Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 32

Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 32
 25. september 2006 MÁNUDAGUR12 HVAÐ ER... VERIÐ AÐ BYGGJA? Þrjú níu íbúða hús við Gullengi í Grafarvogi. Við Gullengi í Grafarvogi eru Íslenskir aðalverk- takar að byggja þrjú þriggja hæða fjölbýlishús með þremur íbúðum á hæð alls níu talsins. Fram- kvæmdir hófust í júní og reiknað er með að fyrstu íbúðirnar verði afhentar í apríl á næsta ári. Burðarkerfi húsanna eru steypt og útveggir að hluta forsteyptar samlokueiningar með steiningar- áferð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar og eru húsin því viðhaldslítil. Íbúðirnar eru 3, 4 og 5 herbergja og verður skil- að fullbúnum án gólfefna að undanskildum bað- herbergjum og þvottahúsgólfum sem eru flísa- lögð. Sérinngangur er inn í hverja íbúð og á teikningu er gert ráð fyrir leikvallaperlu og leik- tækjum. Staðsetning og hönnun húsanna tekur mið af þörfum barnafólks. Malbikuð bílastæði eru átján við hvert hús og hverri íbúð fylgir geymsla í kjallara og suðursval- ir. Grasflatir verða þökulagðar og trjágróðri plant- að við lóðarmörk og séreignahluta lóða á fyrstu hæð. Taka mið af þörfum barnafólks Átján malbikuð bílastæði verða við hvert hús. Íbúðirnar eru 3, 4 og 5 herbergja og verður skilað fullbúnum án gólfefna. Fr um LYNGBERG - 211, 6M2 EINBÝLISHÚS Fallegt 125m2 einbýlishús ásamt 45m2 fullbúinni íbúð í kjallara og 41,6m2 bílskúr með gryfju. � Húsið telur forstofu með nýjum skáp. Fallegt eldhús með fal- legri innréttingu. Mjög rúmgóð stofa og sjónvarpsstofa með nýju eikarparketi. Utangengt er á svalir úr sjónvarpsstofunni. 4 svefn- herbergi eru í húsinu og eru skápar í þeim öllum. Fallegt, flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu og sturtuklefa. Geymsla, þvotta- hús og búr. � Íbúðin í kjallaranum er 45m2 og skiptist í 2 svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Flísar á gólfum. Íbúðin í kjallaranum býður upp á góðar leigutekjur. � Garðurinn er uppgróinn og mjög fallegur með stórum sól- pöllum bæði á suður og norðuhlið. � Bílskúrinn er fullfrágenginn og er gryfja undir honum öllum. Verð: 27,9 m. SELVOGSBRAUT 145,1M2 ENDARAÐHÚS LAUST TIL AFHENDINGAR FLJÓTLEGA stórglæsilegt og mikið endurnýjað 112,1m2 endaraðhús ásamt 33m2 bílskúr miðsvæðis í Þorlákshöfn. � Í húsinu er forstofa með náttúrustein á gólfi og stórum skáp. Gengið er niður 2 þrep í mjög fallega, parketlagða stofu. 4 svefn- herbergi eru í húsinu og þar af eru 3 rúmgóð. � Stór, nýlegur skápur í hjónaherbergi. Baðherbergið er stór- glæsilegt með flísum á gólfi og veggjum, fallegri innréttingu úr kirsuberjavið og niðurgrafinni sturtu (gengið er niður 1 þrep). � Eldhúsið er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu. Flísalagt þvottahús og búr / geymsla. � Allar innihurðar og skápar eru nýlegar og mjög fallegar úr kirsuberjavið. � Húsið hefur verið endurnýjað að mjög miklu leyti. Nýjar hita- lagnir. � Nýtt járn á þaki, vindskeiðar og allt gler og gluggar. Bíl- skúrinn er fullfrágenginn. Verð: 19,8 m. HEINABERG - 174,6 M2 EINBÝLISHÚS Laust til afhendingar 133,8m2 einbýlishús ásamt 40,8m2 bílskúr, staðsett skammt frá leik- og grunnskóla. Í húsinu eru 4 svefnher- bergi, forstofa, eldhús með nýlegri innréttingu, parketlögð stofa og sjónvarpsstofa, flísalagt baðherbergi, rúmgott þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi. � Búið er að skipta um þak á húsinu og skipta um allt gler nema 2 rúður í svefnherbergjum. � Bílskúrinn er fullbúinn. Bílaplanið er malbikað. Verð: 19,9 m. HJALLABRAUT 157,9M2 ENDARAÐHÚS Huggulegt 121,5m2 raðhús ásamt 36,4m2 bílskúr með viðhaldsfrírri klæðningu, staðsett innst í rólegum botnlanga. Húsið er rétt við skóla og leikskóla og framan við stóran skrúðgarð. Í húsinu er flísalögð forstofa, hol m/skáp, eldhús með IKEA innrétt- ingu - flísar milli skápa, stofa þaðan sem utangengt er í garðinn. 4 svefnherbergi og eru skápar í 3. Flísalagt baðherbergi m/sturtu. Flísar og plastparket er á gólfum. Bílskúr er með gryfju og kjallara undir hluta. Skipt hefur verið um járn á þaki og glugga að hluta. Garðurinn er mjög fallegur og uppgróinn með sólpalli og heitum potti. Bílaplan er steypt. Verð: 19,5 m. FINNSBÚÐ - 167M2 RAÐHÚS Laus til afhendingar fljótlega, mjög falleg og vel staðsett 2 end- araðhús og 1 miðjuraðhús, rétt við skóla, leikskóla og íþróttamið- stöð. Húsin afhendast fokheld að innan og fullfrágengin að utan. Í húsunum skiptast skv. teikningum í stofu og eldhús í opnu rými, 4 svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og þvottahús. Í bílskúrnum er gert ráð fyrir góðri geymslu í endanum. Húsin eru klædd með við- haldsfrírri Duropal klæðningu. Fallegir gluggar og hurðir. Hitalagnir eru í öllum gólfum. Hægt er að fá húsin afhent á fleiri byggingar- stigum. Nánari upplýsingar og teikningar á www.eignin.is og hjá Fasteignasölu Suðurlands. Verð: 17,2 m á endaraðhúsunum og 16,4 m á miðjuraðhúsinu. BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA 483 3424 Guðbjörg Heimisdóttir, löggildur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali FASTEIGNIR Í ÞORLÁKSHÖFN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.