Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 16.10.2006, Qupperneq 4
4 16. október 2006 MÁNUDAGUR GENGIÐ 13.10.2006 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 118,2062 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 68,07 68,39 126,71 127,33 85,40 85,88 11,455 11,523 10,119 10,179 9,225 9,279 0,5699 0,5733 99,92 100,52 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS ISUZU TROOPER 3.0 33” Nýskr. 12.99 - Beinskiptur - Ekinn 110 þús. - Allt að 100% lán. Verð 1.440 .000. - VATÍKANIÐ, AP Benedikt XVI páfi tók fjóra heilaga menn í dýrlinga- tölu í gær. Dýrlingarnir nýju eru frönsk kona sem stofnaði kvenna- háskóla í Bandaríkjunum, mexíkóskur biskup sem kenndi guðfræði þrátt fyrir hættu á ofsóknum, nunna sem studdi almenningskennslu fyrir ítalskar stúlkur og ítalskur prestur sem hjálpaði heyrnarlausum. Dýrlingar kaþólsku kirkjunnar eru um tíu þúsund talsins en nákvæm tala þeirra er ekki þekkt. Eini íslenski dýrlingurinn er Þorlákur helgi Þórhallsson, sem Þorláksmessa er kennd við. - sþs Breytingar í Páfagarði: Fjórir teknir í dýrlingatölu BENEDIKT XVI PÁFI Nýju dýrlingarnir voru kynntir í Vatíkaninu í gær. VERSLUN Hluti þeirra kartaflna sem Bónus-verslanirnar selja nú á tilboði var tekinn upp í bleytu og er ónýtur. Fréttablaðinu hafa borist kvartanir frá viðskiptavin- um verslunarinnar sem keypt höfðu kartöflupoka en komist að því seinna að kartöflurnar væru óætar. „Það er búið að fjarlægja flesta skemmdu pokana en því miður lentu sumir þeirra í búðunum,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss. „Þegar hundrað tonn af kartöflum koma á þessu verði geta alltaf slæðst með einhverjar skemmdar.“ - sþs Kartöflur í Bónus: Sumar blautar og gjörónýtar STJÓRNMÁL Átök urðu á Kjördæmis- þingi Framsóknarflokksins um helgina þegar kosið var um for- mann Kjördæmissambandsins í Suðurkjördæmi. Nýr formaður var kjörinn með aðeins fjögurra atkvæða mun. Hildur Helga Gísladóttir, Hafnar- firði, fékk 71 atkvæði en Guðrún Helga Brynleifsdóttir, Seltjarnar- nesi, fékk 67 atkvæði. Starfsnefnd þingsins lagði til að þær yrðu báðar í stjórn og að Hild- ur Helga yrði formaður. Guðrún Helga hafði lýst yfir fyrr um dag- inn að hún vildi formennskuna og bauð sig því fram. Sumir telja að í kjörinu hafi kristallast átök milli fylkinga Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra, vinkonu Hildar Helgu, og Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra, vin- konu Guðrúnar Helgu. Hildur Helga segir það rangt. Guðmundur Einarsson, formaður kjörnefndar, staðfestir að hann hafi verið gagnrýndur fyrir framkvæmd atkvæðagreiðslunnar en segir það á misskilningi byggt. „Þessir menn misskilja fundarsköp ef þeir halda að það sé hlutverk þeirra sem leggja fram tillögu að leggja líka fram gagntillögu,“ segir hann. Guðrún Helga vildi ekki tjá sig um málið og heldur ekki Jónína. Ekki náðist í Siv. - ghs FÓR GEGN TILLÖGU KJÖRNEFNDAR Guð- rún Helga Brynleifsdóttir, Seltjarnarnesi, gaf kost á sér til formennsku Kjördæmis- sambands Framsóknarflokksins á laugardag. Kjörnefnd hafði stungið upp á Hildi Helgu Gísladóttur, Hafnarfirði. Ný stjórn Kjördæmissambands Framsóknarflokksins var kjörin um helgina: Átök urðu í formannskjöri KÓREA, AP Alexander Alexejev, aðstoðarutan- ríkisráðherra Rússlands, fullyrti í gær að fulltrúar Norður-Kóreustjórnar segðust