Fréttablaðið - 10.12.2006, Page 24
„Þegar ég sat á áhorfendapöllunum á
Nou Camp var ég sífellt að heyra
blaðamenn og félagsmenn Barcelona
fárast yfir Eiði Smára,“ segir Javier
Rodríguez Marzo, ritstjóri Sport í
Barcelona. „Þeir sögðu að hann væri
seinn, klaufskur og þar fram eftir göt-
unum. Sömuleiðis kom mér á óvart
hversu sumir blaðamenn gátu verið
óvægnir gagnvart honum þó tölfræð-
in sýndi að hann væri í raun og veru
að standa sína plikt nokkuð vel. En
stundum hefur Eiður Smári gert axar-
sköft sem voru vatn á myllu þeirra
sem gagnrýndu hans harðast. Mest
mótlætið sem hann hefur mátt þola
tel ég að hafi verið eftir leikinn gegn
Real Madrid á Bernabeu,“ segir
Marzo. „Börsungar vita vel að það
getur komið fyrir hvaða leikmann
sem er að brenna af í góðu færi. En að
brenna af í dauðafæri á Bernabeu
eins og Eiður Smári gerði í síðustu
viðureign liðanna er dauðasynd hér í
Barcelona,“ segir hann og hlær við.
„En hann lét þetta ekki brjóta sig
niður svo hann virðist hafa þann and-
lega styrk sem góður leikmaður verð-
ur að hafa. Og nú síðustu daga hef ég
heyrt þessa menn sem voru að bölsót-
ast út í hann hæla honum á hvert reipi,
sérstaklega eftir leikinn gegn Werder
Bremen síðasta þriðjudag en þar var
nú aldeilis ekki klaufaskap eða seina-
gangi fyrir að fara hjá kappanum,“
segir hann.
En hvaða sess skipar Eiður Smári í
spænsku knattspyrnunni? „Það er
nokkuð ósanngjarnt að fara að gera
það upp strax. Leiktíðin er ekki hálfn-
uð. En hins vegar get ég sagt það að ef
ég væri þjálfari spænska landsliðsins
og Eiður Smári væri landi minn þá
myndi ég velja hann í hópinn. Þetta er
kannski ekki gott dæmi þar sem
spænska landsliðið er með allt niðrum
sig um þessar mundir og ef til vill
lítill sómi að tilheyra því eins og sakir
standa,“ segir Marzo og hlær.
Joan Josep Pallas, blaðamaður hjá
íþróttablaðinu Mundo Deportivo,
þekkir vel til í herbúðum Barcelona
og ber okkar manni vel söguna þaðan.
„Hann er sérlega vel liðinn meðal ann-
arra leikmanna. Hann er opinn, við-
kunnanlegur og reynir hvað hann
getur að aðlagast og það verður ekki
annað sagt en hann hafi náð að gera
það nokkuð fljótt. Það fer sérstaklega
vel á með honum og Brasilíumönnun-
um í liðinu. Hann situr yfirleitt til
borðs með þeim á fundum og í matar-
tímum. Þá á ég við Ronaldinho, Deco
sem reyndar leikur með portúgalska
landsliðinu en er frá Brasilíu,
Edmilson, Silvinho og Motta.“
Carlos Manuel Sanchez, blaðamað-
ur hjá Marca, segir að þeir sem fylgist
með leikjum Barcelona hafi ekki farið
varhluta af því hversu vel Eiður Smári
og Ronaldinho nái saman á leikvellin-
um. „Þetta sást vel í leiknum gegn
Werder Bremen,“ segir Sanchez. „Þá
gat Ronaldinho sent boltann blindandi
á Eið Smára því hann vissi nákvæm-
lega hvar hann væri að finna.“
Spænsku blöðin hafa mörg hver
gefið Eiði Smára viðurnefnin „slátrar-
inn“ og „morðinginn hljóðláti“. Á
Íslandi þykir Eiður Smári einstaklega
viðkunnanlegur og prúður leikmaður
og því kann Íslendingum að finnast
sem þessi viðurnefni séu ekki rétt-
nefni. Sanchez er aftur á móti með
útskýringar á þessu. „Þetta eru alls
ekki niðrandi viðurnefni í fótboltanum
hér á Spáni,“ segir hann. „Við höfum
þá staðalímynd af norrænu fólki að
það sé yfirvegaðra, kaldlyndara og láti
höfuðið ráða frekar en hjartað. Þessi
staðalímynd og svo sú staðreynd að
Eiður Smári getur gert út af við and-
stæðingana án þess að fara fram með
miklu offorsi hefur orðið til þess að
hann hefur stundum fengið þetta við-
urnefni í blöðunum.“
Blaðamennirnir þrír eru sammála um
það hverjir séu helstu styrkleikar
Eiðs Smára. „Hann les leikinn vel og
dregur varnarmenn andstæðinganna
með sér,“ segir Sanchez. „Þannig
skapar hann svigrúm fyrir Ronaldin-
ho og með sama hætti hefur hann
