Tíminn - 20.05.1979, Page 12

Tíminn - 20.05.1979, Page 12
12 Sunnudagur 20. mai 1979. SveitarstjómarmáJ fjailar um bókasöfn JÓNAS GUÐMUNDSSON: Samband Islenskra sveitar- félaga hefur i um þaö bil 40 ár gefið út timaritið Sveitar- stjórnarmál sem er eins konar sérrit um málefnisveitarfélaga. Þetta er mjög fróðlegt rit og oft birtast þar merkilegar greinar og ritgerðir, þótt auðvitað sé ekki allt jafn áhugavert fyrir ai- mennan lesanda. Ritstjóri þessa blaðs er nú Unnar Stefánsson en ábyrgðar- maður er Jón G. Tómasson, borgarlögmaður, sem er for- maður sambands sveitarfélaga. Sveitarstjórnarmál taka stöku sinnum fyrir einstaka málaflokka, þótt yfirleitt sé nú efni ritsins blanda af kveinstöf- um og draumum, eins og verða vill um slik rit.sem berjast fyrir aukinni miðstýringu og stjórn- un. Sveitarstjórnarmál heldur sig yfirleitt innan viröulegra tak- marka i skrifum sinum. Þetta er ekki hasarblað, fullt af stór- yröum og illgirni, heldur hefur ritið rólegt, fræöilegt, og stund- um búralegt yfirbragö, eins og gengur, en ekki var samt ætlun- in að gera neina aUsherjarút- tekt á þessu timariti, heldur ræða ofurlitið efni fyrsta tölu- blaðs þessi ár og málsmeðferð þá er þar er viðhöfð, en það eru bókasafnsmál. Kemur storkurinn með bækurnar? Sveitarstjórnarmál helga bókasöfnum i landinu verulegt rúm I fyrsta tölublaði þessa árs. Löng og fróðleg grein er um Amtsbókasafnið á Akureyri 150 ára, eftir Lárus Zophaniasson. Nýr bókafulltrúi rikisins er kynntur, enhún heitirKristin H. Pétursdóttir og hefur lært að raða bókum i mörgum löndum. Sagt er frá 5. landsfundi bóka- varöa 6.-7. september 1978. Grein er um Miðsöfn og þjón- ustu þeirra i bókasafnsumdæm- um, eftir Jóhann Hinriksson og Sigriði Magnúsdóttur á Isafirði. Grein er um þjónustumiðstöð bókasafna eftir Jón Sævar Baldurssonog aðlokum er grein um hlutverk þjónustumið- stöövar bókasafna eftir Hrafn Harðarson bæjarbókavörð i Kópavogi. Þaðer einkenni á þessari um- fjöilun Sveitarstjórnarmála, að hvergi er rætt um rithöfunda, útgefendur eöa bókageröar- menn eða öllu heldur fram- leiðendur bóka. Að visu er rætt hæðnislega um að Þjónustumið- stöð bókasafna, sem innan skamms tekur til starfa, hafi fengið til umráöa kjötbúö sem hætti starfsemi. Þar stendur: „Þeirsem átt hafa leiö fram hjá Kjötbúð Guðlaugs Guð- mundssonar, Hofsvallagötu 16 i Reykjavik undanfarið.hafa rek- iö upp stór augu. t glugganum stendur nefnilega skýrum stöf- um: „Lokuð sém kjötbúö opnar sem Þjónustumiðstöð bóka- safna”. Þegar vegfarendur li'ta svo inn um gluggann á fyrrverandi kjötbúð blasa viö augum hrúgur af ónýtum veggflisum, sprungið gólf og á veggjum útlinur af auglýsingastöfum FOLALDA- KJOT — DILKAKJÖT. A miðju gólfi stendur vigalegt fólk með hamra.spaða, fötur af sparsli og málningu og gengur berserks- gang. Hvað hyggst blessað fólk- ið íyrir?” Og að lokum stendur þetta og drýldnin leynir sér ekki: „í staðkæliborðs ogkjötkróka munu koma skrifborð, bóka- skápar og sýningarborð þar sem sýndar verða ýmiss konar bókasafnsvörur. Reynt verður að innrétta þjónustumiðstöðina þannig að bókavarðafélögin geti haldið þar stjórnarfundi og jafnvel stærri samkomur og miðstöðin geti þannig