Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 75

Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 75
MÁNUDAGUR 25. september 2006 35 GOLF Lið Evrópu vann Ryder- keppnina með miklum yfirburð- um á K Club á Írlandi í gær en þetta er í þriðja sinn í röð sem Evrópa fagnar sigri og er það met. Þá er þetta fimmti sigur Evrópu í síðustu sex Ryder-keppnum. Evr- ópa hlaut átján og hálfan vinning gegn níu og hálfum vinningi bandaríska liðsins en það eru sömu úrslit og í keppninni í Michigan í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. Evrópa hafði mikla yfirburði í tvímenningnum sem fram fór í gær og vann átta af tólf leikjum. Það var sænski kylfingurinn Henrik Stenson sem tryggði Evr- ópu sigurinn með því að sigra JJ Taylor. Darren Clarke frá Norður- Írlandi brast í grát þegar sigurinn var í höfn en hann missti eigin- konu sína í síðasta mánuði er hún lést úr krabbameini. „Þetta getur ekki verið betra. Það hefur gert mér mjög gott að fá að vera hluti af þessu frábæra liði. Ég hef eignast margar frábærar minningar. Það var erfitt að setja sig í rétta gírinn fyrir þetta mót en það tókst,“ sagði Clarke en mikið var talað um góða liðsheild hjá Evrópuliðinu meðan á keppni stóð. „Ian Woosnam er frábær fyrirliði liðsins, hann hefur sýnt mér og öllu liðinu frábæran stuðning.“ Woosnam átti varla til orð til að lýsa kylfingum Evrópuliðsins. „Þetta var hreint út sagt frábær spilamennska og ég get ekki lýst því hvað ég er stoltur. Þrátt fyrir þessa spilamennsku hugsaði ég aldrei út í það að við værum búnir að sigra. Mér leið samt mjög vel þegar ég tók eftir því að blái litur- inn var allsráðandi á öllum skor- töflum vallarins. Ég vona að Nick Faldo nái að landa fjórða titlinum í röð eftir tvö ár,“ sagði Woosnam en Nick Faldo frá Englandi tekur nú við fyrirliðahlutverkinu. Tom Lehman, fyrirliði banda- ríska liðsins, segir það enga skömm að hafa tapað fyrir evr- ópska liðinu. „Ég held að þetta sé besta lið sem Evrópa hefur átt frá upphafi. Þeir spiluðu ótrúlega vel og mitt lið var einfaldlega ekki til- búið, okkur var refsað fyrir öll mistök. Áhorfendur sýndu Evr- ópuliðinu mikinn stuðning og það hafði sitt að segja,“ sagði Lehman eftir mótið. Furðulegt atvik átti sér stað í gær þegar kylfusveinn Tiger Woods, Steve Williams, missti eina kylfu ofan í vatn við sjöundu holu meðan hann var að þrífa hana. Það var níu járnið sem Williams missti og samkvæmt reglum má ekki skipta um kylfur. Því þurfti Tiger að leika án níujárnsins stóran hluta af gærdeginum. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann sigraði Robert Karlsson. elvargeir@frettabladid.is Evrópuliðið vann þriðja árið í röð Lið Bandaríkjanna átti aldrei möguleika gegn því evrópska í Ryder-keppninni í golfi sem lauk á Írlandi í gær. Úrslitin urðu á sama veg og í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum, Evrópa hlaut átján og hálfan vinn- ing en Bandaríkin níu og hálfan. Ólýsanleg stemning í liðinu, sagði fyrirliði Evrópuliðsins. WOODS FAÐMAR CLARKE Darren Clarke átti erfitt með að hafa stjórn á tilfinning- um sínum og fær hér faðmlag frá Tiger Woods. Clarke missti eiginkonu sína og Woods pabba sinn fyrr í sumar og hafa þeir sótt mikið í félagsskap hvors annars síðustu vikur. NORDICPHOTOS/AFP FYRIRLIÐINN FÆR GUSU Hér er verið að sprauta kampavíni yfir Ian Woosnam, fyrirliða Evrópuliðsins, eftir að sigurinn var í höfn. