Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 16
16. október 2006 MÁNUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Bændablaðið er um margt for-
vitnilegt blað með fullt af fréttum
sem ekki rata annað. Auglýsing-
arnar í blaðinu eru ekki síður for-
vitnilegar. Í nýjasta tölublaðinu
má sem dæmi sjá auglýstar haug-
dælur undir fyrirsögninni „Ertu í
djúpum skít?“ og þar eru ekki aug-
lýst opin hús heldur opin fjós.
Innan um traktorsauglýsingar má
nú í smáauglýsingunum sjá óskað
eftir að kaupa hvaltennur, hrúts-
og hreindýrshorn. Það er Páll
Kristinsson í síma 899-6903 sem
auglýsir.
„Jú, þetta hefur gengið sæmi-
lega og ég er búinn að fá eitthvað,“
segir Páll. „Þeir sem voru að vinna
í hvalnum í gamla daga luma oft á
tönnum og stundum rekur hvali og
þá liggja bændur á tönnum. Ég er
að borga þetta þúsund kall upp í
fimm þúsund kall fyrir hvaltenn-
urnar en það fer eftir stærð og
gæðum.“
Páll segir framboð af hornum
miklu meira en af tönnum. „Ég
fæ nú hrútshornin yfirleitt bara
gefins en er að borga þetta 800-
1.000 kall fyrir kílóið af hrein-
dýrshornin.“
Páll er hnífasmiður og hefur
aðsetur í Álafosshúsinu í Mos-
fellsbæ. Hann notar hornin og
tennurnar í eigin framleiðslu auk
þess að miðla til annars hand-
verksfólks. „Ég er með sæmilegt
pláss hérna svo það má segja að
hér sé kominn upp vísir að efna-
banka. Ég er í samstarfi við
marga og fólk er oft á höttunum
eftir þessu en veigrar sér við að
auglýsa ef það vantar bara eitt-
hvað smotterí.“ - glh
Páll hnífasmiður er með vísi að efnabanka:
Viltu losna við hvaltennur?
PÁLL HNÍFASMIÐUR MEÐ EIGIN FRAM-
LEIÐSLU Er með vísi að efnabanka
heima hjá sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er ekkert
annað en
stórfenglegt,“
segir Snorri
Sturluson um
Iceland Airwaves,
en sjöunda
hátíðin hefst á
miðvikudaginn
og stendur fram
á sunnudag.
„Þetta er einstakur
menningarvið-
burður og sumir gera sér ekki grein
fyrir því hvers konar forréttindi
þetta eru fyrir okkur. Við strákarnir
á stöðinni ætlum að skipta
tónleikunum á milli okkar og setjast
svo niður og bera saman bækur
okkar í útvarpinu daginn eftir. Það
er margt mjög spennandi í boði
en mín reynsla er sú að gera sér
engar væntingar fyrir fram því það
sem kemur manni mest á óvart er
oftar en ekki það sem stendur upp
úr. Í fyrra kíkti ég slatta á þetta og
fór ekki varhluta af biðröðunum.
Þeir segjast vera búnir að gera
ráðstafanir í ár og maður verður
bara að vera þolinmóður. Málið er
að planta sér á einn stað og ekki
vera á einhverjum flækingi. Í raun
þarf maður ekki að vera á flækingi
því það er aldrei dauður punktur.”
SJÓNARHÓLL
ICELAND AIRWAVES
Aldrei dauður
punktur
SNORRI
STURLUSON
Dagskrárstjóri
XFM
„Það er allt rosalega gott að
frétta og alveg brjálað að gera,“
segir Nína Björk Gunnarsdóttir,
ljósmyndari og stílisti. „Ég
sé um tísku og ráðgjöf á
sýningunni Konan 2006 sem
verður haldin um næstu helgi
í Laugardalshöll. Þessi sýning
er fyrst og fremst fyrir konur og
þar verður fjallað um allt sem
snýr að konum, m.a. tísku,
heilsu, hönnun og heimili.
Það verður tískusýning
báða dagana klukkan fjögur
og við erum búnar að fá
margar flottar konur, sem
ekki eru vanar að sýna, til
að koma fram. Til dæmis
get ég nefnt Elmu Lísu
leikkonu, Kolfinnu Baldvins, Ingu Lind og
Dísu í Laugum. Samhliða sýningunni verða
haldnir margir spennandi og áhugaverðir
fyrirlestrar með mörgum skemmtilegum
konum. Þarna verða Hendrikka Waage
skartgripahönnuður, Bryndís Schram,
Ingibjörg Stefáns og Katrín Anna frá
Femínistafélaginu svo ég nefni bara
örfáar. Svo má endilega koma fram
að þessa sömu helgi verð ég
þrítug. Það leggst bara vel í mig.
Ég er búin að komast að því að
lífið verður bara skemmtilegra
eftir því sem maður eldist.
Maður veit alltaf betur og betur
hvað maður vill. Ég ætla að halda
upp á afmælið helgina eftir með
stórri afmælisveislu.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? NÍNA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR LJÓSMYNDARI OG STÍLISTI
Þrítug á kvennasýningu
Vasi Gheorghe er mættur
með nikkuna fyrir utan
Bónus í Skútuvogi. Þenur
hana af list og brosir til
fólksins sem tínist þreytu-
legt í búðina. Hressilegir
tangóar og rúmbur berast
út í loftið, sumir brosa á
móti, aðrir strunsa áhuga-
lausir framhjá. Gheorghe
hefur komið nokkrum sinn-
um til Íslands og er búinn
að vera hérna í tvo mánuði
í þetta skiptið. Íslendingar
hafa gott hjartalag, segir
hann.
