Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.09.2006, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 25.09.2006, Qupperneq 72
32 25. september 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Tímabilið í fótboltanum í sumar hefur verið lyginni líkast fyrir KR-inginn Sigþór Júlíusson. Hann hóf sumarið í herbúðum Völsungs á Húsavík og spilaði þar sjö leiki áður en hann skipti yfir í KR, rétt áður en fresturinn fyrir leikmannaskipti rann út hinn 1. ágúst sl. Liði Völsungs gekk bölv- anlega í upphafi leiktíðar þegar Sigþór átti við meiðsli að stríða og gat ekki leikið með. Völsungur fékk aðeins tvö stig úr fyrstu fjór- um leikjum sumarsins auk þess sem liðið féll úr VISA-bikarnum í fyrstu umferð. En um leið og Sig- þór varð leikfær byrjaði liðið að hala inn stig. Það sama má segja um tímabilið hjá KR, sem var mikil þrautaganga framan af sumri. En síðan Sigþór kom til liðsins hefur verið um nánast sam- fellda sigurgöngu að ræða og KR hefur ekki tapað leik. Fréttablaðinu lá forvitni á að vita hvort Sigþór væri virkilega svona rosalega góður í fótbolta. „Nei, það fer fjarri því,“ sagði Sig- þór og hló þegar Fréttablaðið ræddi við hann. „Ég held að það hafi verið ákveðin tímamót hjá þessu KR-liði þegar ég kem inn í það. Það var markvisst verið að vinna í því að breyta um taktík innan liðsins þar sem aukin áhersla var lögð á varnarleikinn. Það skipulag hefur virkað mjög vel og ég var svo heppinn að koma inn í liðið þegar þessi breyting varð,“ segir Sigþór. Það er með ólíkindum að rýna í meðfylgjandi tölfræði sem sýnir annars vegar árangur Völsungs í sumar - með og án Sigþórs, og hins vegar árangur KR í sumar - með og án Sigþórs. Hún sýnir svart á hvítu að Sigþóri fylgir mikil vel- gengi og það ber svo við að Sigþór sjálfur hefur aðeins tapað einum leik í sumar, gegn Reyni Sand- gerði hinn 29. júlí sl. Þá tapaði Völsungur 1-0 í leik liðanna í 2. deildinni. „Þetta hefur verið gott sumar fyrir mig, ég get ekki neitað því. Mjög athyglisvert allavega,“ segir Sigþór og vill alls ekki gera mikið úr sínum þætti. Maður gat kannski komið með einhverja ferska vinda inn í liðið en annars á ég alls ekki meiri þátt í þessum árangri frekar en aðrir leikmenn liðsins,“ útskýr- ir Sigþór, sem hefur þó ekki náð að skora í sumar. Hann lagði hins vegar upp aragrúa marka í þeim leikjum sem hann spilaði fyrir Völsung, en þar lék hann oftast á hægri vængnum. Teitur Þórðarson, þjálfari KR, segir Sigþór hafa verið mikinn happafeng fyrir sitt lið. „Sigþór kom mjög sterkur inn í þetta og hefur átt stóran þátt í bættum varnarleik okkar. Hann hefur gert mjög mikið fyrir okkar lið,“ segir Teitur, sem hefur kosið að láta Sig- þór spila í stöðu hægri bakvarðar. Það hefur reynst erfitt fyrir Sigþór að slíta sig frá takkaskón- um en hann komst ansi nærri því að leggja þá á hilluna síðasta vetur vegna anna í vinnu. Sigþór kveðst ekki vera búinn að taka ákvörðun um hvað hann gerir á næstu leik- tíð. „Ég mun fara yfir mín mál þegar tímabilið er búið en ég á frekar von á því að vera áfram.“ vignir@frettabladid.is Ég er ekki svona rosalega góður Síðan Sigþór Júlíusson kom til KR frá Völsungi hinn 31. júlí sl. hefur verið mikill uppgangur á spila- mennsku liðsins. Liðið hefur unnið sex leiki, gert tvö jafntefli og engum leik tapað. Tölfræðin sýnir einnig að liði Völsungs gekk mun verr þegar Sigþórs naut ekki við. Ég er ekki svona góður, segir leikmaðurinn sjálfur. SIGURVEGARI Sigþór Júlíusson hefur aðeins tapað einum leik í sumar og svo virðist sem það muni miklu að hafa Sigþór í liðinu, hvort sem það heitir Völsungur eða KR. