Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.20 13.13 18.05
Akureyri 8.10 12.58 17.45
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Hjá fasteignasölunni Lyngvík er til sölu
vel staðsett 200 fermetra einbýlishús á
tveimur hæðum við Hellisgötu í Hafnar-
firði.
Komið er inn í forstofu með fatahengi.
Hol er teppalagt með fataskáp en þaðan er
útgengt á suður timburverönd. Eldhús er
með plastparketti og lakkaðri innréttingu.
Borðstofa og stofa eru teppalagðar og tvö
svefnherbergi eru á hæðinni, bæði með
fataskápum. Hjónaherbergið er dúkalagt
en hitt herbergið er teppalagt. Baðher-
bergið er með baðkari, innréttingu, flísum
á veggjum og kork á gólfi.
Frá holi liggur teppalagður stigi niður
á neðri hæð þar sem er tveggja herbergja
íbúðarými. Hol og stofa eru teppalögð,
baðherbergi og eldhús með dúk á gólfi.
Eitt svefnherbergi er á hæðinni sem er
með plastparketti og fataskáp. Frá holi
neðri hæðar er gengið inn í þvottahús og
geymslu inn af því. Úr þvottahúsi er svo
gengið út í garð. Eigninni fylgir einnig úti-
geymsla og innbyggður 35,4 fermetra bíl-
skúr.
Garðurinn er fallegur með timburver-
önd og snýr í suður. Hiti er undir hluta
bílaplansins. Þetta er falleg eign á góðum
stað í Hafnarfirði.
Ásett verð er 39,8 milljónir.
Tveggja hæða einbýl-
ishús í Hafnarfirði
Fallegur suðurgarður fylgir eigninni. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Lög um fjöleignarhús
NÚ HAFA FJÖLEIGNARHÚSALÖGIN VERIÐ GEFIN ÚT Í VAND-
AÐRI SÉRPRENTUN MEÐ GREINARLYKLI.
Húseigendafélagið hefur í samvinnu við
SPRON gefið Fjöleignarhúsalögin númer
26/1994 út í vönduðu og handhægu
formi. Með prentunni fylgir greinayfirlit
sem léttir þeim vinnuna sem styðjast
þurfa við lögin.
Húseigendafélagið telur mikilvægt að
lögin séu kunn og aðgengileg almenn-
ingi þar sem löggjöfin mótar réttindi og
skyldur eigenda í stóru sem smá, snertir
daglegt líf fólks í landinu, samskipti
þess og eignir. Reynslan sýnir að erfitt
getur verið fyrir eigendur að átta sig og fóta sig á réttarstöðu
sinni með því að skoða lögin án leiðarvísa. Greinalykillinn
er því mikilvægur leiðarvísir. Allir sem eiga eignir í fjöleign-
arhúsum eða koma að málefnum þeirra með öðrum hætti
ættu að hafa fjöleignarhúsalögin handbær.
Lagaútgáfan fæst á skrifstofu Húseigendafélasgsins. - jóa
MJÚKAR OG
HLÝJAR
Vínylflísar á gólfið
HÚS 2
FASTEIGNASÖLUR
Ás 16 -18
Ásbyrgi 9
Árborgir 6
Atlas 31
Búi 19, 29
Draumahús 10 - 11
Eignamiðlunin 7
Eignamiðlun Suðurn. 14
Eignastýring 19, 23
Fast.félag Austurl. 19
Fast.miðlun Kópav. 30, 32
Fast.miðlunin Múli 15
Fast.sala Suðurlands 28
Fyrirtækjasala Íslands 26
Hof 25
Hvíta ljósið 26
Húseign 27
Lundur 12 - 13
Lyngvík 8
Neteign 21
Valhöll 22
Viðskiptahúsið 6
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
16. október, 289. dagur
ársins 2006.