Fréttablaðið - 10.12.2006, Page 76

Fréttablaðið - 10.12.2006, Page 76
Útvarpsþáttur Karls Th. Birgis- sonar er skemmtileg leið til að menn velti fyrir sér merkingu orða og leiti orða og örnefna eftir ákveðnum leiðbeiningum, hæfi- lega og stundum skemmtilega snúnum eftir atvikum. Þátturinn er til þess fallinn að auka áhuga á tungunni og stuðlar að fjölbreytt- ari orðaforða hlustenda, ekki síst ef þeir taka þátt í leiknum af alvöru. Það er líka gaman að spreyta sig á því að reyna að þekkja ljóðbrot og tilvitnanir. Því er óhætt að mæla með þessum þætti. Hann er til fyrirmyndar. Helst mætti finna að nokkuð fastri læsingu í ákveðna formúlu. En það gildir raunar um ansi marga útvarps- þætti. segir bæjarstjóri nokkur í Frétta- blaðinu 2. des. og hljómar undar- lega. Það þarf múg og margmenni eða mannfjölda til að vekja upp múgæsingu, ekki örfáa einstakl- inga. Ég ímynda mér að hann hafi viljað segja að ekki sé mark tak- andi á mótbárum fáeinna manna. En það á ekkert skylt við múg. Lögreglumaður hringdi til mín og kvartaði undan þessu leiðinda orði sem hann taldi komið í tísku í stétt sinni og hjá tollgæslumönnum, sem sífellt tönnlist á því að nú hafi verið haldlagt svo og svo mikið af fíkniefnum. Ég er sammála því að þetta er hálfgert orðskrípi af stofn- anatagi, ljótt og algerlega óþarft. Er ekki alveg eins hægt að tala um að leggja hald á, gera upptækt eða einfaldlega að taka eða ná? er líka ansi stofnanalegt orðfæri í tilkynningu frá banka, þótt inn- lögnin gleðji ugglaust viðtakand- ann. Mönnum hættir til að gleyma því að íslenska er sagnamál, ekki nafnorðamál, og það er einmitt sá eiginleiki sem gerir málfar spengi- legt og beinskeytt. Því nægir alveg að segja að einhver hafi lagt inn á eða borgað inn á reikning viðkom- anda. Á einum netmiðlinum var skrifað að þeim arga skálki Pinochet, valdaræningja og pyntingameist- ara í Chile, hefðu verið veittar nábjargirnar. En svo var ekki þótt sumum finnist ugglaust að slíkur fantur eigi ekki að þurfa að kemba hærurnar, ef það orðatiltæki skilst enn. Að veita nábjargir merkir nefnilega að loka augum, nösum og vörum á líki. En Pinochet lifir enn. Aftur á móti veitti kaþólskur prestur honum svokallaða hinstu smurningu, svona í öryggis skyni, ef hann skyldi ekki lifa af, trúlega í von um að milda móttökurnar hinum megin. Eftirfarandi braghenda (bak- sneidd) varð til austur á Hofi í Öræfasveit: Öræfasveit er öðrum sveitum undarlegri: Jökulskjöldur skín á gjögri, skúmur yfir sandi á flögri. Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12. - 99 kr. smsið Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ á númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón. Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON. Leystu Krossgátuna! Þú gætir unnnið „Til eru myndir sem hafa fylgt mér alla ævi,“ segir Hilmar Jónsson leikstjóri sem velur málverk vikunnar að þessu sinn. Hilmar horfir aftur til æskuheimilis síns. Tísku sem fylgdi þessum „sixties“- heimilum. Og mynda á veggjum. „Allt í einu á maður þetta. Svo kemur þetta upp úr einhverjum kassa sem fylgir manni, upp á vegg af gömlum vana. Maður veitir myndinni vart eftirtekt. Svo þurrkar maður kannski af myndinni, sem hefur hangið í eldhúsinu til margra ára, mött af fitu í eldhúsinu og maður hugsar varla um hana. Seinna rekst maður á hana úti í skúr, þar sem hún er komin í saggafullan óupp- hitaðan skúr, liggur á hliðinni innan um eitthvert drasl sem maður vonast alltaf til að finna hjá sér kjark til að henda. Farin að verpast um sjálfa sig bak við fitumettað glerið. Og svo er hún horfin. Líklega hef ég fundið kjarkinn. Hlutur sem fylgt hefur manni í 35 ár. En hún er samt til. Í hugskoti mínu. Alltaf verið þarna. Arfleifð tískunn- ar sem var. Eitthvað sem hefur allt aðra skírskotun en eftirprentun þessa fræga og dýra verks sem það er. Jújú, einhvern tíma á leiðinni hafði ég komist að því eftir hvern myndin er. Teikning eftir Vincent van Gogh. Og ég myndi örugglega, væri ég staddur í borginni þar sem safnið er sem hýsir myndina, gera mér ferð til að skoða hana. Sjá orgínalinn sem hefur verið part- ur af mínu umhverfi alla tíð. Og á sér skrýtnar tengingar. Greipt inn í eitthvert tilfinningaandrúm sem maður dregur með sér í gegnum lífið.“ Bóndi Gogh greiptur í tilfinningaandrúm

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.