Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 25. september 2006 3
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Upphaflega er talið að húsamúsin
hafi komið frá Norður-Indlandi og
hafi í tímans rás borist um allan
heim með manninum. Talið er að
undirtegundir húsamúsa í Evr-
ópu séu tvær, annars vegar M.m.
musculus sem lifir í Skandinavíu,
nyrst á Jótlandsskaga og um alla
austanverða Evrópu og hins vegar
M.m. domesticus sem lifir á Bret-
landseyjum og víðar um Vestur- og
Suður-Evrópu. Nýlega var upp-
götvað að hún væri líka á Íslandi.
Liturinn á henni minnir fremur á
M.m. musculus.
Talið er að húsamúsin hafi borist
til landsins með landnámsmönnum.
Á stríðsárunum barst hingað
með hernum dökkt litarafbrigði, oft
nefnd „Bretamús“ eða svartamús
vegna þess hve dökk hún er.
Húsamúsin lifir í 6-8 mánuði.
Dýrin eru 6-12 cm að lengd án hala,
halinn er styttri en á hagamúsinni
eða um 5-10 cm langur Fullvaxin
dýr eru 10-25 g að þyngd. Með-
ganga fyrir got er 25 dagar og geta
4-13 ungar komið í einu goti. Þyngd
unga er 1-2 g.
Húsamúsin er gráleit á baki, ljós-
ari á kviði og litarskil ekki eins glögg
og hjá hagamúsinni. Þetta á við
um norrænu tegundina. Vestræna
húsamúsin er öll dekkri yfirlitum.
Hún er dökkgrá á baki og grá á
kviði. Þær tísta og er hátíðnin allt að
40.000 Hz.
Hagamýs eru með ljósari kvið,
stærri augu, lengri eyru og fram-
mjórra trýni. Ungar hagamýs eru
dekkri og er þeim stundum ruglað
saman við húsamýs.
Til að vera alveg öruggur er
best að greina dýrin á tönnunum.
Húsamúsin er með hak upp í slitflöt
á framtönnum í efri kjálka en haga-
músin ekki. Rætur fremsta jaxls eru
fjórar eða fimm hjá hagamús en
þrjár hjá húsamús. Það er sterkari
lykt af húsamúsunum.
Fáar rannsóknir hafa verið gerðar
hér á landi vegna sjúkdómahættu
frá húsamúsinni. Þó hafa 24 teg-
undir sníkjudýra fundist í húsamús-
um hér á landi.
Til dæmis nokkrar tegundir
einfrumunga, bandorma, þráðorma,
sníkjumaura, naglúsa og flær.
Flærnar leggjast báðar á menn og
bandormurinn (Hymenolepis nana)
getur lifað í fólki.
Meindýraeyðar sem þurfa að
eitra fyrir músum ættu að hafa allan
varann á til að verja sig fyrir biti.
Þegar eitrað er fyrir músum á alltaf
að eitra fyrir utan húsin.
Þetta á við um bæði hagamús
og húsamús. Setja skal eitur í beitu-
stöðvar til að verjast því að fá dýrin
inn í húsin en vera með músafellur,
músagildrur eða músahótelum sem
geta veitt allt að 15 mýs í einu. Það
á aldrei að eitra inni í húsum.
Allan forvarnarbúnað er hægt
að fá hjá meindýraeyðum og einnig
ráðleggingar við vandamálum
sem upp koma. Það er hægt að fá
músakítti til að fylla í göt og sprung-
ur en kíttið hefur þann eiginleika að
vera alltaf stamt og mjúkt og klístr-
ast því í tennur dýranna. Kíttið hefur
bæði lykt og bragð og dýrin koma
ekki nálægt því nema einu sinni.
Ein af ástæðum þess að þjófa-
bjalla (tínusbjalla) fer á kreik er oft
sú að mús hefur drepist í holrými
inn í vegg. Margir meindýraeyðar
eru með holsjár til að sjá inn í
holrými og sparar það fyrirhöfn og
peninga að fá fagmann á staðinn
til að meta málin ef grunur leikur
á slíku.
