Tíminn - 20.05.1979, Síða 15
Sunnudagur 20. mal 1979.
15
SKYNSAMLEGT
AÐ STEFNAN
ER ÓBREYTT
Helsintósáttmálann meö alger-
lega hreinan skjöld. Viö höfum
uppfyllt þær kröfur sem þar eru
settar fram til annarra rikja.
Þess vegna höfum viö aöstööu til
þess aö beita okkur á þessum
ráöstefnum og höfum gert þaö
eftir föngum.
Ég veit, aö islensk utanríkis-
þjónusta er fáliöuö, en hiín er vel
mönnuö og hún á aö geta tekiö
drjúgan þátt I þessum störfum,
hefur gert þaö og ég vænti þess,
aö hún muni halda áfram aö gera
þaö, þvl aö mikiö er i' húfi.
Um Afrikumálin mætti ýmis-
legt segja, en aöeins fátt af þvi
mun ég rekja hér. Þjóöir Afríku
eru nú smátt og smátt aö öölast
sjálfstæöi og íslendingar hafa frá
fyrstu tiö veriö framarlega i
stuöningi viö frelsishreyfingar i
viökomandi löndum og oft og ein-
att gengiö feti framar ai aörar
Noröurlandaþjóöir I þvl aö styöja
þetta fólk til sjálfstæöis. Ég bendi
aöeins á þetta og þetta kom mjög
glögglega fram i sjónvarpsþætti
sem ég horföi á, þar sem dr.
Gunnar Schram geröi grein fyrir
afstööu íslands til þessaramála á
vettvangi Sameinuöu þjóöanna á
réttan og skilmerkilegan hátt.
Ég tek undir þaö aö samstarfið
viö Noröurlöndin er gifurlega
þýöingarmikiö og mér dettur ekki
I hug aö gagnrýna utanrikis-
ráöherra fyrir það að gera þvi
ekki frekariskil en hér er gert i
skýrslunni, enda þótt ég hafi
verið gagnrýndur fyrir þaö,
vegna þess aö Norðurlandaráð
heyrir ekki undir utanrlkisráöu-
neytiö og þaö eru aörir, sem eiga
aö gefa skýrslur um störfin, sem
þar fara fram og þeir hafa llka
gert þaö.
Um Atlantshafsbandalagiö vil
ég aöeins segja þaö, aö ég hef frá
fyrstu tiö veriö fylgjandi því aö
Islandværiaöili aöþví bandalagi.
Hin svokölluöuvarnarmáleiga aö
liggja I þagnargildi og ég ætla þá
ekki aö fara aö hvetja til neinna
ótímabærra umræðna um þau
mál, — aðeins segja þaö aö ég
fagna þvl, aö áfram er haldið þvl
verki, sem hafið var fyrir 4 árum,
aö aöskilja herinn frá annarri
starfsemi á Keflavikurflugvelli.
Þetta hefur gengið nokkru hægar
en skyldi og heldur en ég vonaöi
en þaö miöar samt I rétta átt og
ég veit ekkibeturheldur en slfellt
sé verið aöflytja inn Inýjar Ibúöir
á þvi svæöi sem herfólkinu er
ætlaö til umráöa.
En ég vek enn þá einu sinni at-
hygli á þvi aö til þess aö þessi að-
stólnaöur geti oröiö raunveru-
legur, þarf aö byggja flugstöð á
öðrum staö heldur en sú stendur,
sem nú er notuö. Þaö er nauösyn-
legt. Og þegar ég var i Bandarikj-
unum ásamt embættismönnum,
þá var gengist inn á það að aö-
stoöa lslendinga fjárhagslega til
þessaö koma þessari flugstöö upp
og ég fæ ekki stóliö hvers vegna
rlkisstjórnin sem stefnir aö sllk-
um aðskilnaöi.ræöst ekki í þessa
byggingu. Éghef áöur sagt þaö aö
ef einhverjir eru i- vandræöum
meö aö samþykkja þetta þá er
einfalt ráö viö þvl.þaö er aö semja
bókun og birta hana og láta svo
þar við standa.
,,Ekki fýsilegt að senda
framsóknarmann”.
I sambandi viö þessa Banda-
rlkjaför get ég ekki alveg stillt
mig um aö vlkja örlltiö aö ööru,
þó aö þaö kannski komi þessari
umræöu um skýrslu utanrikis-
ráðherra ekki beinlinis viö. En ég
sé nefnilega ástæöu til þess aö
óska sjálfstæöismönnum alveg
sérstaklega til hamingju meö
þaö, aö þeir eru núna búnir aö
finna orsökina fyrir þvl, hvers
vegna þeir töpuöu Reykjavik.
Þaö kemur fram I Morgunblaöinu
á laugardaginn 5. mal sl. Þar er
haft eftir Geir Hallgrímssyni ný-
endurkjörnum formanni Sjálf-
stæöisflokksins:
„Geir kveöst hafa fariö utan i
skylduerindum. Sér heföi ekki
þótt þaö fýsilegt aö senda fram-
sóknarmann á fund NATO á kjör-
degi I Reykjavik”.