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGESHANDBOLTI Óvænt úrslit urðu í spænsku úrvalsdeildinni á laugardagskvöld þegar Ademar Leon gerði sér lítið fyrir og lagði meistara Barcelona 31-27. Sigfús Sigurðsson átti góðan leik í vörn heimamanna en náði þó ekki að skora í leiknum. Ólafur Stefáns- son skoraði eitt mark fyrir Ciudad Real sem vann Valladolid 30-29 í hörkuspennandi leik. Portland San Antonio og Ciudad eru efst í deildinni með átta stig nú þegar fjórum umferðum er lokið. Barcelona og Ademar Leon koma næst með sex stig. - egm Spænski handoltinn: Ademar Leon lagði Barcelona BIKARINN Í HÖFN Ian Woosnam stend- ur hér stoltur með bikarinn á K Club á Írlandi. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Hannes Þ. Sigurðsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Bröndby þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn OB í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Hannes lék í fremstu víglínu og kom Bröndby í 1-0 á 16. mínútu. Bröndby er í 3. sæti með 19 stig, stigi á eftir FC Köbenhavn sem er á toppnum, en á leik til góða á liðin fyrir ofan sig. Emil Hallfreðsson tryggði liði sínu Malmö annað stigið í leik liðsins gegn Halmstad í gær í sænsku úrvalsdeildinni. Emil, sem lék allan leikinn, jafnaði metin í 2-2 þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Þá lagði AZ Alkmaar Roda að velli, 2-0, í hollensku úrvalsdeild- inni. Grétar Rafn Steinsson og Jóhannes Karl Guðjónsson sátu allan tímann á varamannabekk AZ, sem er efst í deildinni með 13 stig eftir fimm leiki. - vig Fótboltinn í Evrópu: Hannes og Emil skoruðu FÓTBOLTI Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen kom ekkert við sögu þegar Barcelona og Valencia gerðu 1-1 jafntefli í spænska bolt- anum í gærkvöldi. Barcelona hefur lengi átt í vandræðum með lið Val- encia og leikurinn í gær var engin undantekning á því. Þrátt fyrir að hafa verið talsvert betra liðið í seinni hálfleik tókst Barcelona ekki að innbyrða öll stigin þrjú. Valencia tók forystuna á sautj- ándu mínútu en þá skoraði David Villa eftir frábæra sókn. Erfiðlega gekk hjá Barcelona að skapa sér færi og í hálfleik ákvað Frank Rijkaard, þjálfari liðsins, að setja Andrés Iniesta inn á sem vara- mann. Sú skipting var ekki lengi að bera ávöxt en þessi ungi leikmaður jafnaði metin á 49. mínútu. Eiður Smári var í blaðaviðtali á Spáni fyrir nokkrum dögum og þar lýsti hann yfir dálæti sínu á Iniesta, sagði hann vera þann leikmann sem hefði komið sér mest á óvart hjá Barcelona. Með tilkomu Iniesta í gær kom aukið flæði í spila- mennsku Börsunga. Undir lok leiksins fékk Barce- lona nokkur góð færi til að tryggja sér sigurinn en ekki tókst það. Xavi átti skot sem fór rétt framhjá og þá fékk varamaðurinn Javier Saviola ágætis færi en hinn reynslumikli Santiago Canizares varði vel. Í upp- bótartíma fiskaði Ronaldinho auka- spyrnu á stórhættulegum stað. Hann tók spyrnuna sjálfur en skot hans fór í varnarvegginn og úrslit- in því 1-1. Næsti leikur Barcelona er á miðvikudaginn en þá mætir liðið Werder Bremen í Meistara- deildinni. Real Madrid vann á laugardags- kvöld 1-0 sigur á Real Betis en Mahamadou Diarra skoraði eina mark leiksins á sjöttu mínútu. Þetta var fyrsta mark Diarra fyrir Real Madrid en hann var keyptur frá franska liðinu Lyon. Hann skor- aði með skalla eftir fyrirgjöf frá Cicinho, sem þurfti að fara af velli eftir hálftíma þegar hann sleit lið- bönd. Cicinho verður líklega ekki meira með á tímabilinu. David Beckham byrjaði leikinn á bekkn- um en kom inn á í seinni hálfleik- inn og fékk hann gult spjald fyrir leikaraskap. - egm Leikið í spænsku úrvalsdeildinni um helgina: Jafnt hjá Valencia og Barcelona ANDRÉS INIESTA Skoraði jöfnunarmarkið gegn Valencia í gær snemma í seinni hálf- leik. NORDICPHPOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.