Fréttablaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 75
MÁNUDAGUR 16. október 2006 35
Norska úrvalsdeildin
LYN-BRANN 2-0
Stefán Gíslason lék allan leikinn í liði Lyn og lagði
upp fyrra markið en Indriði Sigurðsson var ekki
í hópnum. Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur
Örn Bjarnason léku allan leikinn fyrir Brann en
Ármann Smári Björnsson sat á bekknum.
MOLDE-VÄLERENGA 0-3
Marel Baldvinsson var í byrjunarliði Molde en var
skipt útaf í síðari hálfleik. Árni Gautur Arason lék
allan leikinn í liði Välerenga.
ODD GRENLAND-VIKING 0-1
Birkir Bjarnason kom inn á á síðustu mínútu leiks-
ins.
SANDEFJORD-LILLESTRÖM 1-1
STABÆK-START 2-2
Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn og skoraði
fyrra mark Stabæk. Jóhannes Harðarson var ekki í
leikmannahópi Start.
TROMSÖ-FREDRIKSTADT 3-1
STAÐAN:
ROSENBORG 22 13 6 3 38-20 45
SK BRANN 23 13 4 6 36-27 43
LILLESTRÖM 23 10 8 5 38-31 38
VÃ¥LERENGA 23 10 5 8 35-26 35
IK START 23 9 7 7 27-28 34
STABÆK 23 8 9 6 39-32 33
FC LYN 23 9 5 9 30-31 32
ODD GRENL. 23 7 8 8 28-31 29
HAM KAM 22 7 5 10 31-30 26
VIKING FK 23 7 5 11 24-31 26
SANDEFJORD 23 7 5 11 32-43 26
FREDRIKSTAD 23 6 7 10 33-43 25
MOLDE FK 23 7 3 13 26-38 24
TROMSÖ 23 6 5 12 29-35 23
Sænska úrvalsdeildin
ÖSTER-HÄCKEN 1-1
Hvorki Helgi Valur Daníelsson né Ari Freyr Skúla-
son léku með sínum liðum.
Danska úrvalsdeildin
FC NORDSJÆLLAND-SILKEBORG 5-1
Hörður Sveinsson, Hólmar Örn Rúnarsson og
Bjarni Ólafur Eiríksson voru allir í byrjunarliði
Silkeborgar. Hörður Sveinsson skoraði eina mark
liðsins og lék allan leikinn en Hólmari og Ólafi var
skipt út af í síðari hálfleik.
BRÖNDBY-FC MIDTJYLLAND 1-3
Hannes Þ. Sigurðsson var í byrjunarliði Bröndby
og skoraði eina mark liðsins.
Spænska úrvalsdeildin
BARCELONA-SEVILLA 3-1
REAL BETIS-DEPORTIVO 1-1
VILLARREAL-ESPYANOL 0-0
SOCIEDAD-ZARAGOZA 1-3
OSASUNA-RACING 0-1
LEVANTE-MALLORCA 0-1
GIMNASTIC-ATHLETIC BILBAO 2-3
CELTA VIGO-VALENCIA 3-2
STAÐAN:
FC BARCELONA 6 5 1 0 16-5 16
VALENCIA CF 6 4 1 1 12-5 13
AT. MADRID 6 4 1 1 10-5 13
SEVILLA FC 6 4 0 2 13-8 12
REAL MADRID 6 3 2 1 8-3 11
REAL ZARAGOZA 6 3 1 2 14-9 10
DEPORTIVO 5 3 1 1 7-4 10
RECREATIVO 6 3 1 2 8-6 10
Enska úrvalsdeildin
NEWCASTLE-BOLTON 1-2
1-0 Shola Ameobi, víti (19.), 1-1 El-Hadji Diouf
(55.), 1-2 El-Hadji Diouf (57.).
STAÐA EFSTU LIÐA:
MAN. UNITED 8 6 1 1 17-5 19
CHELSEA 8 6 1 1 13-4 19
BOLTON 8 5 2 1 9-4 17
PORTSMOUTH 8 5 1 2 12-3 16
ARSENAL 7 4 2 1 11-4 14
ASTON VILLA 8 3 5 0 10-5 14
Ítalska úrvalsdeildin
ASCOLI-LIVORNO 0-2
0-1 Danilevicius (23.), 0-2 Filippini (63.).