Þarna kemur skýringin á þvl,
hvers vegna Sjálfstæöisflokkur-
inn tapaöi Reykjavík og auövitaö
sem samviskusamur embættis-
maður, glöggur og góöur lög-
fræöingur,hlaut hannaö meta þaö
þannig, aö þaö yröi aö fórna
minni hagsmunum fyrir meiri, og
þó aö Reykjavlk heföi hingað til
þótt Sjálfstæöisflokknum mikils
viröi, þá var þaö þó enn þá meira
viröi aö framsóknarmaöur kæmi
ekki á NATO-fund I Washington.
Nú verð ég aö segja þaö að á
þessum fundi heyröi ég ekki Geir
Hallgrlmsson segja neitt þaö,
sem ég heföi ekki komist fram úr
að segja og engin launungarmál,
en þaö er nefnilega skylt að geta
þess, aö hann átti sérstakan fund
meBCarter Bandarikjaforseta og
þaö má vera, aö þaö hafi verið á
þeim fundi sem þau skilaboð voru
flutt, sem framsóknarmenn
máttu ekki vita um. Þetta kemur
auövitaö eldci þessari skýrslu
beint vifnen er þó kannskiekki al-
veg óviðkomandi þvi sem geröist
i sambandi viö varnarsamning-
inn eöa viöbótina við hann, sem
gerövar á slnum tima, þ.á.m. um
þá flugstöö sem ég áöan geröi aö
umræöuefni.
Eitt af þvi sem núverandi utan-
rlkisráöherra gagnrýndi mig
harölega fyrir var aö ég gat ekki I
skýrslu minni um eitt alvarleg-
asta vandamál Islendinga, sem
voru gffurlegar erlendar skuldir.
Ég hef lesiö þessa nýju skýrslu.
Ég hef ekki fundið aö þaö sé
minnst sérstaklega á þetta stór-
kostlega vandamál I henni. Má
vera, aö núverandi rikisstjórn sé
búin að lækka skuldirnar svo
mikiö aö þær séu ekki lengur
hættulegar. Ég hef ekki tölur um
það. En ekki heyrist mér þaö I al-
mennum umræöum og skrifum,
aö þannig hafi tetóst til aö um
verulega skuldalækkun hafi verið
aö ræöa.
Annað gagnrýnisatriði utan-
rlkisráöherra á mig I mi'nu fyrra
starfi var það, aö hann taldi að ég
sýndi verulegan tviskinnung í af-
stööu til Suöur-Afrlku. Ég væri
meö öörum Noröurlandaráöherr-
um aö samþykkja æ ofan I æ aö
ekki ætti aö hafa viöskipti viö
þetta land, og taldi þaö mjög
hneykslanlegt, að keyptar höföu
veriö appelsinur fyrir 260 millj.
kr. frá þessu riki á sama tima
sem stefnan þar var fordæmd.
Nú vil ég spyrja, af þvi aö ég
hef ekki flett þvi upp I töflum:
Hafa þessi viöstópti veriöstöövuö
og ef þau hafa ekki veriö stöövuö
hefur núverandi utanrikis-
ráöherra ekki tekiö undir for-
dæmingu á Suöur-Afrikustjórn?
Þetta þætti mér fróölegt til upp-
lýsingar og til þess að fá saman-
burö á oröum og athöfnum, ekki
bara hjá mér heldur einnig hjá
honum.
Jan Mayen og flugmálin
Ráðherrann greindi frá haf-
réttarmálumog þaö eru auövitaö
veruleg stórmál i augum okkar
allraogmál sem viö höfum boriö
gæfu til aöstanda saman um. Eitt
af þvi sem þar hefur komiö fram
er, aö þaö beri aö draga úr fisk-
veiöum Belga hér viö land.
Þessu er ég algerlega samþykkur
Þegar samningurinn viö Belgiu
vargeröur var þaö fyrir fram vit-
aö;aö þeir ætluöu sér aö hætta út-
gerö og þeir myndu ekki byggja
eöa kaupa ný skip, heldur láta
eldriskipingangaúrsér. Og éger
alveg sammála þeirri meöferö,
sem ráöherra hefur skýrtfrá, aö
viöhöfð veröi aö þaö veröi farið
fram á lækkun á þessum veiöum,
en samningnum ekki beinlinis
sagt upp.
Viö eigum þráfaldlega I sam-
stóptum viö Belga, sem eina af
þjóöum Efnahagsbandalags
Evrópu. Við erum aö sækja þar af
og til um tilteknar undanþágur
frá geröum samningi. Ég veit
ekki betur en til standi aö biöja
um aö leggja hér sérstakt gjald á
innfluttar vörur frá þessum rikj-
um til þess aö aöstoða islenskan
iönaö i samkeppninni sem
stendur þar höllum fæti. Og ég
tel, að þaö sé rétt stefna þess
vegna aöfara þannig aö, aö draga
úr sókninni I áföngum og loka
fyrir þorskveiöar, sem eru
Belgum sáralltils virði eins og á
þvl sést aö þeir hafa ekki einu
sinni fiskað allanþann þorsksem
þeir þó máttu samkvæmt
samningum.
