Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 74
34 25. september 2006 MÁNUDAGUR
FÓTBOLTI „Þetta var rosalega
gaman og mikill léttir að við
náðum að halda okkur uppi. Það
var búið að vera mikið stress en
svo enduðu allir leikir okkur í hag.
Fimmta sætið er betra en ég bjóst
við fyrir tímabilið,“ sagði Steinþór
Freyr Þorsteinsson, leikmaður
Breiðabliks, við Fréttablaðið í
gær. Blikar unnu Keflavík 2-1 á
laugardaginn í lokaumferðinni og
björguðu sér ekki aðeins frá falli
heldur tryggðu þeir sér fimmta
sætið.
Steinþór var mjög sprækur í
leiknum og er hann leikmaður
umferðarinnar. Hann fiskaði m.a.
vítaspyrnuna sem Arnar Grétars-
son skoraði annað mark Breiða-
bliks úr. „Það var mikið fagnað
eftir leikinn, uppskeruhátíð
Breiðabliks var um kvöldið og þar
var mikil stemning. Ég verð að
viðurkenna það að ég bjóst við
Keflvíkingum sterkari. Í fyrri
hálfleik áttu þeir ekki færi og voru
ekkert að skapa sér. Það er kannski
skiljanlegt að einhverju leyti þar
sem þeir höfðu að engu að keppa,“
sagði Steinþór.
Hann er á 21. aldursári og á
landsleiki að baki fyrir yngri
landslið Íslands. Hann hóf sinn
feril í Fylki en ungur að árum fór
hann í Breiðablik. „Ég er mjög
ánægður með mína frammistöðu í
sumar, ég lenti í meiðslum og
missti af nokkrum leikjum en
fyrir utan það er ég mjög ánægð-
ur,“ sagði Steinþór. „Öll lið í deild-
inni nánast hafa verið að vinna og
tapa til skiptis í sumar og það
sama á við um okkur. það hefur
skort ákveðinn stöðugleika en við
höfum verið ótrúlega óheppnir í
mörgum af þessum leikjum.“
Steinþór ber Ólafi Kristjáns-
syni vel söguna en Ólafur tók við
liðinu af Bjarna Jóhannsyni þegar
það var í fallsæti. „Óli
hefur reynst okkur vel,
hann kom með nýjar
áherslur inn í þetta og
þær hafa virkað. Liðið
hefur verið að spila betur
eftir að hann kom,“ sagði
Steinþór og segist vilja sjá liðið
enda ofar á næsta tímabili. „Við
verðum að stefna hærra, lenda
ofar en í ár. Væri ekki leiðinlegt að
ná að blanda sér í
einhvern slag
ofarlega á töfl-
unni.“
Steinþór er
frægur fyrir að
taka mjög löng
innköst með því
að skella sér í
flikk-flakk
stökk og hefur
það vakið
mikla
athygli.
„Þetta byrj-
aði af viti
með U17
landsliðinu.
Ég var eitthvað búinn að vera að
leika mér að þessu og svo var
verið að spyrja hver
gæti tekið löng innköst.
Þá sagði ég að ég gæti
gert þetta og þá fór ég
að taka svona innköst í
leikjum,“ sagði Stein-
þór.
Það verða tvö Kópavogslið í
Landsbankadeildinni næsta sumar
og því nóg að gera fyrir Steinþór,
sem sér um að slá Kópavogsvöll.
HK komst upp úr 1. deildinni fyrir
skömmu og neitar Steinþór því
ekki að það hefði gert fall úr deild-
inni enn hræðilegra. „Það hefði
ekki verið líft í Kópavogi ef við
hefðum fallið. Sú staðreynd að HK
var búið að tryggja sér upp var
ekki til að minnka baráttuna í
okkur. Það er samt gaman að fá þá
í deildina, það er alltaf skemmti-
legast að spila nágrannaslagi. Það
hefur ekki farið framhjá okkur að
HK-ingum finnst mjög gaman
þegar við töpum og auglýsa það
mikið. Ég á marga góða vini í HK
en þegar á völlinn er komið þá
hverfur vináttan,“ sagði Steinþór.
elvargeir@frettabladid.is
Væri ekki líft í Kópavogi
hefði Breiðablik fallið
Steinþór Freyr Þorsteinsson átti mjög góðan leik fyrir Breiðablik á laugardag-
inn þegar lokaumferð Landsbankadeildarinnar fór fram. Hann hefur verið
valinn leikmaður umferðarinnar af Fréttablaðinu.
