Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 25
MÁNUDAGUR 16. október 2006 5
Fáðu fagmenn
í verkið
GETUR SPARAÐ TÍMA OG PEN-
INGA
Okkur er það tamt að gera
hlutina sjálf og eyða ekki í óþarfa
aðstoð. Aðstoðin er hins vegar í
mörgum tilvikum allt annað en
óþörf og þrátt fyrir kostnað getur
hún sparað okkur mikinn tíma
og fyrirhöfn.
Mikið þarf að gera þegar
flutt er inn í nýja íbúð. Meðal
þess er að leggja gólfefni. Fyrir
óvana tekur það langan tíma
og mistökin eru mörg. Flestir
fagmenn er mjög fljótir, vinna vel
og örugglega og þannig sparast
tími sem þú getur nýtt í eitthvað
annað. Ef þú ert að hugsa um
budduna geturðu eytt þessum
tíma í vinnu og þannig grætt í
leiðinni. Sama á við um málun
og veggfóðrun, en það getur
verið mjög erfitt og leiðigjarnt
verk að veggfóðra.
Flutningarnir sjálfir eru
heilmikið verk og það er ótrúlegt
hversu ódýrt það er að fá
flutningamenn. Eftir að herinn
fór er lítið að gera hjá þeim og er
verðið eftir því.
Ekki hika við að kanna
kostnað við fagmenn. Það kostar
ekkert að athuga og þú gætir á
endanum grætt nokkrar krónur.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SVEINSSON
Einfaldar múrviðgerðir
Í BÓKINNI VERK AÐ VINNA LEYNAST ÝMIS
GULLKORN, MEÐAL ANNARS ALMENN VIÐ-
GERÐARÁÐ Á MÚRVEGG UTANHÚSS.
Léttmúr á ekki að bleyta en steypan undir
á að vera blaut þegar múrinn er borinn á.
Grunna á viðgerðina með þunum grunni
eða útþynntri múrblöndu. Látið þorna.
Í sárið á að bera múrsementsblöndu.
Léttmúr eða annars konar viðgerðarmúr
dugar vel í smærri viðgerðir.
Notaðu breiða múrskeið eða bút úr borði
og dragðu múrinn upp og í sárið. Færðu
skeiðina fram og tilbaka þannig að múrinn
þrýstist inn í sárið og fái betri festu.
Þegar múrinn er farinn að þorna er unnið á
yfirborði viðgerðarinnar þannig að hún líkist
sem mest veggnum sem fyrir er. Notaðu kúst, múrskeið, strigapoka eða
þvíumlíkt. (Heimild: Verk að vinna, bls. 172)
Hérna sést dæmigerð
skemmd. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Slys á börnum og eldri borgur-
um verða oftast í heimahúsum.
Margt er hægt að gera til að
fyrirbyggja slík slys en ef þau
eiga sér stað er gott að eiga
skyndihjálparkassa.
Á heimasíðu Landsbjargar
kemur fram að aukin hætta sé á
slysum eldri borgara útaf skertri
sjón, heyrn og minnkaðs við-
bragðs þar sem aldraðir geri sér
ekki grein fyrir þessum breyt-
ingum.
Öryggi barna í heimahúsum
þarf varla að ítreka. Gott er að
kynna sér öryggismál hjá Lands-
björgu eða Rauða krossinum og
tryggja að allir séu öruggir
heima. Öryggisvörur fyrir börn
fást í barnabúðum, apótekum og
byggingarvöruverslunum.
Einnig má benda á heimasíður
Landsbjargar og Rauða krossins
á Íslandi sem gefa út ritað efni
um öryggi í heimahúsum. Þá
ættu öll heimili að eiga góðan
skyndihjálparkassa á stað þar
sem ung börn ná ekki til. Einnig
er vert að benda á að athuga
kassann reglulega til að bæta við
það sem vantar. Þar á meðal ann-
ars heima:
Verkjatöflur
Heftiplástur
Grisjuplástur
Sárabindi
Sáraböggull
Saltvatn til sárahreinsunar
Teygjubindi
www.landsbjorg.is/www.
Átt þú heima í slysagildru?
Það er mikilvægt að hafa skyndihjálpar
kassa við hendina heima
Víða er hægt
að komast
yfir gamla
olíutunnu
fyrir lítið fé.
Úr henni
má síðan
búa ódýran
reykofn.
Tunnan er
hreinsuð
vandlega og
gerð á hana
göt niðri við botn til þess að loft
streymi í hana. Kveikt er í kolum
í tunnunni. Fiskur er hengdur á
járnteina sem standa út af tunnu-
brúnunum. Nota má blautan poka
til að loka henni.
Heimild: 500 Hollráð, Handbók
heimilisins
húsráð }
Ódýr reykofn
ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001
Með fullkominni tölvustýringu og hátækni nuddbúnaði framkallar M-CLASS nuddstóllinn
áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með því að styðja á hnapp á meðfylgjandi fjarstýringu velur
þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni. Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú
vilt og þar sem þú vilt. M-CLASS nuddstóllinn er hannaður með þig og þínar þarfir í huga.
Við bjóðum þér að koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu 63 til að sannfærast.
Heilsunudd þegar þér hentar
Tilboð í október
(á meðan birgðir endast)