Fréttablaðið - 16.10.2006, Side 12
12 16. október 2006 MÁNUDAGUR
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
er fyrir börn 2 - 11 ára í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
gildir 16. okt. - 6. nóv.
býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu www.flugfelag.is
bókanlegt frá 13. október
Í S
L E
N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A S
T O
F A
N
E H
F .
/ S
I A
. I
S
- F
L U
3 4
4 7
2
1 0
/ 2
0 0
6
1 kr. aðra leiðina + 739 kr.
(flugvallarskattur og tryggingargjald)
Aðeins 1 króna fyrir börnin
www.flugfelag.is | 570 3030
STJÓRNMÁL Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir alþingismaður
gefur kost á sér í 4. sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík, sem haldið verður 11.
nóvember. Prófkjörið er sameig-
inlegt fyrir bæði Reykjavíkur-
kjördæmin og er þetta því sama
sæti og hún fékk í prófkjöri
flokksins fyrir síðustu þingkosn-
ingar þegar hún skipaði 2. sæti á
listanum í Reykjavíkurkjördæmi
suður. Ásta Ragnheiður hefur
setið á þingi frá 1995 og
lagt mikla áherslu á umbætur í
félagsmálum, samgöngumálum
og ferðamálum. - eö
Ásta Ragnheiður:
Býður sig fram
í 4. sæti
ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR
Hefur setið á þingi frá árinu 1995.
STJÓRNMÁL Ólöf Nordal, fram-
kvæmdastjóri Orkusölunnar ehf. á
Egilsstöðum, hefur ákveðið að gefa
kost á sér í 2. sætið á framboðs-
lista Sjálfstæðis-
flokksins í
Norðausturkjör-
dæmi.
Ólöf er 39 ára
lögfræðingur og
hefur einnig
lokið MBA-
gráðu. Hún
hefur gegnt
ýmsum félags-
og trúnaðarstörfum og er nú
formaður Sjálfstæðiskvenna-
félagsins Auðar á Austurlandi.
Ólöf hefur meðal annars
starfað hjá Landsvirkjum sem
yfirmaður heildsöluviðskipta og
síðar sem yfirmaður sölumála
hjá RARIK. - hs
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins:
Ólöf gefur kost
á sér í 2. sætið
ÓLÖF NORDAL
LÖGREGLUMÁL Þrír piltar voru
stöðvaðir í Hörgárdal fyrir helgi
við venjubundið eftirlit lögregl-
unnar á Akureyri. Í ljós kom að
ökuréttindi bílstjórans voru
útrunnin. Við leit í bifreiðinni
fundust einnig fíkniefni sem og
tæki og tól til neyslu þeirra.
Piltarnir voru færðir á lögreglu-
stöð. Þar kom í ljós að sá sem
bílnum ók hafði verið stöðvaður
af lögreglunni á Sauðárkróki
klukkustund áður á ferð sinni um
Skagafjörð.
Lögreglan hafði greint honum
frá því að hann hefði ekki leyfi til
að aka bíl en hann lét sér ekki
segjast fyrr en á Akureyri. - kdk
Réttindalaus ökumaður:
Lét sér ekki
segjast
TÖLVUFÍKN Björn Harðarson sálfræðingur
segir tölvufíkn mikið vandamál hér á landi
en tölvufíkn er skilgreind ef 28 tímum eða
meira er varið í tölvu á
viku, og er þá miðað við
tímann sem fer í tölvu-
notkun utan hefðbundis
vinnu- eða skólatíma.
Björn er nú að þróa
forrit með öryggisbúnaði
sem getur virkað sem
forvörn við netfíkn. „Í
forritinu er hægt að setja
inn hámarkstíma sem
hægt er að vera á netinu
og þannig geta foreldrar stýrt þeim tíma
sem börnin verja í tölvunni.“
Björn segir mikilvægt að búa til greining-
arviðmið fyrir tölvufíkn en gott viðmið sé að
börn og unglingar láti ekki aðra hluti sitja á
hakanum eins og nám eða félagslíf vegna
tölvunotkunar.
Björn segir aðkallandi verkefni að gera
könnun í efri bekkjum grunnskóla um
umfang vandans en það er sá aldurshópur
sem ver mestum tíma í tölvuleiki.
„Þau börn og unglingar sem helst eiga á
hættu að verða tölvufíklar eru þau sem í
grunninn eru félagslega einangruð eða hafa
lent í einelti.
Besta meðferðin við tölvufíkn er að vinna
í gegnum foreldra og að þeir aðstoði börn sín
við að hætta og finni síðan aðrar leiðir til að
drepa tímann.“ Björn segir þetta oft erfitt
því mörg börn kunni ekki lengur að taka þátt
í daglegu lífi eftir áralanga tölvunotkun. - hs
Hannar tölvubúnað þar sem hægt er að stýra þeim tíma sem varið er á netinu:
Netfíklaforvörn væntanleg á markað
TÖLVULEIKUR Sífellt fleiri ungmenni eyða meiri og
meiri tíma í tölvuleiki á netinu.
BJÖRN HARÐARSON
VINNUMARKAÐUR Félag járniðn-
aðarmanna og Vélstjórafélag
Íslands hafa sameinast í Félag
vélstjóra og málmtæknimanna.
Nýja félagið verður eitt stærsta
verkalýðsfélag landsins.
Helgi Laxdal, fyrrverandi for-
maður Vélstjórafélagsins, verð-
ur formaður félagsins fyrstu níu
mánuðina og Örn Friðriksson,
fyrrum formaður Félags járniðn-
aðarmanna, tekur þá við og verð-
ur formaður í níu mánuði. Ekki
verður kjörin ný stjórn fyrr en
eftir eitt og hálft ár.
Kristín Hjálmarsdóttir, útgáfu-
og kynningarfulltrúi VSFÍ, segir
að þetta sé gert til að nýta reynslu
forystumanna félaginu til hags-
bóta meðan sameiningin gengur
yfir.
Haldin var samkeppni um
nafn nýja félagsins. Vinnings-
hafinn, sem átti hugmyndina að
nafninu Félag vélstjóra og
málmtæknimanna, óskaði nafn-
leyndar og gaf vinninginn, 150
þúsund krónur, í byggingu
brunns í Afríku.
Kristín segir að svo skemmti-
lega vilji til að upphæðin dugi til
þess að byggja brunn fyrir þorp
með þrjú til fimm þúsund íbúum
en það sé einmitt svipaður fjöldi
og eru félagar í nýja félaginu.
- ghs
Í STAFNI Helgi Laxdal, fyrrverandi formaður Vélstjórafélags Íslands, verður formaður
sameinaðs félags vélstjóra og málmtæknimanna fyrstu níu mánuðina og þá tekur
Örn Friðriksson, sem hefur verið formaður Félags járniðnaðarmanna við.
Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands mynda eitt stærsta stéttarfélag landsins:
Vélstjórar og járniðnaðarmenn sameinast
STÆRSTI SÖFNUNARBAUKURINN
Samtökin Beit Al Khair í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum hafa sett
upp þennan söfnunarbauk, sem þau
segja að sé sá stærsti í heimi, í verslun-
armiðstöð í Dubai. Söfnunin er fyrir hið
stríðshrjáða land Líbanon. FRÉTTABLAÐIÐ/AP