Fréttablaðið - 16.10.2006, Page 11
MÁNUDAGUR 16. október 2006
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
3
9
2
4
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7940
NISSAN PATHFINDER
GARMIN NUVI 310LEIÐSÖGUTÆKIFYLGIR FRÍTT MEÐ!
Það hefur aldrei verið hagstæðara að kaupa sér alvöru jeppa. Nú geturðu fengið
sjálfskiptan Nissan Pathfinder Se með 35" breytingu frá Artic Trucks* á frábæru
verði og fylgir Garmin Nuvi 310 leiðsögutæki frítt með.
Nissan Pathfinder hefur slegið eftirminnilega í gegn og blandar hann skemmtilega
saman krafti fjallajeppa eins og þeir gerast albestir og lipurð flottustu götubíla. Með
35" sérhönnuðum breytingum eru gæði þessa afburða jeppa einfaldlega orðin enn
meiri: Hann er áfram jafn þægilegur í akstri, bara skemmtilegri!
Nissan Pathfinder SE
Verð nú 5.350.000 kr.
Verð áður 5.660.000 kr.
Pathfinder, alvöru jeppi á almennilegu verði!
VERÐLÆKK
UN!
BREYTTUR JEPPI
BREYTT VERÐ!
*Krómgrind að framan ekki innifalin í verði.
BORGARRÁÐ Ákvörðun hefur verið
tekin um að selja Fríkirkjuveg 11.
Þetta var samþykkt af borgarráði
fyrir helgi. Húsið þykir eitt það
fegursta í borginni og er kaup-
sýslumaðurinn Björgólfur Thor
Björgólfsson einn þeirra sem hafa
lýst yfir áhuga á að kaupa það.
Vinstri græn gagnrýna áformin.
Í bókun flokksins segir að húsið sé
í Hallargarðinum, í miðju útivistar-
svæði borgarbúa við Tjörnina.
Mikilvægt sé að það þjóni
almenningi áfram en sé ekki
falboðið auðstéttinni. Þar er einnig
lagt til að starfsemi Íþrótta- og
tómstundaráðs verði fremur flutt í
húsið. - kdk
Eitt fegursta hús borgarinnar:
Fríkirkjuvegur
11 settur á sölu
MENNINGARMÁL Kanadísk menning-
arhátíð hófst í Listasafni Kópavogs
á laugardaginn. Gunnar I.
Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs,
setti hátíðina og í kjölfarið opnaði
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, þrjár myndlistasýningar í
safninu þar sem list kanadískra
frumbyggja er teflt saman við
vestrænar hefðir. Hátíðin stendur
til 22. október og verða fjölmargir
viðburðir haldnir á hennar vegum
víðs vegar um Kópavog á næstu
dögum. Bærinn stendur að
hátíðinni í samvinnu við sendiráð
Kanada á Íslandi. - þsj
Listasafn Kópavogs:
Kanadísk menn-
ingarhátíð
STJÓRNMÁL Þingmenn allra flokka
vilja að Íslendingar, Færeyingar
og Grænlendingar skiptist á
ræðismönnum. Tillaga þing-
mannanna þar að lútandi er í
samræmi við ályktun Vestnor-
ræna ráðsins frá því í ágúst.
Í henni er mælst til að
ríkisstjórnin vinni að málinu í
samráði við landsstjórnir
Færeyja og Grænlands.
Um leið eru löndin hvött til
að koma sér upp sameiginlegum
ræðismannaskrifstofum.
Halldór Blöndal Sjálfstæðis-
flokki er fyrsti flutningsmaður
tillögunnar. - bþs
Ísland, Færeyjar og Grænland:
Vilja skiptast á
ræðismönnum
FORSETI ÍSLANDS Fulltrúi Kanadastjórn-
ar færði forseta Íslands og bæjarstjóra
Kópavogs bók að gjöf við setninguna.