vilja að Kóreuskaginn yrði kjarnorkuvopnalaust svæði. „Mér var ítrekað tjáð í Pyongyang að þeir styddu áframhald (sex hliða) viðræðnanna. Þeir styðja að Kóreuskaginn verði kjarnorku- vopnalaus,“ sagði Alexejev eftir fund með suður-kóreskum kollega sínum, Chun Yung- woo, í gær. Alexeyev var í Pjongjang í síðustu viku og varð þar með fyrsti erlendi erindrek- inn sem heimsótti norður-kóresku höfuðborg- ina eftir að meint kjanorkuvopnatilraun var gerð þar fyrir viku. Þótt öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi samþykkt einróma um helgina að Norður- Kórea skuli sæta ströngum refsiaðgerðum fyrir að hafa gert meinta tilraunasprengingu með kjarnorkuvopn eru uppi mjög skiptar skoðanir á því hvern- ig þeim skuli fram- fylgt. Eitt af því sem mestur ágreiningur stendur um er hvort skora skuli á öll ríki heims að hafa eftirlit með öllum varningi sem fluttur er til og frá Norður-Kóreu, til að tryggja að engin óhefðbundin vopn eða íhlutir í langdrægar eldflaugar berist kommúnistastjórninni í Pjongjang. Í lokayfirlýsingunni sem samstaða náðist um í öryggisráðinu var strikuð út setning sem heimilaði að leit væri gerð í varningi sem flutt- ur væri til og frá Norður-Kóreu. Það var gert að kröfu Kínverja, en langmest af þeim við- skiptum sem á annað borð eiga sér stað yfir norður-kóresku landamærin eru við Kína. Japanir og Ástralar lýstu því yfir í gær að þeir myndu tafarlaust hefjast handa við að hrinda refsiaðgerðunum í framkvæmd, og ráðamenn beggja landa sögðust vera að íhuga að beita Norður-Kóreu enn harðari eigin aðgerðum. Suður-Kóreustjórn sagðist líka mundu koma refsiaðgerðunum til framkvæmda en sagði ekki hvernig hún hygðist gera það. Bandaríski sendiherrann hjá Sameinuðu þjóðunum, John Bolton, skoraði í gær á Kín- verja að grípa til harðari aðgerða. Stjórnvöld í Peking bæru „mikla ábyrgð“ á því að hafa áhrif á hegðun bandamanna sinna í Pjongjang. Bolton sagði kjarnorkuvopnatilraun Norður- Kóreumanna hafa verið „opinbera niðurlæg- ingu“ fyrir Kínverja, eina bandamanninn sem Norður-Kóreumann ættu. audunn@frettabladid.is Á VAKTINNI Norður-kóreskir hermenn á vaktinni í gær við landamærin að Kína, nærri borgunum Sinuiju í N-Kóreu og Dandong í Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Óeining um framkvæmd refsiaðgerða gagn N-Kóreu Þrýst er á Kínverja að beita sér með virkari hætti í deilunni um kjarnorkuvopnatilraunir Norður-Kóreu. Aðstoðar- utanríkisráðherra Rússlands kveður N-Kóreustjórn segjast vilja að Kóreuskaginn verði kjarnorkuvopnalaus. BOLTON OG WANG John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, og kínverskur starfsbróðir hans Wang Guangya. HAWAII, AP Jarðskjálfti sem bráðabirgðamæling sýndi að væri 6,3 á Richter-kvarða að styrkleika varð í gær við Hawaii. Skjálftinn fannst um allan eyjaklasann og olli jarðskriðu sem lokaði þjóðvegi. Rafmagnslaust varð víða á Hawaii af sömu sökum, en engar fregnir höfðu borist af meiðslum á fólki, að sögn talsmanna almanna- varna. Truflanir á fjarskiptum gerðu hins vegar erfitt að fá staðfest hvort engan hefði sakað. Jarðskjálftavakt bandarísku jarðvísindastofnunarinnar kvað bráðabirgðamælingu benda til að skálftinn hefði verið 6,3 á Richter, og sterkasti eftirskjálftinn 5,8. - aa Harður jarðskjálfti á Hawaii: Fannst um all- an eyjaklasann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.