabladid.is
Á meðan ein stöð hefur slíkt
tröllatak á áskrifendum sínum
að þeir eru jafnvel eltir til
útlanda af innheimtumönnum
hennar neyðast aðrar til að
loka vegna taprekstrar.