Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
����������
�������������������
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
Saab turbo
3.090.000 kr. 2.990.000 kr.
Saab 9-3 Combi Turbo, sjálfskiptur Saab 9-3 Sedan Turbo, sjálfskiptur
Nú geturðu fengið þér
þotu á viðráðanlegu verði
Saab á að baki áralanga sögu sem herþotuframleiðandi auk þess að framleiða hina virtu Saab bíla.
Saab 9-3 hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir öryggi og aksturseiginleika. Stórkostleg hönnun, öflug
vél, frábærir hemlar og ríkulegur staðalbúnaður gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum.�
Nú bjóðum við þér þotuna í Saab bílaflotanum, 9-3 Turbo, á frábæru verði. Komdu og reynsluaktu!
Því miður eru ekki allar fréttir góðar. Innan um allar góðu,
jákvæðu og skemmtilegu fréttirn-
ar úr frjálshyggju-, neyslu- og
afþreyingarþjóðfélagi okkar slæð-
ast alltaf með vondar og leiðinleg-
ar fréttir eins og feilnótur í ham-
ingjusinfóníunni.
SAMA er að segja um þá þjóð-
málaumræðu sem fram fer í land-
inu okkar. Mestan part er hún lof-
söngur um frelsi, frjálsa
einstaklinga, frjálsa samkeppni
og frjálsa markaði, en í hinum
volduga samsöng má þó greina
hjáróma raddir sem þverskallast
við að syngja frelsinu lof og prís.
Til dæmis má nefna þá óvini frels-
isins sem nú um stundir eru að
væla og vilja takmarka frelsi
ungra og fallegra stúlkna til að
gerast vændiskonur og súlu-
ambáttir jafnvel þótt hugur þeirra
hafi staðið til þessara þjóðþrifa-
starfa frá blautu barnsbeini.
MEÐAN flestir bera höfuðið hátt
og horfa upp í heiðríkjuna er samt
til fólk sem kýs fremur að horfa
niður í leðjuna sem vér stöndum í.
Sú staðreynd að yfirdráttarlán í
bönkum námu alls 191 milljarði
króna í lok ágúst og hafa vaxið um
40 milljarða á síðastliðnum 12
mánuðum er að sjálfsögðu öllum
góðum mönnum mikið gleðiefni
og dásamleg sönnun um þrótt-
mikið efnahagslíf og frábæran
bankarekstur. Úrtöluhyskið sem
öfundast út í auðsæld og dugnað
kýs hins vegar að snúa út úr frétt-
inni og halda því fram að hvert
heimili á landinu sé komið í skulda-
þrældóm með milljón á yfirdrætti
og þurfi að borga yfir 20% vexti
til þrælapískara.
Í STAÐ þess að öfunda náungann
af þeirri velgengni sem frelsinu
fylgir á fólk að samgleðjast og
leita að hinu góða og jákvæða.
Hvað er til dæmis sanngjarnara
en að fólk borgi 23% vexti af
lánum sem það hefur tekið af
fúsum og frjálsum vilja til að
borga af öðrum lánum og kaupa
sér góðan mat á góðu verði og
skemmta sér fyrir afganginn? Og
hvað er dásamlegra en að eiga
örlítinn þátt í því að Ísland er
komið á kortið alþjóðlega sem
föðurland kynþokkafyllsta millj-
arðamærings í veröldinni? Það
eru þó alla vega góðar fréttir!
Góðar fréttir
og vondar