Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � ���������� ������������������� Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 Selfossi 482 3100 Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 461 2960 Saab turbo 3.090.000 kr. 2.990.000 kr. Saab 9-3 Combi Turbo, sjálfskiptur Saab 9-3 Sedan Turbo, sjálfskiptur Nú geturðu fengið þér þotu á viðráðanlegu verði Saab á að baki áralanga sögu sem herþotuframleiðandi auk þess að framleiða hina virtu Saab bíla. Saab 9-3 hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir öryggi og aksturseiginleika. Stórkostleg hönnun, öflug vél, frábærir hemlar og ríkulegur staðalbúnaður gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum.� Nú bjóðum við þér þotuna í Saab bílaflotanum, 9-3 Turbo, á frábæru verði. Komdu og reynsluaktu! Því miður eru ekki allar fréttir góðar. Innan um allar góðu, jákvæðu og skemmtilegu fréttirn- ar úr frjálshyggju-, neyslu- og afþreyingarþjóðfélagi okkar slæð- ast alltaf með vondar og leiðinleg- ar fréttir eins og feilnótur í ham- ingjusinfóníunni. SAMA er að segja um þá þjóð- málaumræðu sem fram fer í land- inu okkar. Mestan part er hún lof- söngur um frelsi, frjálsa einstaklinga, frjálsa samkeppni og frjálsa markaði, en í hinum volduga samsöng má þó greina hjáróma raddir sem þverskallast við að syngja frelsinu lof og prís. Til dæmis má nefna þá óvini frels- isins sem nú um stundir eru að væla og vilja takmarka frelsi ungra og fallegra stúlkna til að gerast vændiskonur og súlu- ambáttir jafnvel þótt hugur þeirra hafi staðið til þessara þjóðþrifa- starfa frá blautu barnsbeini. MEÐAN flestir bera höfuðið hátt og horfa upp í heiðríkjuna er samt til fólk sem kýs fremur að horfa niður í leðjuna sem vér stöndum í. Sú staðreynd að yfirdráttarlán í bönkum námu alls 191 milljarði króna í lok ágúst og hafa vaxið um 40 milljarða á síðastliðnum 12 mánuðum er að sjálfsögðu öllum góðum mönnum mikið gleðiefni og dásamleg sönnun um þrótt- mikið efnahagslíf og frábæran bankarekstur. Úrtöluhyskið sem öfundast út í auðsæld og dugnað kýs hins vegar að snúa út úr frétt- inni og halda því fram að hvert heimili á landinu sé komið í skulda- þrældóm með milljón á yfirdrætti og þurfi að borga yfir 20% vexti til þrælapískara. Í STAÐ þess að öfunda náungann af þeirri velgengni sem frelsinu fylgir á fólk að samgleðjast og leita að hinu góða og jákvæða. Hvað er til dæmis sanngjarnara en að fólk borgi 23% vexti af lánum sem það hefur tekið af fúsum og frjálsum vilja til að borga af öðrum lánum og kaupa sér góðan mat á góðu verði og skemmta sér fyrir afganginn? Og hvað er dásamlegra en að eiga örlítinn þátt í því að Ísland er komið á kortið alþjóðlega sem föðurland kynþokkafyllsta millj- arðamærings í veröldinni? Það eru þó alla vega góðar fréttir! Góðar fréttir og vondar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.