Fréttablaðið - 10.12.2006, Qupperneq 84
Undirtitill nýútkominna æviminn-
inga Guðna í Sunnu er Endurminn-
ingar og uppgjör. Minningunum
skipta þeir Arnþór Gunnarsson og
Guðni í nokkra meginflokka. Sá
fyrsti rekur uppvöxt Guðna í
Hvítanesi, hann rekur ætt sína og
uppruna. Hann er fæddur 1923 og
er því í hópi þeirra sem lifðu fjör-
brot sveitanna fyrir vélvæðingu –
faðir hans kaupir fyrsta bílinn í
héraðið og þá eru engir vegir.
Annar hlutinn rekur starfsferil
hans, um hvernig hann kornungur
maður 1944 gerist blaðamaður á
Tímanum og hvernig forvitni hans
og framsýni gera hann að hljóðum
byltingarmanni í blaðamennsku
sem hann starfar við um fimmtán
ára skeið.
Þriðji hlutinn er helgaður
rekstri ferðaskrifstofunnar Sunnu
sem Guðni helgaði starfskrafta
sína um langt árabil. Þeim kafla
lýkur í raun 1979.
Fjórði hlutinn segir af við-
fangsefnum Guðna eftir það allt
til þessa hausts. Sögu sinni lýkur
Guðni með afar opinskáum hætti:
stuttorðu uppgjöri við sjálfan sig
og fjölskyldu sína, og fyrirgefn-
ingu til handa þeim sem lögðu
stein í götu hans.
Guðni Þórðarson er merkilegur
maður um margt. Hann hefur þá
gáfu sem fáum er gefin að vera
frumkvöðull sem hrindir skipi úr
vör og siglir langa vegu, verst
sjóum og skilar farmi sínum og
farþegum heilum í land. Mótlæti
má hann þola frá fyrstu árum
þegar honum er komið í fóstur frá
foreldrum sínum sem hann
umgengst síðar sem vandalausa,
marga erfiða snerru mátti hann
taka í fjandsamlegu viðskiptaum-
hverfi flokka sem byggðu veldi
sitt á bitlingum og fyrirgreiðslu,
en heftu framgang annarra, og að
lokum komu honum á kné. Þó
hefur hann stórlæti til að líta yfir
vegferð sína og meta það sem
gafst.
Víst eru þessir fjórir megin-
kaflar misjafnir í frásögninni:
upphafið í Skilamannahreppi
bætir þekkingarkafla við sögu
Borgarfjarðar sem allir sem unna
því héraði hljóta að fagna. Stökk-
ið sem kynslóð Guðna tók er
óskiljanlegt okkar kynslóðum.
Þá er lýsing hans á árunum á
Tímanum langskemmtilegust og
einstök innsýn í sögu Framsóknar-
flokksins og málgagns hans. Það
er engum blöðum um það að fletta
að Guðni var boðberi nýrra tíma í
blaðamennsku í samtengingu
frétta af fólki og ljósmyndun þess
eins og sýningar Ljósmyndasafns
Íslands af myndum hans nú og í
fyrra leiða skýrt í ljós. Á þessu
árabili státa önnur blöð ekki af svo
afkastamiklum og flinkum ljós-
myndara. Sá þáttur í lífi hans verð-
ur þegar fram líða stundir æ mikil-
vægari varða um lífstarf hans.
Þriðji kaflinn um Sunnu er
þyngstur undir tönn: uppbygging
ferðaskrifstofu og sigrar í látlítilli
sókn verða tilbreytingalítið efni til
lengdar. Þau miklu átök sem ýttu
Guðna af borðinu eru rakin sam-
viskusamlega en ekki nægilega
ítarlega. Sem er synd, þar er leitt
sterkum líkum að áhrifamiklir
aðilar hafi gengið hagsmuna ein-
stakra fyrirtækja í landinu, Eim-
skipafélagsklíkan og kolkrabbinn
hafi átt sína menn í bankakerfinu
sem beittu ósvifnum aðferðum til
að koma keppinautum á kné. Það
ranglæti brennur enn á Guðna,
réttilega, og segir sú saga meira
en margar um hvílíkt spillingar-
díki umlék þá flokka sem lengst
sátu við landsstjórn: Alþýðuflokk-
inn, Sjálfstæðisflokkinn og Fram-
sókn.
Síðasti hlutinn segir frá því
hvernig Guðni finnur sér ný verk-
efni, hvernig frumkvöðlahugsun
hans og tengsl duga honum til
útrásar í aðrar álfur, önnur lönd,
þó hann sé kominn á efri ár. Það er
merkilegt þrek og til fyrirmyndar,
ber vott um æskufjör sem seint
ætlar að þverra.
Arnþór og Guðni greina frá því
að margt er undanskilið í ævisög-
unni: lýsing hans á 30. mars er
ekki hér, eða þreifingar hans um
flug til Moskvu 1975 sem stjórn-
völd hér beittu sér gegn.
En umfram allt verður að fagna
að Guðni skuli greina frá sinni
hlið: án hans frásagnar værum við
vitneskju fátækari.
Ferðalangur segir
frá æviför
A
M
N
E
S
T
Y
IN
T
E
R
N
A
T
IO
N
A
L Aðventutónleikar
Amnesty International
Neskirkju við Hagatorg sunnudagskvöldið
10. desember kl. 20.00
Flytjendur:
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari
Elísabet Waage hörpuleikari
Auður Gunnarsdóttir sópran
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari
Helga Þórarinsdóttir víóluleikari
Einar Jóhannesson klarinettuleikari
Richard Talkowsky sellóleikari
Ari Vilhjálmsson fiðluleikari
Systkinin Kristján og Ellen Kristjánsbörn
Ágóði af tónleikunum rennur til fórnarlamba mannréttindabrota.
Miðaverð er 1.500 kr. Forsala aðgöngumiða er á skrifstofunni
Hafnarstræti 15 og Tónastöðinni, Skipholti 50d
Sími 511 7900 eða amnesty@amnesty.is.
Stóra sviðið kl. 20:00
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Lau. 6/1, lau. 13/1 lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1
kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1
kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti
laus, sun. 21/1 kl. 14:00.
PÉTUR GAUTUR eftir Henrik Ibsen. Leikgerð Baltasar Kormákur.
Í kvöld sun. 10/12 uppselt. Allra síðasta sýning!
BAKKYNJUR eftir Evripídes
Frumsýning 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti
laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá
sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1.
LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson
Í dag sun. 10/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00 uppselt, lau. 16/12
kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00 uppselt, sun. 17/12 kl. 13:00 uppselt,
kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00 uppselt, fös. 22/12 kl. 13:00 uppselt, lau. 23/12 kl. 13:00
uppselt.
Leikhúsloftið
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og
kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00,
kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1
Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is
Fæst nú á geisladiski í miðasölu
Þjóðleikhússins og Hagkaupum.
ABBA