XXX
xxx
XXX
STEINÞÓR FREYR ÞORSTEINSSON Sést hér fara upp í skallaeinvígi við Einar Orra
Einarsson, leikmann Keflavíkur, í viðureign liðanna á laugardag. Steinþór Freyr átti
skínandi leik og er leikmaður lokaumferðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LIÐ UMFERÐARINNAR
4-4-2
Óskar Örn Hauksson (3)
Guðjón Heiðar
Sveinsson Milos Glogovac (4)
Höskuldur
Eiríksson (3)
Atli Jóhannsson (3) Pálmi Rafn
Pálmason (3)
Páll Hjarðar (2)
Bjarki Gunnlaugsson (3)
Steinþór Freyr
Þorsteinsson (2)
Kristján Finnbogason (3)
Kristján Óli
Sigurðsson (2)
LEIKMAÐUR
UMFERÐARINN
AR
FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo býr
yfir það miklum hæfileikum að
hann getur orðið besti leikmaður
heims í nánustu framtíð. Þetta er
mat Carlos Queiroz, aðstoðar-
þjálfara Manchester United.
Queiroz lét orðin falla eftir
jafnteflisleikinn gegn Reading á
laugardag, en þá var það Ronaldo
sem skoraði mark Man. Utd.
„Þegar maður er að þjálfa leik-
menn eins og Ronaldo snýst þetta
ekki svo mikið um fótboltann.
Þetta snýst um að kenna þeim
rétta hugarfarið og fá þá til að
meta lífið og alla kosti þess. Ég er
alltaf að reyna að láta Ronaldo
temja sér þennan hugsunarhátt
og finna löngunina til þess að
verða bestur í heimi. Það er ekki
spurning að hann getur orðið
það,“ sagði Queiroz.
Ronaldo var í sumar sagður
vera á leið frá Man. Utd en í
viðtali við BBC í gær sagðist
hann vera mjög ánægður í
herbúðum liðsins. „Ég velti því
fyrir mér að fara annað. En eftir
að hafa rætt við umboðsmann
minn og Alex Ferguson þá ákvað
ég að vera áfram. Ég sé ekki eftir
því. Mér líður mjög vel,“ sagði
Ronaldo. - vig
Carlos Queiroz:
Ronaldo getur
orðið sá besti
CRISTIANO RONALDO Fær mikinn
stuðning frá aðstoðarþjálfara sínum.
FÓTBOLTI Jose Mourinho, knatt-
spyrnustjóra Chelsea, er fleira til
lista lagt en að búa til góð
fótboltalið. Nýlega lék hann í
sjónvarpsauglýsingu fyrir BPI-
bankann í Portúgal þar sem hann
stekkur úr flugvél í jakkafötum
en opnar síðan fallhíf þegar hann
nálgast jörðina. Mourinho þykir
minna um margt á sjálfan James
Bond þegar hann lendir fullkomn-
lega í bakgarði glæsilegs
einbýlishúss í Portúgal. En
Mourinho hefur nú viðurkennt að
það hafi ekki verið hann sjálfur
sem stökk úr flugvélinni.
„Það er ótrúlegt hvað tækni-
brellurnar eru orðnar góðar,“
sagði Mourinho en það var
portúgalski áhættuleikarinn Jose
Veras sem sá um skítverkin fyrir
þjálfarann knáa. „Jose sagði mér
að það hefði aldrei hvarflað að
honum að prófa fallhífarstökk,“
segir Veras. „En eftir að hafa
leikið í auglýsingunni og séð hvað
þetta er raunverulega lítið mál
segist hann vera tilbúinn að prófa
eitt alvöru stökk,“ bætti Vera við.
Nú er að sjá hvort Mourinho
standi við stóru orðin. - vig
Jose Mourinho:
Fallhlífarstökk í
auglýsingu
JOSE MOURINHO Þorir nú að prófa
raunverulegt fallhífarstökk.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Craig Allardyce, sonur
Sam Allardyce hjá Bolton og
umboðsmaðurinn sem var í aðal-
hlutverki í spillingarþætti BBC
um ensku knattspyrnuna í síðustu
viku, segist aldrei geta fyrirgefið
sjálfum sér fyrir að bregðast föður
sínum og allri fjölskyldu sinni með
framkomu sinni í þættinum.
„Þetta hefur verið versta vika
lífs míns. Þetta hefur líka verið
versta vikan í lífi föður míns og
það er mér að kenna. Það er þung
byrði fyrir son að bera,“ sagði
Craig í viðtali við götublaðið News
of the World í Bretlandi. Craig
segist hafa fallið fyrir gylliboði
Knut Auf dem Berge, svikula
umboðsmanninum í þættinum,
sem bauð honum að vera meðeig-
andi í nýrri umboðsskrifstofu sem
átti að byggja afkomu sína á
mútum og greiðslum undir borð-
ið.
„Ég lét tilfallast og þóttist vera
stærri en ég er. Sannleikurinn er
sá að ég er bara venjulegur
umboðsmaður sem er einfaldlega
að reyna að lifa af. Ég þarf að
borga mínar skuldir eins og hver
annar. Ég er ekki ríkur maður,“
segir Craig í viðtalinu en
þar segist hann einnig vera
hættur starfi sínu sem
umboðsmaður þar sem
hann geti ekki treyst nein-
um lengur.