haft örvandi áhrif á félagslif bókavarða. A veggina munu koma myndir frá listlánadeild Nor- ræna hússins, veggspjöld sem minna á bókasöfn, og jafnvel litlar sýningar”. Það er ef til vill dæmigert fyrir umf jöllun Sveitarstjórnar- mála, hvernig þarna er tekið á málum. Þess er ekki getið að siðasti eigandi þessarar kjöt- búðar var Guölaugur Guð- mundsson, rithöfundur, sem seldi spaðket og fleira sér til framfærslu til þess að geta skrifað úr sér augun á nóttunni, til að búa til bækur, sem sumar eru svo góðar að menn eins og Ragnar i' Smára hafa orðið að gripa til pennans og virt bóka- forlag veitti honum sérstök verðlaun, bókmenntaverðlaun i peningum á seinasta ári. „A veggina munu koma myndir frá listlánadeild Nor- ræna-hússins, veggspjöld sem minna á bókasöfn og jafnvel litl- ar sýningar” en þannig hljóðar fjallræðan sem virðist vera megininntak bókasafnsfræða og umræöunnar um almennings- bókasöfn. Það vekur athygli, aö hvergi er i þessari miklu úttekt Sveitarstjórnarmála minnst á rithöfunda, fræðimenn, bókaút- gefendur, eða bókageröarmenn. Að vísu er á einum stað minnst á „aðstöðu fyrir fræöimenn”. Þó er athyglisvert.sem Amts- bókavörðurinn segir. Hann kvartar sáran undan prent- skilasa&iinu og vill fá peninga frá rikinu með prentskilamun- um, sem ekki eru annað. en hreinn aukaskattur á bókaút- gáfuna í landinu, sem nemur tugum milljóna á ári hverju. Hann segir: „Með lögum nr. 43. 16. mai 1977 um skylduskil til safna (leturbr. blaðsins) er þetta framtak safnsins viðurkennt á þann hátt, að framvegis skal það vera eina bókasafnið utan höfuðborgarinnar sem gert er að varðveita allt prentskilaefni. Forráðamenn safnsins eru þakklátir fyrir það traust sem þvi er sýnt með þessu en jafn- framt er þeim ljóst að lög þessi leggja Amtsbókasafninu og Akureyrarbæ töluverða fjár- hagsskuldbindingu á herðar. önnur söfn sem samkvæmt lög- um þessum eiga að varðveita allt prentefni erurikissöfn og þá er spurning hvort Akureyrar- bær, eitt sveitarfélaga skuli gera hið sama án stuðnings rikisins þvi allmikill kostnaður fylgir vegsemd þessari”. Rithöfundar og bókaútgef- endur lita samt nokkuð öörum augum á þessi skylduskil. Bóka- útgefendur eru með lögum skyldaðir til að afhenda fimm eintök af hverribók, þar af eitt i bandi ókeypis til safnlegrar varðveislu. Þessi eintök eru fengin Landsbókasafninu. Ef miðað er við fjölda bókartitla undanfarin ár eru þetta á bilinu 1500-2000 bindi á ári. Bók kostar 5-7000krónur, þannigaðþetta er ekki svo litill skattur, því fýrir- tækin og rithöfundar greiöa aö auki opinber gjöld eins og aörir einstaklingar og fyrirtæki á þessu landi. Bókavörðurinn tek- ur væntanlega fullt verð fyrir sin störf og þvi reiknum viö bækur á fullu verði. En hvers vegna skyldi það nú vera, að rithöfundar og bókaút- gefendur eru aldrei teknir með, þegar rætt er um bókasöfn. Halda forystumenn sveitar- félaga og menn sem raða bók- um að storkurinn komi með bækurnar? Nei, þarna er á ferð- inni feimnismál, þvi starfsemi bókasa&ia er eitt af þvi sem kemur ivegfyrirað rithöfundar geti séð fyrir sér með skrifum sinum. Bókasöfnin höndla nefiiilega með þýfi að nokkru leyti. Söfn draga úr sölu bóka og svipta höfunda