Fréttablaðið - 10.12.2006, Síða 10
Nýr dómur Hæstaréttar í
faðernismáli Lúðvíks Gizurarsonar
hæstaréttarlögmanns gegn tveim-
ur börnum Hermanns Jónassonar
fyrrverandi forsætisráðherra veld-
ur vonandi vatnaskilum í langvar-
andi málaferlum, að sögn Daggar
Pálsdóttur, lögmanns Lúðvíks.
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur þess
efnis að bróður Lúðvíks sé heimilt
að bera vitni í málinu. Lúðvík krefst
þess að gerð verði mannerfðafræði-
leg rannsókn á lífsýnum úr móður
hans og Hermanni til viðurkenn-
ingar á því að Hermann sé faðir
hans.
Börn Hermanns höfnuðu því og
hefur málið verið rekið fyrir dóm-
stólum síðan 2004. Það hófst raunar
með því að Lúðvík höfðaði véfeng-
ingarmál árið 2003 fyrir dómstól-
um til staðfestingar á því að Gizur,
eiginmaður móður hans væri ekki
faðir hans. Dómur gekk í því máli í
byrjun árs 2004. Sannað hafði verið
með mannerfðafræðilegum rann-
sóknum að Gizur gæti ekki verið
faðir Lúðvíks. Lúðvík er því föður-
laus í dag. Faðernismálið var síðan
þingfest haustið 2004 og hefur
verið rekið ýmist fyrir héraðsdómi
eða Hæstarétti síðan.
Hæstiréttur hefur í tvígang talið
að Lúðvík hafi ekki tekist að sanna
nægilega að milli Hermanns og
móður sinnar hafi verið það sam-
band sem leitt gat til getnaðar á
getnaðartíma hans. Í fyrra sinn
taldi Hæstiréttur að þar sem þetta
væri ekki skýrt orðað í stefnunni
og þar sem engin gögn frá móður
Lúðvíks hefðu verið lögð fram, sem
leiða mætti til hennar sjálfrar, væri
Lúðvík ekki búinn að færa þær
sönnur, sem lögin krefðust, á að
umrætt fólk hefði haft samfarir á
getnaðartíma hans.
Héraðsdómur hefur tvívegis
heimilað mannerfðafræðilega
rannsókn, en börn Hermanns jafn-
harðan kært til Hæstaréttar, sem
hnekkti báðum dómunum.
Héraðsdómur hafði heimilað að
systkin Lúðvíks yrðu leidd til vitn-
is. Systir hans lést óvænt og ótíma-
bært í millitíðinni, en bróðir hans
mun bera vitni, að gengnum dómi
Hæstaréttar. Jafnframt liggur fyrir
dómnum yfirlýsing frá báðum syst-
kinunum um að aldrei hafi verið
talað öðruvísi á bernskuheimili
Lúðvíks en svo að Gizur væri ekki
faðir hans heldur Hermann. Í kjöl-
far vitnisburðar bróður Lúðvíks
munu Lúðvík og lögmaður hans
krefjast þess í þriðja sinn að fram
fari erfðafræðileg rannsókn.
Hæstiréttur dæmdi nú börn
Hermanns til að greiða 150 þúsund
krónur í kærumálskostnað.
Bróður heimilt að bera vitni
Sjötíu ára afmæli Trygg-
ingastofnunar ríkisins var fagnað
með pomp og prakt á föstudag.
Afmælisgjöf stofnunarinnar er
nýr upplýsinga- og þjónustuvefur
á slóðinni www.tr.is. Lögð hefur
verið áhersla á að gera vefinn lif-
andi og greinargóðan með tilliti til
mismunandi þarfa notenda.
Á afmælisfagnaðinn mættu
fulltrúar félagasamtaka og stofn-
ana sem TR hefur samskipti við
ásamt starfsfólki stofnunarinnar.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra, hélt ávarp á afmælishá-
tíðinni og gerði þá að umtalsefni
þá háværu gagnrýni á almanna-
tryggingakerfið að það sé bæði
flókið, torskiljanlegt og þunglama-
legt. En sú krafa hefur komið
fram, meðal annars frá Öryrkja-
bandalaginu og eldri borgurum,
að kerfið verði einfaldað.
Ráðherrann varpaði fram
þeirri spurningu hvernig hægt
væri að einfalda kerfið. Hún velti
því fyrir sér hvort Íslendingar
ættu að fara að dæmi Dana og
stofna óháða nefnd sérfræðinga
sem fengju það verkefni að skoða
hvers konar velferðarþjónustu við
viljum veita til framtíðar. Slík
nefnd hefði það hlutverk að horfa
inn í framtíðina á grundvelli
nútímans, og leggja fram hug-
myndir og jafnvel tillögur um vel-
ferðar- og almannatryggingakerfi
á 21. öld.
Krafa um að einfalda kerfið
Joseph Kabila tók
við forsetaembættinu í Eystra-
Kongó á miðvikudag við hátíðlega
athöfn fyrir utan forsetahöllina í
Kinshasa, höfuðborg landsins.
Kabila, sem er 35 ára, hefur
verið forseti landsins frá því
faðir hans var myrtur árið 2001,
en hlaut meirihluta fyrir skömmu
í forsetakosningum, þeim fyrstu
sem haldnar hafa verið í landinu
frá 1960. Mótframbjóðandinn,
Jean-Pierre Bemba, hefur þó ekki
fallist á úrsitin.
Kabíla tekinn
við sem forseti
Smokkar sem framleidd-
ir eru í alþjóðlega staðlaðri stærð
eru of stórir fyrir indverska
menn. Þetta kemur fram í
rannsókn sem gerð var á Indlandi
meðal tólf hundruð karlmanna.
Limir sextíu prósenta mannanna
voru þremur til fimm sentimetr-
um of stuttir fyrir smokkana.
Indverjar hafa farið fram á að
auðveldara verði að nálgast minni
verjur, því sé smokkurinn of stór
aukist líkur á því að hann rifni.
Sjálfboðaliðarnir sem voru
mældir komu úr öllum stigum
samfélagsins, úr öllum trúarhóp-
um og væru bæði borgar- og
sveitabúar.
Of stórir fyrir
Indverja