Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 34

Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 34
 16. október 2006 MÁNUDAGUR14 Arkitektinn: Hjördís Sigurgísladóttir og Dennis Davíð Jóhannesson Inngangur sendiherrabústaðarins. MYND/WERNER HUTHMACHER, BERLÍN Arkitektar Hjördís & Dennis er fyrirtæki í miðborg Reykjavíkur. Það heitir eftir eigendunum, Hjördísi Sigurgísladóttur og Dennis Davíð Jóhannessyni sem hófu samstarf árið 1995. Verkefni þeirra hafa verið fjölbreytt að stærð og gerð. Nefna má skólabyggingar, íbúðarhús, félagsheimili, sundlaugar og hótel. „Við teljum umhverfið ótvírætt hafa áhrif á lífsgæði fólks og því leggjum við okkur fram um að hanna vandaðar byggingar og innréttingar,“ segir Dennis og Hjördís tekur undir það. Hún segir tækniþekkingu og sköpunargleði jafnan vera með í för en notagildi og tilfinning fyrir staðháttum sé einnig ávallt höfð að leiðarljósi. „Við leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum faglega og persónulega þjónustu og tökum fullt tillit til tíma og kostnaðarsjónarmiða.“ Hjördís og Dennis velja tvö nýleg samkeppnisverkefni til að sýna lesendum Fréttablaðsins; sendiherrabústað í Berlín og viðbyggingu við Laugarnesskóla. Byggingarnar eru um margt ólíkar þó að báðar séu nútímalegar. Sendiherrabústaðurinn er áberandi bygging í grónu umhverfi í Berlín. Hún hefur það tvíþætta hlutverk að vera bæði opinbert móttökurými og heimili sendiherra Íslands þar. Eldri bygging Laugarnesskóla nýtur verndunar og viðbyggingin tengist henni af nærgætni og virðingu. Innra er hún opin og björt og hönnuð samkvæmt nýjustu hugmyndum um einstaklingsmiðað nám. Viðbyggingin við Laugarnesskóla lætur fremur lítið yfir sér að utanverðu en innra er hún opin og björt. Umhverfið hefur áhrif á lífsgæði fólks Byggingin hefur það tvíþætta hlutverk að vera bæði opin- bert móttökurými og heimili sendiherra Íslands í Berlín. MYND/WERNER HUTHMACHER, BERLÍN Sendiherrabústaðurinn í Berlín er áberandi bygging í grónu hverfi. MYND/WERNER HUTHMACHER, BERLÍN Eignamiðlun Suðurnesja Eignamiðlun Suðurnesja kynnir 12 íbúða fjölbýlishús í byggingu í Laut 16, Grindavík. Húsið er steyptar einingar frá einingarverksmiðjunni Borg. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna. Innréttingar, fataskápar og hurðir eru að vali kaupenda; eik, maghony eða lakkað hvítt. Húsið verður steinað að utan. Lóð verður tyrfð og bílaplan malbikað. Húsið er vel staðsett nálægt skóla og leikskóla. � Þriggja herbergja íbúðir frá kr. 13.900.000,- � Fjögurra herbergja íbúðir frá kr. 17.500.000,- Íbúðirnar verða tilbúnar 1. október 2007 Byggingaraðili: Landmenn ehf. Reynir Ólafsson löggiltur fasteignasali Snjólaug Jakobsdóttir sölumaður, Grindavík Fru m Víkurbraut 46 240 Grindavík Sími 426-7711 www.es.is Fr u m Laut 16 Grindavík

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.