Fréttablaðið - 10.12.2006, Page 38
Einar Björgvin Davíðs-
son er búinn að finna sig
í auglýsingabransanum.
Þrátt fyrir ungan aldur er
Einar Björgvin Davíðsson
búinn að láta til sín taka í
auglýsinga- og fjölmiðla-
heiminum en hann er ein-
ungis 25 ára gamall. „Ég
byrjaði að vinna fyrir Sirkus
tímaritið þegar það kom
fyrst út og færði mig síðan
yfir í sjónvarpsauglýsing-
arnar en í dag vinn ég sem
markaðsráðgjafi fyrir Sirk-
us TV. Ég er búinn að vinna
hérna í rúmt eitt og hálft ár
og mér finnst þetta vera frá-
bær vinna. Alltaf eitthvað
nýtt og spennandi að gerast
og hver dagur er frábrugð-
inn,“ segir Einar Björgvin.
Starf Einars felst í því að
selja sjónvarpsauglýsingar
fyrir Sirkus sjónvarpsstöð-
ina og vera í góðu sambandi
við auglýsendur. „Fyrir aug-
lýsendur sem auglýsa í sjón-
varpinu reyni ég að mæla
með bestu þáttunum, reyni
að finna út bestu lausnina
fyrir þá.“
Í svona vinnu þarf Einar
að fylgjast vel með tíðarand-
anum. „Við reynum að höfða
til yngri markhópa frá aldr-
inum 18 til 33 ára. Maður
þarf líka að fylgjast með
hvað neytendur vilja, hvað
er inn og hvað ekki.“
En er þetta mikið stress?
„Nei í raun og veru ekki. Það
koma auðvitað dagar þar
sem brjálað er að gera en
maður þarf bara að vera vel
skipulagður eins og í öllum
öðrum vinnum.“
Eins og flestir vita er
Sirkus TV frekar ung sjón-
varpsstöð og er Einar búinn
að taka þátt í uppbyggingu
hennar. Hann segir að það sé
búið að vera einstaklega
gaman að vera hluti af Sirkus
hópnum.
Einar er ekki menntaður
markaðsráðgjafi. Hann er
hefur leitt hugann að því að
setjast á skólabekk seinna
meir en eins og margir á
hans aldri langar hann að
fara í skóla erlendis.
„Draumurinn er að fara til
New York seinna meir en í
augnablikinu er það vinnan
mín sem á hug minn allan,“
segir þessi hressi strákur.
Fylgist með
tíðarandanum
Félagsmálaráðuneytið
leggur til að atvinnuleys-
isbætur hækki um 2,9
prósent um áramótin en
ekki 2,25 eins og áður
var ákveðið.
Lög um atvinnuleysistrygg-
ingar gera ráð fyrir að fjár-
hæð grunnatvinnuleysis-
bóta komi til endurskoðunar
við afgreiðslu fjárlaga ár
hvert með tilliti til þróunar
launa, verðlags og efna-
hagsmála.
Þar sem ljóst er að launa-
menn innan ASÍ, opinberir
starfsmenn og fleiri fá 2,9%
launahækkun þann 1. janúar
í stað 2,25% eins og gert
hafði verið ráð fyrir í kjara-
samningunum, hefur félags-
málaráðuneytið gert tillögu
um að atvinnuleysisbætur
hækki einnig um 2,9% um
áramótin í stað 2,25% eins
og ríkisstjórnin gerði ráð
fyrir í mars 2004, í tengslum
við gerð kjarasamninga.
Tillaga um
hækkun bóta
Verk- og tæknifræðingar
Trivium ráðgjöf leitar að skemmtilegu og metnað-
arfullu fólki til starfa á eftirtöldum fræðasviðum:
Hljóðráðgjöf
Við glímum við hljóð í öllum sínum bestu og
verstu myndum allt frá hljóðhönnun hljóðvera og
leikskóla til kortlagningar á hávaða frá iðnaði og
umferð. Við óskum eftir öflugum hljóðráðgjafa til
starfa með verkfræðimenntun og starfsreynslu í
hljóðfræði.
Viðhaldsráðgjöf
Hönnun bygginga hér á landi kallar á sérþekkingu
og metnað eigi þær að standast íslensk veður. Við
gefum ráð og önnumst eftirlit við endurbætur
og viðhald mannvirkja. Við leitum ráðgjafa með
byggingarverk- eða tæknifræðimenntun og reynslu
á þessu sviði.
Umsóknum skal fylgja stutt lýsing á náms- og
starfsferli og skulu þær sendar með tölvupósti á
netfangið hafsteinn@trivium.is fyrir 15. janúar nk.
Öllum umsóknum og fyrirspurnum verður svarað.
Trivium ráðgjöf er vaxandi fyrirtæki sem veitir víð-
tæka ráðgjöf á sviði hljóðfræði, endurbóta og
viðhalds fasteigna. Í starfi okkar leggjum
við ríka áherslu á rannsóknir og þróun-
arstarf, með eigið framlag 5 til 10% af
tekjum félagsins.
Bolholti 4 105 Reykjavík s. 578 1600
www.trivium.is