Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 6
6 16. október 2006 MÁNUDAGUR
Et ute veliquisit ipis at. Ut
utpatuercil do dolore velit in
utet at?
JÁ 47,2%
NEI 53,5&
SPURNING DAGSINS Í DAG
Sandit adiamconum in etdolore
velit in utet at?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN
Gríðarlegar breytingar virðast nú eiga sér stað á búsetu og eignar-
haldi jarða í dreifbýli. Landnotkun breytist ört og verð á jarðnæði
hækkar víða mjög mikið. Bújörðum er núna víða skipt upp í smærri
skika til annarra landnota en áður. Þessi þróun hefur áhrif á mögu-
leika til áframhaldandi notkunar á landi til landbúnaðar og það
vakna margar spurningar. Þar má nefna hvort ríkið eigi að láta sig
varða hvort land sé tekið úr landbúnaðarnotum? Jafnframt hefur
hagur margra landeigenda og seljenda batnað mikið á sama tíma
og erfiðara er að festa kaup á jarðnæði til búskapar. Mikilvægt er
að þjóðfélagið hafi yfirsýn yfir þessar breytingar og meti áhrif þeirra
gildi fyrir búsetu í landinu til framtíðar.
Ráðstefnunni er ætlað að beina athyglinni að þessum málaflokki
þannig að staða hans skýrist.
Dagskrá
13:00 Setning og stutt yfirlit um þróun. Ágúst Sigurðsson, rektor
LbhÍ.
13:10 Kaup og sala landbúnaðareigna í Noregi. Sølve Bærug,
Universitetet for miljø- og biovitenskap (UMB), Ási, Noregi.
13:40 Landbúnaður, byggðaþróun og jarðalög. Atli Már Ingólfs-
son, lögfræðingur, landbúnaðarráðuneytinu.
14:00 Skipulagsáætlanir og breytingar á búsetu. Stefán Thors,
skipulagsstjóri.
14:20 Kaffihlé
14:50 Byggðir Borgarfjarðar. Torfi Jóhannesson, formaður skipu-
lags- og Byggingarnefndar.
15:10 Fasteignamarkaður í dreifbýli: Jákvæðar eða neikvæðar
breytingar. Magnús Leópoldsson, fasteignasali.
15:30 Pallborðsumræður. Frummælendur og fleiri fulltrúar sitja
fyrir svörum.
16:25 Ráðstefnuslit – samantekt. Ólafur Arnalds.
Ráðstefnustjórar: Hafdís Hafliðadóttir (Skipulagsstofnun) og Margrét
Hauksdóttir (Fasteignamati ríkisins).
Ráðstefnuna halda Landbúnaðarháskóli Íslands, Skipulagsstofnun og
Fasteignamat ríkisins í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga,
landbúnaðarráðuneytið o.fl. aðila.
Þeir sem áhuga hafa geta keypt súpu og brauð í hádeginu á Hvanneyri.
Vinsamlega látið vita fyrir kl. 13 þriðjudaginn 17. október til Margrétar
Jónsdóttur á netfang margretj@lbhi.is ef óskað er eftir mat.
Málþing:
SKIPULAG OG
BÚSETUÞRÓUN Í
DREIFBÝLI
• Er íslensku bújörðinni ógnað?
• Jákvæð þróun eða ógnun?
• Hver eru áhrif frístundabyggðar
og annarrar búsetu í dreifbýli?
Miðvikudagur 18. október kl. 13:00-16:30
Landbúnaðarháskóli Íslands,
Ásgarði, Hvanneyri
Spilar þú tölvuleiki?
Já 44%
Nei 56%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Leikur þú á hljóðfæri?
Segðu skoðun þína á visir.is
MATVÆLAVERÐ Finnur Árnason, for-
stjóri Haga, telur að það hafi ekki
mikil áhrif þó að tollar á kjöti séu
lækkaðir um allt að fjörutíu pró-
sent þar sem innflutningsverndin
sé mikil fyrir og breytist ekki
mikið. Hann óskar eftir upplýsing-
um um það hvernig lækkunin á
tollum á almennum kjötvörum sé
hugsuð. „Nánari skýring á henni
er ekki komin fram,“ segir hann.