EMPOLI-FIORENTINA 1-2
1-0 Matteini (29.), 1-1 Mutu (67.), 1-2 Toni (77.).
INTER MILAN-CATANIA 2-1
0-1 Marcara (16.), 1-1 Stankovic (29.), 2-1 Stank-
ovic (76.).
PALERMO-ATALANTA 2-3
0-1 Doni (14.), 1-1 Bresciano (18.), 1-2 Rivalta
(31.), 2-2 Corini, víti (45.), 2-3 Tissone (56.).
PARMA-UDINESE 0-3
0-1 Muntari (8.), 0-2 Iaquinta, víti (11.), 0-3 Iaqu-
inta (66.).
REGGINA-ROMA 1-0
1-0 Amoruso (47.).
TORINO-CHIEVO 1-0
1-0 Stellone (48.).
LAZIO-CAGLIARI 0-0
STAÐA EFSTU LIÐA:
INTER 6 4 2 0 12-8 14
AS ROMA 6 4 0 2 10-3 12
PALERMO 6 4 0 2 14-12 12
UDINESE 6 3 2 1 9-4 11
SIENA 6 3 2 1 8-6 11
Þýska úrvalsdeildin
COTTBUS-DORTMUND 2-3
NURNBERG-BIELEFELD 1-1
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var í byrjunarliði Barcelona sem
lagði Sevilla að velli í spænsku
úrvalsdeildinni í gær, 3-1. Leikur
var því miður ekki í beinni útsend-
ingu á Sýn vegna deilna Sevilla
um sjónvarpsrétt á leikjum félags-
ins en hvergi í heiminum var hægt
að sjá leikinn í beinni útsendingu í
sjónvarpi. Það voru ekki amalegir
leikmenn sem léku við hlið Eiðs
Smára í framlínu Barcelona, en
það voru þeir Ronaldinho og Lionel
Messi.
Ronaldinho kom Barcelona yfir
með marki úr vítaspyrnu á 28.
mínútu. Frederic Kanoute jafnaði
leikinn fyrir Sevilla með marki á
37. mínútu en Adam var ekki lengi
í Paradís því tveimur mínútum
síðar kom Ronaldinho Barcelona
aftur yfir og þannig stóðu leikar í
hálfleik.
Lionel Messi skoraði þriðja
mark Barcelona þegar tíu mínút-
ur voru eftir af leiknum og þar við
sat, 3-1 sigur Barcelona stað-
reynd. Eiði Smára var skipt út af
þegar sjö mínútur voru eftir og í
hans stað kom Argentínumaður-
inn Javier Saviola, en þeir tveir
bítast um sæti í liðinu í fjarveru
Samuels Eto‘o sem er meiddur.
Barcelona situr því eitt á toppi
deildarinnar þar sem Valencia
tapaði sínum leik í gær. - dsd
Eiður Smári var í byrjunarliði Barcelona sem lagði Sevilla á heimavelli:
Börsungar einir á toppnum
EIÐUR SMÁRI Er hér í baráttu við Javi Navarro, leikmann Sevilla, í leik Barcelona og
Sevilla í gær. Eiður náði ekki að skora í leiknum. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Knattspyrna er vinsæl-
asta íþrótt í heimi og þær þjóðir
sem hafa staðið í fremstu röð í
íþróttinni koma flestar ef ekki
allar frá tveimur heimsálfum,
Evrópu og Suður-Ameríku. Engin
þjóð utan þessara heimsálfa hefur
til að mynda unnið Heimsmeist-
arakeppnina í knattspyrnu. Það
vekur því athygli manna þegar
litið er á markahæstu leikmenn
víðsvegar um Evrópu, hve margir
leikmannanna koma frá Afríku.