„Ég var misheppnaður
sem leikmaður og nú hefur
mér mistekist sem umboðs-
maður. En þrátt fyrir allt
sem gengið hefur á hef ég
ennþá stuðning pabba,“ sagði
Craig og barðist við tárin. „Þetta
er mjög niðurlægjandi fyrir mig
en þetta er nokkuð sem ég
þarf að sætta mig við. Ég
get ekki tekið aftur gjörðir
mínar. Ekkert af því sem
ég sagði í þættinum var
satt en engu að síður hefur
þetta komið sér afar illa
fyrir fjölskylduna mina.
Nú verð ég bara að einbeita
mér að því að ala upp börn-
in mín og byrja upp á nýtt.
Ég mun nota fordæmi pabba míns
og berjast í gegnum þetta mót-
læti.“ - vig
Craig Allardyce mun aldrei geta fyrirgefið sjálfum sér:
Þetta hefur verið versti tími lífs míns
CRAIG
ALLARDYCE
FÓTBOLTI Sam Allardyce, stjóri
Bolton í ensku úrvalsdeildinni,
telur að sú mynd sem birtist af
honum í spillingarþættinum hafi
komið varanlegum skaða á orð-
spor sitt. Allardyce var sterklega
orðaður við enska landsliðið í vor
og var almennt talinn einn af
heitustu knattspyrnustjórunum í
landinu.
„Ég hef ekki gert neitt rangt
en svona ásakanir festast við
mann það sem eftir er, jafnvel þó
þær verði ekki sannaðar,“ segir
Allardyce. „Það hefur aldrei
hvarflað að mér að segja upp.
Það yrði eins og uppgjöf í mínum
huga. En ég tel að mitt orðspor í
boltanum verði aldrei það
sama.“ - vig
Sam Allardyce tjáir sig um gjörðir sonar síns:
Orðsporið er varanlega skaðað
FÓTBOLTI David James segist hafa
íhugað það alvarlega að leggja
hanskana á hilluna þegar hann
missti sæti sitt í enska landslið-
inu. Hann var tekinn út úr liðinu
eftir að hafa gert hrikaleg mistök
í leik gegn Austurríki í september
2004. James er nú hjá Portsmouth
en á þessum tíma lék hann fyrir
Manchester City.
„Liðinu var ekki að ganga vel,
ég missti landsliðssætið og það
var öldugangur í lífi mínu utan
vallar. Ég var farinn að íhuga það
að hætta,“ sagði James. Nú leikur
lífið hins vegar við hann og
stefnir hann á að endurheimta
sæti sitt í landsliðinu. - egm
Markvörðurinn David James:
Hugsaði út í
það að hætta
JAMES Hefur enn ekki fengið mark á sig
með Portsmouth í úrvalsdeildinni.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Einn leikur var í ensku
úrvalsdeildinni í gær en þá gerðu
Newcastle og Everton 1-1
jafntefli. Shola Ameobi kom
Newcastle yfir á þrettándu
mínútu, hann virtist rangstæður
en aðstoðardómarinn sá ekkert
athugavert. Hann fékk allan þann
tíma sem hann þurfti til að koma
boltanum framhjá markverðinum
Tim Howard. Fimm mínútum
fyrir leikhlé jafnaði Tim Cahill
með skalla.
Leikurinn var opinn og
skemmtilegur en þrátt fyrir það
komu engin mörk í seinni
hálfleik. Það komu þó tvö rauð
spjöld því Titus Bramble hjá
Newcastle og Tony Hibbert hjá
Everton voru sendir í bað af
Steve Bennett dómara með
tveggja mínútna millibili á
lokakaflanum. - egm
Enska úrvalsdeildin:
Jafntefli á St.
James Park
TIM CAHILL Fagnar jöfnunarmarki sínu.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Ítalíumeistararnir í Inter
unnu 4-3 sigur á Chievo í gær í
ótrúlegum leik á heimavelli
sínum. Með þessum sigri komst
Inter á toppinn en það munaði
litlu að liðið glopraði niður
forskoti sínu eftir að hafa komist
í 4-0. Á seinasta stundarfjórðungi
leiksins skoraði Chievo þrjú mörk
og fékk færi í viðbótartíma til að
ná jafntefli.
Hernan Crespo skoraði tvö
mörk fyrir Inter í gær en Walter
Samuel og Dejan Stankovic
skoruðu hin mörkin. Roma var í
hörkustuði gegn Parma og vann
4-0 útisigur. Vincenzo Montella,
Simone Perrotta, Aleandro Rosi
og Alberto Aquilani skoruðu
mörkin. - egm
ítalski boltinn:
Inter skaust á
toppinn
HERNAN CRESPO Skoraði tvö mörk fyrir
Ítalíumeistarana í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES