Fréttablaðið - 25.09.2006, Page 68
25. september 2006 MÁNUDAGUR28
Nýverið var opnuð ný snyrtivöru-
búð í Kringlunni sem ber nafnið
Make Up Store. Um er að ræða
hágæða snyrtivörur fyrir fagfólk
jafnt og áhugamenn í förðun og
snyrtivörum. Þetta er fyrsta búð
sinnar tegundar á Íslandi en versl-
anirnar eru yfir 80 talsins í 12
löndum í heimunum.
Eigandi búðarinnar er förðunar-
meistarinn Margrét Jónasardóttir
og voru það alls 150 manns sem
mættu í opnunarpartíið á fimmtu-
daginn. Búðin er stílhrein og
aðgengileg í alla staði og stendur
fagfólk fyrir aftan búðarborðið til
að veita sem besta þjónustu.
Kampavín og plötusnúður var á
svæðinu og virtist fólki líka vel
við þessa nýju viðbót á snyrtivöru-
markaðinn. -áp
Margmenni í Make Up Store
HRESSAR Sara Dís Hjaltested og María
Björg Sverrisdóttir voru ánægðar með
búðina.
EIGANDINN SJÁLFUR Margrét Jónasar-
dóttir var einbeitt á svip að kynna
vöruna fyrir viðskiptavinum.
FÖRÐUNARNEMAR Hafdís Hinriksdótt-
ir, Þóra Magnea Magnúsdóttir og Eva
Hrönn Hlynsdóttir eiga það sameigin-
legt að vera við nám í Emm school of
Make up og því forvitnar um þessa nýju
tegund snyrtivara.
NÓG AÐ SJÁ Jóhanna Gilsdóttir, María Sveinsdóttir og Guðrún Hjörleifsdóttir
skemmtu sér vel í boðinu enda nóg af fallegu dóti að skoða. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Nú er tískuvikunni í New York
lokið og aðalhönnuðir Bandaríkj-
anna búnir að stíga á stokk og sýna
hverju búast má við í tískunni
næsta vor og sumar. Við tókum út
nokkra af frægustu hönnuðunum
sem sýndu á tískuvikunni og eru
þekktir fyrir að leggja línurnar
fyrir aðra minni spámenn í tísku-
heiminum. Hér er brot af því besta
frá Donnu Karan, Ralph Lauren,
Diesel og Zac Posen.
Brot af því besta í New York
DROTTNINGIN Donna Karan er einn vin-
sælasti hönnuður Bandaríkjanna og hér
gengur fram tískupallinn í lok sýningar í
eigin fatnaði.
SNILLINGUR Zac Pose er margt til lista
lagt og var lína hans fyrir næsta vor og
sumar með eindæmum falleg.
SAMKVÆMISKLÆÐNAÐUR Gull og glans
frá toppi til táar frá Ralph Lauren. Skemmtilegt
hvernig klúturinn er notaður utan um hausinn.
HÁTT MITTI
Diesel kynnti
til sögunnar
fullt af nýjum
sniðum fyrir
næsta sumar
og meðal ann-
ars margar buxur
með mjög háu mitti.
Kvenlegt og þægilegt.
GALLAKÁPA
Ermalaus hettu
kjóll úr galla-
efni frá Diesel
við gullitaðar
leggings. Mikð
var um gull
og hvítt í
nýjustu
línunni frá
Diesel.
RAUTT RAUTT RAUTT Klæðskera-
saumaður kjóll frá Zac Posen
með mörgum litlum smáatrið-
um og tilraunakenndu sniði.
Tónlistarmaðurinn Toggi gefur í
dag út sína fyrstu plötu, sem nefn-
ist Puppy. Platan er uppfull af hug-
ljúfu gítarpoppi og ljóst að Toggi
hefur vandað vel til verks.
„Þetta var draumur þegar ég
var krakki og svo hætti það nú. Ég
fattaði það að ég gat ekki sungið og
kunni ekki heldur á hljóðfæri. Svo
einhvern veginn kom það. Ég eign-
aðist gítar og gat allt í einu sung-
ið,“ segir Toggi, sem er 27 ára. „Ég
lærði þrjú grip upprunalega og hef
aldrei verið sérstaklega mikill
gítarpervert og tek engin sóló. Ég
fór bara að glamra og gat raulað
með og núna spila ég aðallega lög
eftir sjálfan mig,“ segir hann.
Uppáhaldshljómsveit Togga er
The Smiths auk þess sem Rufus
Wainwright og Bítlarnir eru í mikl-
um metum. Segir Toggi að The
Smiths hafi haft sérstaklega mikil
áhrif á textagerðina á plötunni.
Toggi mun spila á Iceland
Airwaves-hátíðinni í október en
hann hefur ekkert spilað opinber-
lega í tæp tvö ár. Auk þess að koma
fram á tónleikum vonast hann til
að geta hafið upptökur á nýrri plötu
á næstunni, enda finnst honum
heldur skemmtilegra að búa til tón-
list en að flytja hana opinberlega.
-fb
Hugljúft gítarpopp frá Togga
TOGGI Tónlistarmaðurinn Toggi
hefur gefið út sína fyrstu plötu.
�����������
���� ����
Skoðið
öll tilboðin á:
www.sminor.is
Nóatúni 4
Sími 520 3000AT
A
R
N
A
/
S
T
ÍN
A
M
A
J
A
/
F
ÍT
Verið ávallt
velkomin
í heimsókn
GULUR
ER HINN
NÝI LITUR
SUMARSINS
Kjóll úr silki
frá Donnu
Karan með
víðu sniði.