Á Englandi hefur afrískum
knattspyrnumönnum fjölgað ört
síðustu ár og markahæsti leikmað-
ur deildarinnar er enginn annar
en Nígeríumaðurinn Kanu, sem
leikur með Portsmouth. Kanu var
með lausan samning í sumar og
flestir töldu að hann ætti ekki
mikið eftir en Harry Redknapp,
framkvæmdastjóri Portsmouth,
hefur blási nýju lífi í feril leik-
mannsins, sem hefur skorað sex
mörk í deildinni. Einn heitasti
sóknarmaður ensku deildarinnar
er Didier Drogba, leikmaður Chel-
sea, en hann kemur frá Fílabeins-
ströndinni. Drogba hefur skorað
samtals átta mörk í öllum keppn-
um og skyggt á félaga sinn í fram-
línu Chelsea, Andei Shevchenko,
sem var keyptur á metfé frá AC
Milan í sumar. Auk þessara sókn-
armanna hefur Suður-Afríkumað-
urinn Benni McCarthy skorað
fjögur mörk fyrir Blackburn og
hann skoraði m.a. markið gegn
Liverpool á laugardaginn.
Á Spáni þarf Eiður Smári að
kljást við einn besta sóknarmann í
heimi um sæti í liði Barcelona, en
það er Samuel Eto‘o frá Kamerún.
Eto‘o er að vísu meiddur þessa
dagana en fyrir meiðslin náði hann
að skora fjögur deildarmörk og er
markahæstur ásamt öðrum Afr-
íkumanni, Frederic Kanoute. Kan-
oute er fæddur í Frakklandi en
leikur fyrir landslið Malí, þar sem
foreldrar hans eru þaðan.
Í Frakklandi hafa margir Afr-
ískir leikmenn fengið tækifæri og
slegið í gegn. Þegar þetta er ritað
eru tveir leikmenn á meðal
fjögurra markahæstu leikmanna
deildarinnar frá Afríku. Þeir leik-
menn sem um ræðir eru Aruna
Dindane frá Fílabeinsströndinni,
sem leikur með Lens, og Nígeríu-
maðurinn Peter Odemwingie,
leikmaður Lille. Þeir hafa skorað
fimm mörk hvor fyrir félög sín.
Upptalningunni er ekki lokið
því í Þýskalandi er enn einn sókn-
armaðurinn frá Fílabeinsströnd-
inni að slá í gegn. Það er Boubacar
Sanogo, leikmaður Hamburg, en
hann hefur skorað fjögur mörk í
deildinni og er markahæstur.
Sanogo skoraði einnig eina mark
Hamburg gegn Arsenal í Meist-
aradeild Evrópu.
Það er því ljóst að nýráðinn
þjálfari Fílabeinsstrandarinnar,
Þjóðverjinn Uli Stielike, hefur úr
vöndu að velja þegar hann þarf að
velja landslið sitt. Næsta heims-
meistarakeppni í knattspyrnu fer
fram í Suður-Afríku og nú er bara
spurningin hvort einhver Afríku-
þjóð nær árangri með allan þann
efnivið sem fyrir er í álfunni.
dagur@frettabladid.is
Afríka á marga af mestu
markaskorurum Evrópu
Þjóðir frá Afríku hafa ekki náð langt á HM í knattspyrnu en hver veit nema þar
verði breyting á í framtíðinni því árangur leikmanna þaðan er áhugaverður.
BOUBACAR SANOGO Er markahæstur í
Þýskalandi. NORDICPHOTOS/GETTY
MARKAHÆSTU Á ENGLANDI Kanu hefur farið á kostum eftir að hann gekk í raðir
Portsmouth og er markahæsti leikmaðurinn í úrvalsdeildinni.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Sex leikir fóru fram í
norsku úrvalsdeildinni í gær en
senn líður að lokum leiktíðarinn-
ar þar í landi. Nokkur Íslendinga-
lið eru í harðri fallbaráttu og
spennan er ekki síðri á toppi
deildarinnar. Sjö Íslendingar
voru í sviðsljósi með sínum liðum
í gær.
Veigar Páll og félagar hans í
Stabæk gerðu jafntefli við Start,
félag Jóhannesar Harðarsonar, 2-
2. Ekki er langt síðan Veigar Páll
lá veikur á sjúkrahúsi hér á landi
en hann var mættur í byrjunarlið
Stabæk og skoraði fyrra mark
liðsins undir lok fyrri hálfleiks.
