Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 69
MÁNUDAGUR 16. október 2006 29
Í tilefni af 5 ára afmæli Smáralind-
ar var blásið til tískusýningar á
fimmtudaginn þar sem gestum
gafst kostur á að sjá það nýjasta
sem er að gerast í vetrartískunni
hjá verslunum Smáralindar.
Áhersla var lögð á yfirhafnir, tösk-
ur og fylgihluti enda er það með því
helsta sem endurnýjar sig fyrir
veturinn. Sýningin var hin glæsi-
legasta og var það Anna Rakel
Róbertsdóttir sem sá um hana.
Fyrirsæturnar þrömmuðu niður
tískupallinn í takt við tónlist úr
smiðju Gísla Galdurs plötusnúðs.
Tískan í Smáralind
FALLEGT Margt var um manninn á fimmtudagskvöldið í Smáralind og gestir forvitnir
að sjá hvað er í gangi í tískunni fyrir komandi vetur.
ÞEYTTI SKÍFUM Hinn þekkti plötusnúður Gísli Galdur sá um tónlistina í sýningunni.
FJÓLUBLÁTT Einn af heitari litum vetr-
arins og hér sést stutt kápa í þessum
fallega lit. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRDUR
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Maður þarf kannski ekki að vera
samkynhneigður til þess að njóta
tónlistar Scissor Sisters, en maður
þarf svo sannarlega að vera hýr.
Þessir tónar eru á svo ýktri upp-
sveiflu að það er bara ekki mögu-
legt að hafa gaman af þessu ef
maður er dramafíkill eða eilífðar
fýlupúki.
Það er ekki hægt að segja annað
en að Ta-Dah sé skotheldur fylgi-
fiskur fyrstu plötu þeirra. Þar sem
þau virtust hvort eð er vera fyrir
kampavín og glamúr áður en þau
urðu fræg er líka ómögulega hægt
að segja að frægðin hafi breytt
þeim nokkuð, bara leyft þeim að
skína sínu skærasta. Fyrir tveimur
árum skiluðu þau af sér partíplötu
undir töluverðum áhrifum frá Elton
John. Núna kemur Elton John bæði
við sögu sem gestur og meðhöfund-
ur. Á þessari plötu er líka lag sem
heitir Paul McCartney. Þýðir það þá
að hann muni semja með þeim
næstu plötu? Það er þó ekki eins og
þau þurfi á því að halda, þessar
poppsmíðar eru skotheldar, spyrjið
bara Kylie sem fékk þau til þess að
semja næstu plötu með sér.
Þetta er sama diskópoppið og
síðast. Það er svo froðukennt að það
er kannski ekki auðveldasti hlutur í
heimi að hlusta alla leið í gegn í
einni atlögu, en hér vantar svo
sannarlega ekki slagarana. Uppá-
halds lögin mín eru dramatíska til-
finningapopplagið The Other Side,
popplagið She´s My Man og I Can´t
Decide sem hljómar eins og lag sem
Dóróthea myndi flauta valhoppandi
á leið sinni niður gula múrsteina-
veginn í átt að Galdrakarlinum í Oz.
Lights ætti svo að höfða vel til allra
aðdáenda Bee Gees.
Önnur breiðskífa Scissor Sisters
framlengir án efa góða skapið, en
ekki dirfast að setja þessa plötu á ef
þú ert í fýlu! Þá hljómar þessi tón-
list bara eins og einhver sé að gera
grín að þér. Birgir Örn Steinarsson
Pottþétt hommapopp!
SCISSOR SISTERS:
TA-DAH
NIÐURSTAÐA: Önnur breiðskífa Scissor Sist-
ers er nokkuð skotheld poppplata. Við eigum
bókað eftir að standa okkur að því að raula
lög af þessari plötu í tíma og ótíma á komandi
mánuðum.
John Forsythe, fyrrum leikari í
bandarísku sápuóperunni Dynasty
og rödd Charlie í sjónvarpsþáttun-
um og kvikmyndunum Charlie´s
Angels, greindist með krabbamein
fyrir einum mánuði. Er hann við
ágæta heilsu núna eftir að hafa
gengist undir aðgerð á sjúkra-
húsi.
Forsythe, sem er 88 ára, lék
Blake Carrington í Dynasty á
árunum 1981 til 1989. Var hann
þrívegis tilnefndur til Emmy-
verðlaunanna.
Forsythe hóf feril sinn á fimmta
áratugnum. Lék hann m.a. í mynd-
um Alfred Hitchcock; The Trouble
With Harry og Topaz.
Dynasty-
stjarna veik
DYNASTY John Forsythe ásamt með-
leikkonum sínum úr Dynasty: Diahann
Carroll, Lindu Evans og Joan Collins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bítillinn fyrrverandi Paul McCartn-
ey ætlar að skrá nafn sitt sem vöru-
merki. Vill hann nota nafnið í
tengslum við ýmiss konar fatnað
sem hann ætlar að senda frá sér í
framtíðinni auk þess sem vöru-
merkið verður notað fyrir græn-
metismatvörur úr herbúðum hans.
Með því að skrá nafnið sem
vörumerki getur hann höfðað mál
gegn öllum þeim sem kynnu að
reyna að hagnast á nafni hans í
framtíðinni.
Skráð sem
vörumerki
PAUL MCCARTNEY Bítillinn fyrrverandi
ætlar að skrá nafn sitt sem vörumerki.