Fréttablaðið - 16.10.2006, Side 22
[ ]
Vínylflísar hafa lengi gert
lukku á gólfum fyrirtækja. Ný
heimilislína er líka að slá í
gegn. Gunnar Þór Jóhannesson
hjá Gólfefnavali í Faxafeni 10
veit meira.
„Það sem hæst ber núna hjá okkur
eru lúxus-vínylflísar fyrir forstof-
ur, eldhús og baðherbergi þar sem
umgangur er mikill, auk þess sem
við höfum selt mikið af þeim í
sumarhús og blómaskála. Fólk
kann að meta kosti þess að hafa
gólf sem lítið viðhald þarf,“ segir
Gunnar Þór og heldur áfram.
„Þetta er mjög þolið gólfefni og
það er komin á það góð reynsla.
Kostir þess eru meðal annars þeir
að það er bæði hlýtt og mjúkt. Fólk
með bakvandamál hefur fundið til
bata eftir að hafa fengið svona
flísar á gólfið hjá sér. Nú er mikið
um hita í gólfum. Við fundum það
þegar við vorum með steinflísar
heima hjá mér að við þurftum að
stilla ofninn á 3 til að fá varma
gengum þær en eftir að við feng-
um vínylflísarnar erum við með
ofninn á 1,5. Þannig að þær eru
orkusparandi.“
Gunnar Þór segir auðvelt að
halda vínylflísunum hreinum.
Vínylfúgan á milli flísanna hvorki
springi né rýrni og því safnist
engin óhreinindi í hana. Margs
konar mynstur er hægt að fá, til
dæmis með áferð náttúrulegra
efna. Sumt er aðeins upphleypt
eins og um lifandi við sé að ræða.
Einingarnar eru í ýmsum stærð-
um og einnig fást hornsamskeyti
og skrautlistar með. Gunnar segir
framleiðendur taka ábyrgð á
vínylflísnum til tíu ára og getur
þess í lokin að óþarft sé að bóna
þær.
Mjúkar og hlýjar vínylflísar
Eitt vinsælasta mynstrið núna er grátt
gólf með eftirlíkingu af steinvölum sem
virka eins og nudd. MYND/GÓLFEFNAVAL
Hægt er að fá margskonar áferð og
mynstur. MYND/GÓLFEFNAVAL
Parkett í breiðum plönkum
er vinsælt á gólfin í dag og þá
frekar samlímt en gegnheilt að
sögn Egils Arnars Birgissonar,
markaðsstjóra Parka á Dal-
vegi 18 í Kópavogi.
„Notkun plankaparketts er mikið
að aukast hér á landi og tískan núna
er að vera með breið plankaborð.
Mest er um samlímt parkett en ekki
heilt í gegn því samlímt parkett
hreyfist minna,“ byrjar Egill ræðu
sína. Hann verður að útskýra þetta
nánar. „Parkettið er lifandi viður
sem annað hvort tútnar út eða
skreppur saman eftir því hvernig
loftið er. Ef loftið er þurrt og hiti of
mikill þá skreppur það saman en ef
mikill raki er í loftinu þá tútnar það
út.“ Jú, þetta skilur blaðamaður.
En hvað er þá samlímt parkett?
Egill heldur áfram: „Það er viðar-
spónn í topplaginu sem er 3-4 mm á
þykkt og svo 10 mm krossviður
undir. Þegar þessi efni eru límd
saman mynda þau ákveðið jafn-
vægi í viðnum því þarna eru kraft-
ar sem vinna móti hvor öðrum.
Meðan við vorum með 6 til 7 cm
breiða stafi var í lagi að hafa þá úr
gegnheilum viði en þegar þeir eru
orðnir allt upp í 20 cm breiðir er
hreyfingin á hverjum staf svo
mikil, sérstaklega ef þeir eru langir
líka.“ Agli er þökkuð kennslustund-
in, sem hann lýkur með þessum
orðum: „Það getur verið erfitt að
þurfa alltaf að passa upp á jafn-
vægi í rakastigi og hita í húsum hér
og því er samlímt parkett á gólfið
afar heppilegt fyrir íslenskan
markað.“ - gun
Samlímt parkett í plönkum
Hvít olíuborin eik í forgrunni. MYND/PARKI
Gegnheil hnota, slípuð eftir á og lökkuð
með lakki sem gefur mikinn gljáa.
MYND/PARKI
Fasteignakaupendur hrífast af fyrstu kynnum. Því er ráðlegt að hafa
aðkomuna að eigninni þinni til fyrirmyndar sért þú að hugsa um að selja. Skreyttu
með blómum og sópaðu stéttina.
�����������������������������������������������������������
�������������������������� ������������������������
���������������������
������������������ �����������
������������� ����������������
����������������� ����������
�������������������
�����������������������������
���������������
Handrið og
stigasmíði
Mikið úrval af handriðum inni
sem úti. Stigar fáanlegir á lager
- Gerum tilboð í sérsmiði.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Kynningarverð
Betra aðgengi
í garðinn ?, stigi
getur leyst málið.....
Vantar stiga eða handrið ?
Við höfum lausn fyrir þig, mælum,
teiknum, smíðum og setjum upp
Enn betra verð, sömu gæði
Stigar á lager
Beinir stigar
Loftastigar
Mex - byggingavörur
Sími 567 1300 og 848 3215
www.byggingavorur.com
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