Finnur hefur reiknað út að raun-
lækkun matvælaverðs verði 9,45
prósent, sé tekið tillit til niðurfell-
ingar virðisaukaskatts og vöru-
gjalda en segir óljóst hvernig kjöt-
tollarnir komi út. Ekki sé búið að
upplýsa að fullu um aðgerðina og þá
eyðu þurfi að fylla upp í sem fyrst.
„Fyrsta mat okkar er að jafnvel
þó að tollar í þessum flokki séu
lækkaðir um fjörutíu prósent hafi
það ekki mikil áhrif þar sem vernd-
in er mjög mikil fyrir,“ segir hann.
„Ég held að það sé mjög mikil-
vægt fyrir alla að vita skiptinguna
á þessum sextán prósentum. Það
vantar meiri upplýsingar.“
Stefán Úlfarsson, hagfræðing-
ur hjá ASÍ, segir að stjórnvöld
þurfi að gefa nákvæma kortlagn-
ingu á því hvar aðgerðirnar eigi að
hafa áhrif þannig að þeir aðilar
sem eigi að hafa eftirlit með
aðgerðunum fái formlegt hlutverk
og nái að samræma sig til að
aðgerðirnar skili tilætluðum
árangri. ASÍ telur að aðgerðir rík-
isstjórnarinnar geti lækkað verð
um tólf til fimmtán prósent. Niður-
felling virðisaukaskatts gefi átta
til níu prósent og niðurfelling
vörugjalda tvö til þrjú prósent.
Samtals gefi þetta ellefu prósent
og þá sé spurning hvað lækkun
kjöttolla gefi.
„Það er á mörkunum að aðgerð-
irnar dugi til að koma okkur niður
í meðaltalsverðlag á Norðurlönd-
unum. Okkur sýnist óraunhæft að
gera ráð fyrir meira en þriggja
prósenta verðlækkun út úr tolla-
lækkunum. Þetta hangir á blá-
þræði og stendur og fellur algjör-
lega með framkvæmdinni,“ segir
Stefán.
Halldór Árnason, skrifstofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu, getur
ekki gefið upplýsingar um það
hvernig niðurfelling tolla á
almennum kjötvörum er hugsuð
og segir útreikningana flókna og
aðeins til í fjármálaráðuneytinu.
„Þessir útreikningar verða kynnt-
ir um leið og frumvarp ríkisstjórn-
arinnar til lækkunar matvöru-
verðs verður lagt fram,“ segir
hann. ghs@frettabladid.is
Telur matarverðið
lækka um tíu prósent
Aðgerðir stjórnvalda lækka matarverð um níu til tíu prósent, að mati Haga, og
lægri kjöttollar hafa ekki mikil áhrif til lækkunar. Forsætisráðuneytið vill eng-
ar nánari upplýsingar gefa fyrr en stjórnarfrumvarp verður lagt fram.
VERSLUN KRÓNUNNAR Skoðanir eru skiptar um áhrifin af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til lækkunar matvælaverðs. Forstjóri Haga,
Finnur Árnason, telur ljóst að áhrifin lækki verð um tæp tíu prósent en hagfræðingur hjá ASÍ telur verðlækkunina verða tólf til
fimmtán prósent.
FINNUR ÁRNA-
SON, FORSTJÓRI
HAGA
STEFÁN ÚLFARS-
SON, HAGFRÆÐ-
INGUR HJÁ ASÍ
SVÍÞJÓÐ Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra nýrrar
ríkisstjórnar borgaraflokkanna í Svíþjóð, vildi sem
minnst úr þeim hneykslismálum gera sem leiddu til
afsagnar viðskiptaráðherrans í hinni rúmlega
vikugömlu ríkisstjórn um helgina, er hann tjáði sig
um málið í Helsinki í Finnlandi í fyrstu erlendu
heimsókn sinni því hann tók við embætti.