skapað svigrúm fyrir Iniesta sem er
alla jafna ekki sókndjarfur og skoraði
sárasjaldan en eftir að Eiður Smári
kom inn í liðið hefur hann farið á kost-
um og skorað tvö mörk. Annað markið
skoraði hann við markteig en hann
gat sjaldan leyft sér að fara svo fram-
arlega áður.“
Og Sanchez heldur áfram að telja
upp kosti okkar manns. „Hann er
markaskorari, vinnusamur og fórn-
fús. Ég hef lengi fylgst með enska
boltanum svo ég vissi alltaf að hann
væri leikinn en þessa eiginleika hans
uppgötvuðu spænskir áhorfendur
ekki fyrr en Eiður Smári kom með
sýnikennslu sína í leiknum gegn Wer-
der Bremen. Fram að því höfðu marg-
ir talið hann klaufalegan.“ Þarna á
Sanchez við einstaklingsframtak Eiðs
Smára þegar hann lék á fjóra varnar-
menn Werder Bremen, kom sér
þannig í færi en skot hans hafnaði í
stönginni. Þaðan barst knötturinn til
Guily, samherja hans, sem skaut
framhjá fyrir opnu marki. „Hefði
Eiður Smári skorað hefði það orðið
mark Meistaradeildarinnar til þessa,“
segir Pallas „Og hvað sem síðar verð-
ur hefði þetta verið mark sem enginn
myndi gleyma.“
„Vandinn sem beið Eiðs Smára þegar
hann kom til Barcelona var að hann
er eftirmaður hins sænska Henriks
Larsons sem var sérlega vinsæll
Spænsku blöðin hafa mörg
hver gefið Eiði Smára viðurnefnin „slátr-
arinn“ og „morðinginn hljóðláti“.
Enginn verður óbarinn Börsungur
Fyrstu mánuðirnir í Barcelona hafa verið þrautaganga fyrir Eið Smára Guðjohnsen eða Guddy eins og hann er jafnan kallaður
í spænskum fjölmiðlum. Hann var ekki tekinn neinum vettlingatökum af áhangendum, fjölmiðlamönnum og sparkspekingum
þegar hann fyrst klæddist Barcelona-búningnum. En blaðamenn íþróttablaðanna Sport, Marca og Mundo Deportivo sem Jón
Sigurður Eyjólfsson ræddi við virðast sammála um að hann hafi nú staðist eldraunina.
meðal aðdáenda Barcelona,“ segir
Pallas. „Og til að byrja með virtist
alveg sama hvað Eiður gerði; ekkert
var nógu gott að þeirra mati. Samt
er Eiður að standa sig betur en
Larson gerði í raun og veru. Hann
skorar meira sé miðað við leiknar
mínútur, hann er strax farinn að tala
spænsku sem Larson gerði aldrei og
hann er farinn að vera á blaða-
mannafundum og kominn í samband
við blaðamenn hér meðan við þurft-
um yfirleitt að hafa samband við
kollega okkar í Svíþjóð til að fá
komment frá Larson svo þetta
dálæti á þeim sænska sem skyggði á
Eið Smára var mér alveg óskiljan-
legt. Kannski voru það persónu-
töfrar hans sem höfðu þessi áhrif og
sú staðreynd að hann brást sjaldn-
ast þegar á reyndi. En ég held að
leikurinn gegn Werder Bremen hafi
verið tímamótaleikur hjá Eiði Smára
og af viðtökum áhangenda að dæma
eftir leikinn tel ég að nú hafi hann
virkilega náð til hjarta Börsunga.“
Sanchez segir að margir hafi verið
undrandi á Frank Rijkaard þjálfara
Barcelona fyrir að festa kaup á leik-
manni sem þá átti ekki fast sæti í
Chelsea. „Svo meiddist Eto‘o snemma
á tímabilinu og þá var Eiður Smári
allt í einu kominn í byrjunarliðið og
sú ábyrgð á hans herðar lögð að eng-
inn myndi sakna Níunnar eins og
Eto‘o er oft kallaður. Þetta eru gífur-
legar kröfur og það var hart sótt að
Eiði Smára að hann myndi standast
þær og það hefur hann gert.“
En hvað tekur við hjá Eiði Smára í
febrúar þegar Samúel Eto‘o verður
búinn að jafna sig? „Vissulega fer
Eto‘o strax í byrjunarliðið,“ segir
Pallas. „En Rijkaard kann virkilega
að nota mannskapinn og hann er
sanngjarn þjálfari svo Eiður Smári
fer ekki út í horn. Í raun tel ég að
erfiðasta þraut Eiðs Smára sé að
baki en það var að sýna það og sanna
að hann á erindi í stjörnuprýtt Bar-
celona-liðið. Svo er það alveg ljóst að
leikmaður sem skýtur argentínska
landsliðsmanninum Javier Saviola
aftur fyrir sig hefur sitt hlutverk í
liðinu.“