Fréttablaðið - 25.09.2006, Page 43
MÁNUDAGUR 25. september 2006 23
Fasteignasalan Heimili flutti
nýlega í nýtt húsnæði í Síðu-
múla 13.
„Við stofnuðum þetta fyrirtæki
árið 2002 í Skipholti 29a. Í upp-
hafi voru bara tveir starfsmenn.
Við vorum að flytja núna upp í
Síðumúla 13 og erum núna átta,“
segir Finnbogi Hilmarsson, einn
af þremur eigendum fasteigna-
sölunnar. Hann segir gamla hús-
næðið einfaldlega hafa verið of
lítið en hið nýja sé stórglæsilegt.
„Það er ekki hægt að bera það
saman, það er miklu rýmra um
okkur enda löngu tímabært að
flytja. Svo er þetta húsnæði hér
mjög vel sniðið að starfseminni,“
segir Finnbogi og útskýrir að í
fasteignasölum verði að vera
jafnvægi milli lokaðra og opinna
rýma. „Það þurfa að vera góðar
skrifstofur því við erum jú að
fjalla um aleigu fólks í hvert
skipti sem það er hjá okkur. Það
vill geta sest niður og lokað að
sér,“ útskýrir Finnbogi og bendir
jafnframt á að fasteignasalan
Gloria Casa verði undir sama
þaki og Heimili. Fasteignasöl-
urnar hafa átt í góðu samstarfi
undanfarin ár þannig að upplagt
þótti að samnýta hið nýja hús-
næði og hefur Gloria Casa því
flutt úr Álfheimunum.
Þrátt fyrir að Heimili hafi
vaxið og dafnað síðastliðin fjög-
ur ár viðurkennir Finnbogi að
verulega hafi dregið saman á
fasteignamarkaðnum að undan-
förnu. „Um leið og bankarnir
fóru að draga saman lánin fann
maður fyrir því að fór að hægja á
öllu saman og þetta er búið að
gerast í allt þetta ár,“ segir Finn-
bogi en vill þó trúa því að mark-
aðurinn rétti úr kútnum enda sé
þetta ekki eðlileg staða.
„Framboðið er orðið mikið,
fólk gefur sér meiri tíma því það
er úr meiru að velja,“ segir Finn-
bogi en bendir á að ósanngjarnt
sé að miða við markaðinn eins og
hann var fyrir tveimur árum
þegar fólk stökk til og vildi næst-
um kaupa óséð. „Seljendur eiga
erfitt með að skilja að það taki
lengri tíma,“ segir Finnbogi.
Hann líkir markaðnum nú við
þann á árunum 1993-1995 þegar
mikið var af eignum á markaði.
Finnbogi segir erfiðast að
selja minnstu eignirnar núna
enda kaupi þær helst fólk sem er
að fjárfesta í sinni fyrstu eign.
„Það var þó þannig áður að þú
áttir rétt á 90 prósenta láni frá
Íbúðalánasjóði áður en bankarn-
ir komu inn á markaðinn. Það er
ekki í boði lengur í dag. Fólk sem
er að koma úr skóla hefur eðli-
lega ekki safnað miklum pening-
um og það á ekki auðvelt með að
kaupa sína fyrstu íbúð,“ segir
Finnbogi og vill meina að til að
kaupa íbúð þurfi að eiga að lág-
marki fimm milljónir. „Unga
fólkið hefur ekki marga kosti
aðra en að fá veð hjá mömmu og
pabba.“
Heimili fær nýtt heimili
Fasteignasalan Heimili hefur flutt í Síðumúla en þar verður einnig til húsa fasteignasalan Gloria Casa. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
EIGNAVAL 585 9999
www.eignaval.is
félag fasteignasala
Sigurður Óskarsson
lögg. fasteignasali
Vigfús Hilmarsson
sölumaður, s. 698-1991
Edgardo Solar
sölumaður, s. 865-2214
Sigurður Kristinsson
sölumaður, s. 844-678
SUÐURLANDABRAUT 16 • 108 REYKAJAVÍK • SÍMI 585 9999 • FAX 585 9998
LÆKJARFIT
GBÆ - 2JA HERB.
Góð 74,5 fm íb. m. sérinng., 2 bílast. og
sólpall. V: 15,8 mkr.
KELDUHVAMMUR
HFJ. - 3JA HERB.
Falleg 86,7 fm risíbúð á góðum stað í
Hafnarfirði. Nýtt á skrá.
NJÁLSGATA
ÍB. + BYGGINGARÉTTUR
Góð 50,6 fm íbúð með byggingarétt
(+70fm). V: 14,7 mkr.
FJÓLUVELLIR
NÝBYGGINGAR
Þrjú 244 fm raðhús eða "keðjuhús" í
Hfj. m. útsýni yfir Hraunið.
V: frá 30,4 mkr.
KRUMMAHÓLAR
3JA HERB.
Góð 97 fm íbúð m. verönd og stæði í
bílageymslu. V: 13,5 mkr.
SKIPHOLT
3JA-4RA HERB.
Falleg 122,7 fm 2ja hæða penthouse-
íbúð í lyftublokk. V: 35,8 mkr.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG - EINBÝLI
Glæsilegt 134,8 fm 6 herb. hús m. garð á 2. hæðum í 101 Rvk. V: 40 mkr.
VESTURGATA - 3JA HERB.
Falleg og rúmgóð 73 fm íbúð á 2. hæð í 101 Rvík. V: 17,9 m.
VÆTTABORGIR - RAÐHÚS (4,15%)
Glæsilegt 161 fm 5 herberja raðhús m. bílskúr í Grafarvogi. V: 38,9 m
ÞVERHOLT MOSF. - 4RA HERB.
Góð 114,4 fm íbúð m. glæsilegt útsýni og suðursvölum. V: 21 mkr.
LÓMASALIR - 3JA HERB. (4,15%)
Glæsileg 3ja herb. 91 fm íb. í lyftublokk í Kópavogi. V. 22,9 m. (4609)
HLAÐBREKKA - EINBÝLISHÚS
169 fm einbýli með góðum garði og bílskúr í þessu vinsæla hverfi í Kópavogi.
V. 41 millj.
F
ru
m
ÞÍN EIGN · ÞITT VAL
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8