„Árangursrík ríkisstjórn byggist á réttri stjórnar-
stefnu ... og í fyllingu tímans mun það einnig verða
það sem kjósendur dæma hana út frá,“ tjáði Reinfeldt
fréttamönnum eftir fundi með Törju Halonen
Finnlandsforseta og Matti Vanhanen forsætisráð-
herra.
Stéttarfélag flutningaverkamanna, Transport,
hefur ákveðið að kæra sænska menningarmálaráð-
herrann Stegö Chilo fyrir að hafa ráðið fólk í vinnu
svart. Þetta ákvað stjórn félagsins í gær, að sögn
Aftonbladet.
Chilo hefur ekki svarað gagnrýni í fjölmiðlum,
ólíkt viðskiptaráðherranum Maríu Borelius, sem sagði
af sér á laugardag. Sú síðarnefnda viðurkenndi að
hafa ráðið fólk til hreingerninga heima hjá sér svart á
tímabilinu 1990-2000, en hún hefði aldrei farið leynt
með það á sínum pólitíska ferli. Chilo er líka gagnrýnd
fyrir að hafa trassað að greiða afnotagjöld sænska
ríkisútvarpsins. - aa/ghs
Fredrik Reinfeldt ver orðstír ungrar ríkisstjórnar sinnar:
Verðum dæmd af verkunum
REINFELDT Einn ráðherra
hættur og hart sótt að
öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Samtök atvinnulífsins, SA, telja óljóst hvaða áhrif
fyrirhuguð tollalækkun á matvæli hafi þar sem
mikilvægar ákvarðanir um útfærslu hennar hafi ekki verið
teknar. Ef allir tollar verði lækkaðir um fjörutíu prósent
verði áhrifin mest á verði svínakjöts og kjúklinga.
Áhrif fyrirhugaðrar tollalækkunar á matvæli eru óljós
þar sem mikilvægar ákvarðanir um útfærslu hennar hafa
ekki verið teknar, að því að segir á vefsíðu samtakanna.
Kynning málsins gefur þó ótvírætt til kynna að lækkunin
eigi að hafa raunveruleg og marktæk áhrif á verðlag.
„Ef gengið er út frá því að allir tollar verði lækkaðir
um 40 prósent má ætla að áhrifin verði mest á verð frá
framleiðendum svínakjöts og kjúklinga hér innan lands.
Lauslega áætlað gætu áhrifin til lækkunar verðlags
orðið 1,5 prósent og á vísitölu neysluverðs um 0,3
prósent. Svo virðist sem forsætisráðuneytið áætli að
áhrif tollalækkunarinnar á vísitölu neysluverðs verði allt
að 0,4 prósent, þannig að ganga verður út frá að 40
prósenta tollalækkun taki til allra vöruflokka,“ segir á
vefsíðu SA.
Samtökin áætla að heildaráhrif aðgerða
ríkisstjórnarinnar verði um tólf prósent og vísitala
neysluverðs lækki um 2,2-2,3 prósent ef allar lækkanir
skila sér í lækkun verðlags. - ghs
Samtök atvinnulífsins telja að matarverð lækki um tólf prósent:
Telja víst að allir tollar lækki
BANDARÍKIN, AP Tvö stærstu
tóbaksfyrirtækin í Bandaríkjunum
eyða nú ógrynni fjár til þess að
berjast gegn því að kjósendur í
fimm ríkjum Bandaríkjanna
samþykki reykingabann í kosning-
um sem haldnar verða jafnhliða
þingkosningunum 7. nóvember
næstkomandi.
Fyrirtækin tvö, sem eru Philip
Morris USA og RJ Reynolds
Tobacco, hafa í Kaliforníu einni nú
þegar varið meira en 54 milljónum
dala í þessa kosningabaráttu sína.
Auk Kaliforníu kjósa íbúar í
Missouri, Suður-Dakóta, Arizona
og Ohio um einhvers konar
útfærslu á reykingabanni. - gb
Kosið um reykingabann:
Barátta tóbaks-
fyrirtækja dýr