Það er nauðsynlegt að láta
greina mýs séu menn ekki vissir, því
það er ekki sama hvort um haga-
mús eða húsamús er að ræða þegar
fanga á þessi dýr.
Menn hafa líka ruglast á músum
og rottuungum. Músaungar geta
komist í gegnum allt að 4 mm gat
og rottuungar í gegnum allt að
8 mm göt. Látið fagmenn greina
dýrið, t.d. Náttúrufræðistofnun.
Heimildir:
Upplýsingar og fróðleikur um Meindýr
og varnir 2004, Guðmundur Óli Scheving
Íslensk Spendýr 2004, Páll Hersteinsson
Meindýr í húsum og gróðri 1944, Geir
Gígja
Húsamús
(M.m.musculus og M.m.domesticus) House Mouse
Uppgræðsla lands með birki
þarf ekki að vera flókin.
„Nú er rétti tíminn fyrir fólk að
safna birkifræi og sá því nánast
beint út aftur eftir að hafa þurrk-
að það í nokkra daga,“ segir Steinn
Kárason, garðyrkjufræðingur
með meiru. „Ef fólk á sumar-
bústaðalönd sem það vill græða
upp getur það víða náð sér í fræ.
Það þarf bara að velja falleg birki-
tré til undaneldis,“ heldur hann
áfram. Hann segir algengast að
fræinu sé forsáð í sérstakan reit
og plönturnar séu síðan færðar á
varanlega staði þegar þær hafa
komist svolítið á legg en hitt sé
líka auðvelt að sá beint á melana.
Steinn er mikill aðdáandi birkis og
áhugamaður um að birkið fái að
vaxa aftur á Íslandi eins og það
gerði í fornöld og hefur sjálfur
verið að vinna að því að endur-
heimta forna landnámsskóga
norður í Skagafirði, nánar tiltekið
Brimnesskóga milli Kolku og
Austari-Héraðsvatna.
Því er tilvalið að fá hjá honum
frekari leiðbeiningar um ræktunar-
starfið og þá fyrst frætínsluna.
„Best er fyrir fólk að fá sér inn-
kaupapoka, binda bönd í hankana
og hengja hann um hálsinn. Þá
hefur það báðar hendur fríar til að
athafna sig,“ byrjar hann lýsing-
una. „Könglarnir eru pínulítið
grænir núna og það þarf að breiða
úr þeim, á dagblað eða annað, og
eftirþroskinn tekur nokkra daga
inni í hlýju, kannski vikutíma. Þá
þorna könglarnir og losnar um
fræið milli fræhlífanna. Eftir það
er ekkert því til fyrirstöðu að fara
með fræið í sumarbústaðalandið
eða mela sem á að græða upp en
landið þarf að vera ógróið eða
hálfgróið því fræið þarf að ná
bindingu við jarðveginn. Því er
ekki hægt að sá því í gras. Gott er
að nota hrífu og raka fræið saman
við efsta jarðvegslagið og stíga
það svo niður í jarðveginn.“
Steinn bendir á í lokin að grund-
vallaratriði sé að uppgræðsluland-
ið sé friðað fyrir búpeningi. „Þar
sem um lítil svæði er að ræða, eins
og sumarbústaðalönd, getur verið
gaman að fást við að græða upp
mela með þessari aðferð.“
gun@frettabladid.is
Tími til frætínslu
Steinn vill klæða landið skógi milli fjalls og fjöru og hér er hann að tína birkifræ.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið gudmunduroli@simnet.is.
������������������
�������������������������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
06
���������������������������������������������������������������������������������
�����������
Svefnkollurinn er mjög þægilegur og einfaldur í
notkun. Microfiber áklæði sem er sérlega slitsterkt,
endingargott og hrindir frá sér óhreinindum.
Fáanlegir í mörgum litum. 5 sekúndur úr kolli í rúm.