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÓTRÚLEGUR ÁRANGUR SIGÞÓRS Í SUMAR Árangur Völsungs í deild án Sigþórs: leikir U J T Markatala Stig 11 2 2 7 10-25 8 Völsungur tapaði einnig 3-0 fyrir Tindastól í fyrstu umferð VISA-bikarsins. Sigþór lék ekki með. Árangur Völs. í deild með Sigþóri: leikir U J T Markatala Stig 7 4 2 1 14-7 14 Árangur KR í deild án Sigþórs: leikir U J T Markatala Stig 11 4 1 6 10-22* 13 *KR hélt tvisvar hreinu. Árangur KR í deild með Sigþóri: leikir U J T Markatala Stig 7 5 2 0 13-5* 17 *KR hélt fjórum sinnum hreinu. KR vann einnig 1-0 sigur á Þrótti í undan- úrslitum VISA-bikarsins. Sigþór kom inn á sem varamaður í sínum fyrsta leik með KR, gegn Fylki hinn 31. júlí. Í öðrum leikjum hefur Sigþór alltaf verið í byrjunarliðinu. FÓTBOLTI Ívar Ingimarsson fær 7 í einkunn hjá Sky Sports frétta- stöðinni fyrir frammistöðu sína í jafnteflisleiknum gegn Manchest- er United á laugardaginn og Brynjar Björn Gunnarsson, sem kom inn á sem varamaður þegar um 20 mínútur voru eftir, fær 5 í einkunn. Enn fremur segir í umfjöllun að Ívar hafi verið mjög öflugur í vörninni ásamt félaga sínum Ibrahima Sonko en að Brynjar Björn hafi verið „allt í lagi“ eins og það segir orðrétt. „Við erum bara sáttir við að hafa fengið annað stigið. Liðið er nú komið með 10 stig eftir sex leiki sem við teljum vel viðun- andi,“ sagði Brynjar Björn við Fréttablaðið í gær. Því fer fjarri að leikmenn Reading fái frí eftir erfiðan leik gegn Manchester United því Brynjar var nýkominn af æfingu þegar Fréttablaðið ræddi við hann. „Það var mjög skemmtilegt að taka þátt í þessum leik og ég held að ég geti alveg viðurkennt að Man. Utd sé besta liðið sem við höfum mætt það sem af er,“ sagði Brynjar. „Það var gaman að fá að spreyta sig gegn öllum þessum stjörnum í liðinu en það var erfið- ast að eiga við Ronaldo og Roon- ey. Þeir eru gríðarlega flinkir og Ronaldo skoraði gott mark en mér fannst við samt ná að halda þeim niðri að mestu.“ Það vakti líklega athygli íslenskra sjónvarpsáhorfenda að þegar Brynjar Björn kom inn á um miðjan síðari hálfleik fékk hann leiðbeiningar frá stjóranum Steve Coppell á miða þar sem þeir stóðu við hliðarlínuna. „Þetta er nú ekki neitt sem hann gerir venjulega. Þetta voru bara nokk- ur taktísk skilaboð sem ég átti að koma áfram til annarra í liðinu, hver átti að dekka hvern í föstum leikatriðum,“ segir Brynjar Björn. Sky segir Hermann Hreiðars- son ekki hafa verið upp á sitt besta í 2-0 tapi Charlton gegn Aston Villa en fær samt 6 í ein- kunn og þá fékk Heiðar Helguson 5 í einkunn eftir að hafa komið inn á undir lokin í leik Fulham og Chelsea. Segir Sky að Íslending- urinn hafi litlu náð að breyta í sókn Fulham. - vig Ánægja í Reading með stigið gegn Man. Utd: Það var erfiðast að eiga við Ronaldo og Rooney HAFA KOMIÐ Á ÓVART Fyrir utan Portsmouth er Reading líklega mesta spútnikliðið það sem af er leiktíðinni í enska boltanum og á laugardag náði liðið jafntefli gegn Manchester United. Hér sjást leikmenn liðsins fagna marki Kevin Doyle sem hann skoraði úr vítaspyrnu í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÓTBOLTI Hreinn Hringsson, fyrirliði knattspyrnuliðs KA, er mjög óánægður með spila- mennsku liðsins í sumar og segir árangurinn á tímabilinu vera óásættanlegan. Þetta segir hann í viðtali við heimasíðu KA. „Sumarið fótboltalega séð var engan veginn nógu gott og árangur sumarsins þar af leiðandi slakur og óásættanleg- ur,“ segir Hreinn meðal annars en bætir því við að væntingarnar til liðsins hafi ef til vill verið of miklar, enda hafi miklar breyt- ingar verið gerðar á liðinu frá því í fyrra. KA átti í miklu basli í 1. deildinni í allt sumar en fyrir tímabilið var því spáð að liðið yrði í efri hluta deildarinnar. KA bjargaði sér frá falli með góðum úrslitum í síðustu leikjum sumarsins. Þess má einnig geta að á heimasíðu KA er könnun þar sem spurt er um sumarið í fótboltanum. Þegar 87 manns höfðu kosið höfðu 37% svarenda sagst „alls ekki ánægðir.