laun- um Söfnin draga úr sölu bóka. Meðsamstarfi safna má komást hjá bókakaupum og halda þe&n i lágmarki. Skólabókasöfn, Borgarbókasafn og fleiri ljós- rita (gefa út) hluta bóka i al- gjöru heimildarleysi þannig að menn geta sparað sér bókakaup i tima og ótima. Rithöfundar vita t.d. að margir skólar og skólabókasöfn stunda þá iðju að fjölfalda með ljósritunarvélum heilu bókar- kaflanatilað dreifa meðal nem- enda. Þetta eruauðvitað ólögleg útgáfa og rithnupl afverstu teg- und, þannig að menn komist hjá að greiða höfundum og útgef- endum fyrir slna v&inu, og „sparað” er með þvi mikil bók- arkaup, enda fer það brátt að verða óðs manns æði að kaupa bækur, þvi „þjónustan” verður brátt svo mikil, aðeitt bókasafn verður fyrir hverjar 450 sálir, og til að hindra bókakaup, þá eiga þessi söfn aö hrókera bókum og ljósrita ólöglega. Það er hka þegar farið að koma i ljós, að upplög bóka eru að minnka á Islandi og nú er svo komið, að örðugt er aö fá út- gefiiar bækurvegna skipulagðr- ar safiiastarfsemi i landinu. Þvi rikiðsér svo um, að höfundar fái nánast ekki neitt fyrfi- bækur i söfrium, en á hinum Noröur- löndunum koma megintekjur rithöfunda einmitt frá söfnun- um. Sem dæmi um þetta, að þá fá okkar mestu höfundar, sem eiga þúsundir bóka i söfnum aðeins um það bil 20-50.000 á ári fyrfi- lestur bókanna. Flestir rithöf- undar fá innan við 10.000 krónur á ári, höfundar sem þó hafa skrifað um það bil tug bóka. Sem dæmi um viðskiptahætti bókasafna við bókasöfnin, þá fá höfundar sem svarar 50 krónum fýrir hverja talda bók i Borgar- bókasafniReykjavikur, er þessi tala siðantvöfölduð. Tilaðfinna landsmeðaltal, og þetta fá þefi- aðeins einu sinni. Halldór Lax- ness fær til dæmis fyrir allar sinar bækur i söfnum lægri upp- hæð á ári, en nemur kauphækk- un flugmanna fyrr á þessu ári, og er hann þó hæstur, og Guð- mundur G. Hagalin, sem er næsthæstur, fær sem nemur andvirði eins barnavagns á ári fyrir allar sinar bækur i söfnum þessa lands. Fyrir ljósrit (út- gáfur) fá menn ekkert, og höf- undar sem eiga færri en 50 ein- tök I bókaskápum Borgarbóka- safnsins fá ekki neitt fyrir sinar bækur i söfnum landsins. Ef þetta kauprán er ástæða þess.að rithöfundar og fprleggj- arar eru aldreihafðir með, þeg- ar rætt er um bókasöfn, þá hlýtur að þvi að draga að söfnin og menn, sem raða bókum, drepi bókaútgáfuna i landinu meðhrókeringum og ólöglegum ljósútgáfum bókmenntarita. Rithöfundar og forleggjarar hljóta að lesa það með athygli, þegar virt timarit eins og Sveit- arstjórnarmál fjallar um bóka- safnsmál, rétt eins og storkur- inn komi með bækurnar, og láti sem söfnin varði ekki um hag útgáfu og höfunda, fremur en karlinn i tunglinu. Það skal að visu viðurkennt, að rikissjóður styður listamenn nokkuð á ári hverju, og fyrir það ber að þakka, en bókaránin verður að taka til rækilegrar endurskoðunar frá sjónarhóli bókaútgáfunnar og höfunda i landinu, áður en skipulag bóka- safna verður svo fullkomið, að bókaútgáfanleggstniöur alfarið i þessu landi. Nú er svo komiö að rikið ver meira fé til að raða bókum en til að fá þær skrifaðar, og við svo búið má ekki standa. bókmenntir

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.