„Það borgar sig ekki að vera leng-
ur en svona tvo tíma á sama stað,“
segir Gheorghe í pásu frá spila-
mennskunni. Það eru komnir
nokkrir gullpeningar í körfuna
hans. „Ég spila úti um allt en
þegar von er á rigningu er gott að
vera undir svona þakskýli eins og
hérna í Bónus. Ég bý á Hjálpræðis-
hernum, sem er frábær staður og
ódýr. Dagurinn hjá mér byrjar
kannski með því að ég tek strætó
númer 19 klukkan sjö um morg-
uninn og spila fyrir utan bakaríið
í Norðlingaholti. Er svo til hádeg-
is fyrir utan Bónus, fer þá fyrir
utan Hagkaup og enda kannski
fyrir utan Nóatún. Ég hef líka
spilað á Akranesi og í Hafnar-
firði. Það gekk ekki nógu vel því
mér var sagt að hypja mig á
báðum stöðunum. Annars er fólk
yfirleitt mjög vingjarnlegt. Mér
finnst Íslendingar hafa gott
hjartalag. Löggurnar brosa bara
til mín og segja að allt sé ókei.“
Gheorghe er rúmenskur og á
konu og tvær dætur heima. Önnur
er astmaveik og Gheorghe segist
fá góð lyf fyrir hana á Íslandi sem
hann fær ekki í Rúmeníu. Hann
hefur starfað sem bílstjóri og
byggingaverkamaður en segir
launin léleg í Rúmeníu. „Maður
fær kannski ekki nema 100 evrur
fyrir mánaðarvinnu, níu til fimm.
Ástandið er mjög skrítið í Rúm-
eníu, klikkuð ríkisstjórn og hálf-
gerð ringulreið. Það er lítið að
gera í spilamennskunni hjá mér
þar. Kannski eitt afmæli eða brúð-
kaup í mánuði og ekki mikið upp
úr því að hafa.“
Gheorghe kemur úr tónlistar-
fjölskyldu. Hann segist spila það
sem honum dettur í hug og á auð-
velt með að pikka upp lög. „Einu
sinni var ég að spila fyrir utan
Ikea og fór inn til að hlýja mér.
Þar var verið að spila eitthvað lag
sem ég fór svo bara og spilaði
þegar ég kom út. Kannski verð ég
búinn að læra nokkur íslensk lög
þegar ég kem næst,“ segir harm-
óníkuleikarinn. Hann fer aftur til
síns heima á föstudaginn en segist
stefna að því að koma aftur um
jólin og þá kannski með konuna og
astmaveiku dótturina. En hvernig
datt honum eiginlega í hug að
koma til Íslands?
„Mér fannst það bara upplagt
því hér er ég einn á markaðinum.
Hér er engin harmóníkumafía
eins og í Noregi. Það eru kannski
tvö hundruð Rúmenar að spila í
Osló en mafían ræður öllu. Skipar
mönnum hvar þeir eiga að spila
og hirðir svo helminginn af inn-
komunni.“
Gheorghe segir Íslendinga
nokkuð þakkláta hlustendur. „Að
meðaltali fæ ég svona 2.500
krónur yfir daginn, en á góðum
degi kannski 4.000 kr. Þetta eru
miklir peningar í Rúmeníu. Þú
trúir því kannski ekki en fyrir
2.500 krónur get ég keypt mat
fyrir alla fjölskylduna sem
dugar í tvær vikur.“
gunnarh@frettabladid.is
Engin harmóníkumafía á Íslandi
VASI GHEORGHE ÞENUR NIKKUNA Þénar svona 2.500 kr. á dag, en 4.000 kr. á
góðum degi. Það eru miklir peningar í Rúmeníu. FRÉTTABLAÐIÐ/GLH
HÚSNÆÐI:
HVAÐ KEMUR Í GAMLA
IKEA?
■ Nú þegar Ikea er flutt í þrisvar
sinnum stærra húsnæði í Garða-
bæ vaknar
spurningin:
Hvað kemur
í gamla Ikea?
Það er risa rými
og hátt til lofts.
Inga Rut hjá fasteignafélaginu
Stoðum sem á húsnæðið segir að
viðræður standi yfir við einn aðila
um að hefja rekstur í plássinu, en
vildi ekki nafngreina viðkomandi.
Sumum hefur dottið í hug að
Ríkið ætti að stækka við sig og
breiða úr sér í Holtagörðum. Væri
þá líklega komin stærsta áfengis-
búð Norðurlanda, sannkallaður
stórmarkaður drykkjumannsins.
Leikfangabolti
„Þetta er eins og bolti sem
þú kaupir í leikfangabúð
fyrir börnin þín. Sá sem
ákvað þetta á skilið að vera
rekinn.”
KÖRFUKNATTLEIKSMAÐURINN
SHAQUILLE O’NEAL ER ALLS EKKI
SÁTTUR VIÐ NÝJA KEPPNISBOLT-
ANN SEM NOTAÐUR VERÐUR Í
NBA-DEILDINNI.
Fréttablaðið, 15. október.
Milljón magaæfingar
„Þessir sjóliðar eru um það
bil áratug yngri en við og
hafa ekkert haft að gera
síðustu þrjá mánuði annað
en að gera magaæfingar úti
á miðju Atlantshafi.”
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON ER
EINN LIÐSMANNA RÖGNUNNAR
SEM KEPPTI VIÐ SJÓLIÐA AF HER-
SKIPINU USS WASP Á LAUGARDAG-
INN. ÞRÁTT FYRIR AÐ VERA ELDRI
OG Í VERRA FORMI FÓR RAGNAN
MEÐ SIGUR AF HÓLMI.
Fréttablaðið, 15. október.