“ - vig Fyrirliði KA í fótbolta: Árangurinn var óásættanlegur > Ræður Fram nýjan þjálfara í dag? „Við erum alveg rólegir yfir þessu, það virðist allavega vera mikill áhugi á þessu starfi,“ sagði Brynjar Jóhannes- son, framkvæmdastjóri knattspyrnu- deildar Fram, við Fréttablaðið í gær, spurður um þjálfaramál félagsins. Ákveðið var að framlengja ekki samning- inn við Ásgeir Elíasson sem stýrði Fram til sigurs í 1. deildinni í sumar og er verið að leita að manni til að stýra liðinu í Lands- bankadeildinni á næsta ári. „Það mun vonandi eitthvað skýrast á mánudaginn varðandi þessi mál,“ sagði Brynjar í gær og staðfesti að félagið væri með þrjá þjálfara í sigtinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru þeir Ólafur Þórðarson og Guðjón Þórðarson tveir af þeim og þá hafa nöfn Ásgeirs Sigurvinssonar og Loga Ólafssonar heyrst í vangaveltum um hver sá þriðji gæti verið. Nýliðin helgi var í meira lagi viðburðarík fyrir sóknarmanninn Marel Baldvinsson, sem nú leikur með Molde í Noregi. Á laugardag varð ljóst að hann væri markakóngur Landsbankadeildar- innar í ár þrátt fyrir að hafa ekki leikið með Blikum í síðustu fimm leikjum þeirra í deildinni. Enn fremur tryggði liðið sér 5. sæti deildarinnar með sigri á Kefla- vík, sem er vel viðunandi árangur fyrir nýliða. Í gær opnaði Marel síðan markareikning sinn fyrir Molde þegar hann skoraði í sigurleik liðsins gegn Lilleström. „Já, þetta er búin að vera mjög skemmtileg helgi, þakka þér fyrir,“ sagði Marel þegar Fréttablað- ið ræddi við hann í gær, eðlilega í sínu besta skapi. Marel segist ekki hafa átt von á því að hreppa gullskóinn en viðurkennir þó að sú hugsun hafi blundað í sér þegar hann fór til Noregs. „Ég átti nú von á því einhverjir myndu ná mér áður en yfir lyki. En það er auðvitað mjög gaman að fá loksins gullskó því það er lítið um þá uppi á hillu heima hjá mér,“ sagði Marel en bætti því við að hann ætti ekki von á því að fljúga heim til að taka á móti viðurkenningunni. „Það er þó aldrei að vita nema að maður láti verða af því ef tækifæri gefst.“ Marel skoraði alls 11 mörk í 13 leikjum með Blikum, en þangað kom hann í vor eftir að hafa verið í herbúðum Lokeren í Belgíu síð- ustu ár. Þar barðist Marel við erfið meiðsli sem hafa enn sem komið er ekki látið á sér kræla á ný. Gæfan hefur ekki aðeins snúist Marel í vil því í þeim þremur leikjum sem hann hefur spilað fyrir Molde hefur liðið loksins náð að hala inn stig. Nánar tiltekið hefur liðið hlotið dýrmæt sjö stig sem hafa komið liðinu úr mestu fall- hættunni í norsku úrvalsdeildinni. „Það yrði náttúrlega draumurinn að enda sumarið á því að aðstoða Molde við að skríða enn frekar upp töfluna. Svo yrði það bara bónus ef ég næði að setja nokkur mörk í viðbót.“ LANDSLIÐSMAÐURINN MAREL BALDVINSSON: MARKAKÓNGUR LANDSBANKADEILDARINNAR ÞETTA SUMARIÐ Átti nú von á að aðrir myndu ná mér FÓTBOLTI Íslenskir leikmenn settu mark sitt á norska boltann um helgina en Marel Baldvinsson og Veigar Páll Gunnarsson voru báðir á skotskónum. Marel opnaði markareikning sinn hjá Molde með því að skora fyrra mark liðsins í 2-0 sigri á Lilleström. Sigurinn var afar dýrmætur því með honum kom Molde sér af mesta fallsvæðinu. Veigar Páll heldur áfram að spila eins og engill og í gær skoraði hann sigurmark Stabæk gegn Fredriks- stad þar sem lokatölur urðu 3-2. Aðrir Íslendingar í deildinni komu einnig við sögu hjá sínum liðum. Árni Gautur Arason stóð að sjálfsögðu á milli stanganna hjá Vålerenga þegar liðið lagði Start að velli, 1-0, og Birkir Bjarnason lék síðustu 10 mínút- urnar fyrir Viking, sem tapaði fyrir Sandefjord. Indriði Sigurðs- son og Stefán Gíslason léku báðir allan leikinn fyrir Lyn sem tapaði fyrir Ham-Kam á útivelli, 1-0, og þá léku Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson í miðri vörn Brann þegar liðið tapaði fyrir Tromsö 3-1. Ármann Smári Björnsson var ónotaður varamað- ur hjá Brann en liðið er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 40 stig. - vig Íslendingar í Noregi: Létu mikið að sér kveða VEIGAR PÁLL GUNNARSSON Er áfram á skotskónum fyrir Stabæk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.