Jóhannes Harðarson á enn við
meiðsli að stríða og lék ekki með
Start í gær.
Íslendingaliðin Molde og
Välerenge mættust í gær og þar
fóru Árni Gautur og félagar hans
í Välerenga með sigur af hólmi,
3-0. Marel Baldvinsson var í byrj-
unarliði Molde en var skipt útaf
þegar 23. mínútur voru eftir af
leiknum, en Árni Gautur stóð í
marki Välerenga í leiknum. Tapið
skilur Molde eftir í fallsæti en
Välerenga er í þægilegri stöðu,
rétt fyrir ofan miðja deild.
Birkir Bjarnason kom inn á
sem varamaður í liði Viking á
lokamínútunni þegar Viking lagði
Odd Grenland af velli á útivelli,
1-0.
Lyn vann leikinn Brann 2-0,
þar sem Stefán Gíslason lagði
upp fyrra mark Lyn í leiknum.
Kristján Örn Sigurðsson og Ólaf-
ur Örn Bjarnason voru á sínum
stað í miðju varnarinnar hjá
Brann en Ármann Smári sat á
bekknum. Indriði Sigurðsson var
ekki í leikmannahópi Lyn í leikn-
um. Tapið var dýrkeypt fyrir
Brann sem er í öðru sæti deildar-
innar, tveimur stigum á eftir Ros-
enborg.
- dsd
Nokkrir Íslendingar voru í sviðsljósinu með liðum sínum í Noregi í gær:
Veigar Páll var á skotskónum
FÓTBOLTI Landsliðsfyrirliðinn
Eiður Smári Guðjohnsen hefur
verið duglegur við að segja
þjálfara sínum Frank Rijkaard
allt um Chelsea, en þessi lið
mætast í Meistaradeild Evrópu á
miðvikudaginn.
„Ég er búinn að gefa Rijkaard
nokkur góð ráð varðandi leikað-
ferð Chelsea og leikmennina. Ég
var hjá Chelsea í sex ár og veit
margt um leikmenn liðsins, bæði
styrkleika þeirra og veikleika. Ég
hef líka verið að segja Rijkaard
ýmislegt um leyndarmálin hans
Mourinho, t.d. frá sérstökum
aðferðum sem Mourinho beitti á
æfingasvæðinu til að sigra
Barcelona síðast þegar liðin
mættust,“ sagði Eiður Smári.
- dsd
Eiður Smári Guðjohnsen:
Upplýsir Rijka-
ard um Chelsea
FÓTBOLTI Sá sjaldgæfi atburður
átti sér stað í leik Reading og
Chelsea á laugardaginn að báðir
markverðir Chelsea þurftu að
yfirgefa völlinn meiddir. Fyrst
fór Petr Cech af velli, alvarlega
meiddur eftir árekstur við
Stephen Hunt, og undir lok
leiksins þurfti varamarkvörður-
inn Carlo Cudicini einnig að fara
meiddur af velli.
Báðir markverðirnir hlutu
þung höfuðhögg og voru fluttir á
sjúkrahús. Cudicini var útskrifað-
ur af sjúkrahúsinu síðar sama
dag en Cech gisti nóttina á
sjúkrahúsinu og gekkst undir
aðgerð í gær. Búist er við því að
þriðji markvörður liðsins,
Portúgalinn Hilario, muni standa
á milli stanganna í leik Chelsea og
Barcelona á miðvikudaginn. - dsd
Markverðir Chelsea:
Petr Cech
fór í aðgerð
ALGENG SJÓN Í LEIKNUM Læknar Chel-
sea eru hér að huga að Petr Cech.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Enski landsliðsmaðurinn
Wayne Rooney er farinn að ræða
við forráðamenn Manchester
United um nýjan samning.
Núverandi samningur Rooneys
rennur ekki út fyrr en eftir
fjögur ár en þrátt fyrir það vill
enska félagið gera nýjan sem
myndi koma honum í hóp meðal
launahæstu manna í sögu
félagsins.
Rooney hefur legið undir
talsverðri gagnrýni það sem af er
tímabili fyrir frammistöðu sína á
vellinum. - egm
Wayne Rooney:
Farinn að ræða
nýjan samning