Sama tel ég raunar gilda um
Norömenn. Ég er ekki hlynntur
þvl aö þeim örlitla samningi viö
Norðmenn.sem enn þá er f gildi
um 2000 lestir af fistó og þar af
nánast enginn þorskur, sé sagt
upp meðan stórmáliö um Jan
Mayen er á skrifboröum ráöherr-
anna og deiluefni þjóbanna. 1
sambandi viö Jan Mayen máliö
tel ég að Alþingi og Islenska
þjóðin eigi að taka einarðlega af-
stöðu og halda fast viö þá
ákvörðun aö viö eigum fullan rétt
á 200 mílum til noröurs, einnig
þannig að miölínan eigi ekki að
gilda þar.
Það veröur ekki meö neinum
rétti sagt, aö Jan Mayen sé byggö
eyja, enda þótt þar dvelji um það
bil 30-35 veöurathugunarmenn
hverju sinni. Þeir stóptast á um
aö vera þar en eiga þar ekki
heima. Þaö á enginn þar heima
og ég tel þess vegna, aö viö eigum
aö sýna fullaeinurö I þvi máli. Ég
veit að utanrikisráöiierra hefur
gert þaö og ég skora á hann að
halda áfram að gera þaö. Hitt er
svo annað mál, aö mér finnst
þessu máli ekki bráöliggja á. Ég
tel aö við getum látiö mál á Haf-
réttarráöstefnu þróast enn um
sinn en að viö megum ekki afsala
neinum rétti. Viö höfum ektó gert
þaö og ég treysti utanríkis-
ráðherra og rikisstjórninni fylli-
lega til þess aö gera þaö ekki og
hvika aldrei frá því sem viö höf-
um og teljum, aö sé okkar réttur.
Flugmálin eru I hættu. Það er
mikil hætta á þvi aö flug frá
Evrópu hætti viökomu á Islandi.
Þaö gera breyttar flugvélar og
breyttir tlmar, styttri flugtlmi,
meira flugþol o.s.frv. M.a. þess
vegna telég þaöenn þá brýnna nú
en nokkru sinni fyrr aö leitast
veröi viö að fá hjá Bandaríkja-
mönnum lendingarleyfi fyrir Is-
lenskar vélar á vesturströnd
Framhald á bls. 31
Verslunarskóli Islands
Umsóknir
um skólavist
Umsóknareyðublöð um skólavist í Versl-
unarskóla íslands fyrir næsta skólaár
verða afhent á skrifstofu skólans frá og
með 23. april.
Umsækjendum utan Reykjavikur, sem
þess óska, verða send umsóknareyðublöð.
Á það skal bent, að Verslunarskóli Islands
er sérskóli, sem tekur inn nemendur úr
öllum hverfum Reykjavikur og af öllu
landinu án tillits til búsetu. Með umsókn
skal senda ljósrit af árangri á grunnskóla-
prófi. Umsóknarfrestur er til 7. júni 1979.
Skólanefnd Veslunarskóla islands.
Fró Fjölbrautaskólanum
ó Akranesi
Skólinn óskar eftir upplýsingum um
hugsanlegar leiguibúðir fyrir kennara
næsta vetur. Má miða leigutima við 15.
ágúst.
Þá vill skólinn kanna hvaða ibúðaeig-
endur á Akranesi vilja leigja nemendum
herbergi á hausti komanda. Nánari upp-
lýsingar veitir Þorvaldur Þorvaldsson
simi 1408 og skrifstofa skólans simar:
2544, 2545 og 2546 kl. 9.00-15.00 virka daga.
Skólanefnd
Laus staða
Staða skjalavarðar á skrifstofu i Vonar-
stræti 4, er laus til umsóknar.
Umsókn er greini aldur, menntun og fyrri
störf, skal berast fyrir 26. mai n.k.
Upplýsingar um stöðuna veitir skrifstofu-
stjóri.
Ifl Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
1jj f Vonarstræti 4 sími 25500
Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiðar og bát,
er verða til sýnis þriðjudaginn 22. mai
1979, kl. 13-16, i porti bak við skrifstofu
vora að Borgartúni 7.
Toyota Corolla fólksbifreiö árg. ’75
Ford Bronco ” ’74
Willys Wagoneer ” ’74
Willys Wagoneer • ” ’70\
Land Rover lengri gerð bensln ” ’70
Chevrolet Suburban 4x4 sendif. bifr. ” ’75
Chevrolet Suburban sendif.bifreiö ” ’73
Ford Tranist sendiferöabifreiö ” ’73
Ford Transit sendiferöabifreiö ” ’73
Ford Transit sendiferöabifreið ” ’73
Ford Transit sendiferðabifreiö ” ’72
Bedford vörubifreiö ” ’64
Voivo vöru/fólksflutningabifreiö ” ’60
Plastbátur 17 feta, yfirbyggöur m.
60 ha. utanborösvél og tengivagni
Heybindivél Velger AP45 ” ’72
Til sýnis hjá Vegagerö rlkisins, Borgartúni 5, Atlas Copco
loftprcssa m. dieselvél, 160 cu. fet. ógangfær.
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að
viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn
að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðun-
andi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELE-X 2006