Fréttablaðið - 10.12.2006, Síða 86
„Ég og Andri Freyr bróðir minn
komum til Reykjavíkur árið 1995
eða 1996, ég man að hann fór í 10.
bekk og ég fór til Þýskalands sem
skiptinemi,“ segir Birkir Fjalar
Viðarsson, söngvari hljómsveitar-
innar I Adapt. Hann og Andri
bróðir hans, sem er betur þekktur
sem útvarpsmaðurinn Freysi,
voru fyrstir af breiðum vinahópi
til þess að flytja til Reykjavíkur
frá Reyðarfirði. Þeir sem fylgdu í
kjölfarið voru Baldur Hans Þórar-
insson Beck, sem nú starfar sem
íþróttafréttamaður, Helgi Seljan
sjónvarps- og fjölmiðlamaður og
Þröstur Heiðar Jónsson, sem í dag
er bassaleikari hljómsveitarinnar
Mínuss. Í vinahópnum var einnig
Bóas Hallgrímsson, söngvari
hljómsveitarinnar Reykjavík!, en
hann bjó aðeins á Reyðarfirði yfir
sumartímann. „Bóas var byrjaður
að spila í einhverjum metalbönd-
um þegar við fluttum hingað og
við héldum að allt væri morandi í
tónleikum hérna í Reykjavík, það
reyndist svo ekkert rétt, en við
vorum snöggir að þefa uppi
slammið,” segir Birkir, en að hans
sögn var mestu stemninguna að
finna á Botnleðjutónleikum og hjá
skammlífum pönkböndum. Það
var svo þegar hljómsveit Bóasar,
Spitsign, náði vinsældum hjá rokk-
hópnum sem fjörið færðist yfir. „Í
hvert skipti sem þeir héldu tón-
leika þá mættum við galvaskir,
fólk tók líka eftir okkur, það vorum
við sem vorum alltaf með mestu
lætin alls staðar,“ segir
Birkir enn fremur.
Hljómsveitin Spitsign deildi
æfingahúsnæði með öðru bandi,
Ungblóð, en úr þessum hljóm-
sveitum varð sveitin Mínus til. „Í
kringum þetta leyti stofnuðum svo
ég og Andri bróðir hljómsveitina
Bisund, en við spiluðum mikið
með Spitsign.“ Hljómsveitin tók
þátt í Músíktilraunum árið 1998 og
lenti í öðru sæti, var þá Birkir val-
inn besti trommuleikarinn. Þegar
svo Bisund hætti fór Andri Freyr í
hljómsveitina Fídel og Birkir
fór í Stjörnukisa. Rétt eftir
aldamót stofnaði Birkir I
Adapt, sem í dag bæði spilar
og gefur út víðs vegar um
heiminn. „Þetta voru tveir
stórir vinahópar sem þarna
mættust, annars vegar við
Reyðfirðingarnir og hins
vegar Frosti, Krummi,
Bjarni, Bjössi og hinir sem voru í
Mínus eða í kringum þá.“ Seinna
meir gekk svo Þröstur Heiðar til
liðs við Mínus og störfuðu svo
Frosti og Andri saman á útvarps-
stöðinni X-inu, þá sló Andri eftir-
minnilega í gegn sem „Freysi á X-
inu.“
„Við höfum komið suður þegar við
vorum um 18 ára gamlir, Birkir og
Andri fóru fyrstir, Baldur kom
hins vegar ekki fyrr en hann
kláraði stúdentspróf,“ segir sjón-
varpsmaðurinn Helgi Seljan. Eins
og margir ungir Reyðfirðingar
störfuðu félagarnir flestir í Síld-
arbræðslunni í plássinu, segir
Helgi að vinnan þar hafi hert þá
drengi upp. „Svo þegar við komum
í bæinn þá gerðum við lítið annað
en að hanga á dauðarokkstónleik-
um fullir og létum illa,“ segir
Helgi og hefur margt breyst síðan
þá. „Það er til dæmis til fólk sem
er ennþá skíthrætt við Baldur,
hann var með hökutopp, snoðaður
í frakka og með í vörinni. Hefði
hann búið í Columbine hefði hann
verið settur í steininn undir eins,“
en í dag er Baldur þekktastur fyrir
skeleggar og vandaðar íþrótta-
fréttir á visir.is og lýsingar á NBA-
körfuboltanum. Helgi segist ekki
skilja upp né niður í því hvernig
meðlimir hópsins hafi náð jafn
langt og raun ber vitni, en segir
það líklega vera út af kæruleysi.
„Við gerðum það sem við vildum
og vorum með sæmilega langa
löngutöng,“ en það er líklega það
sem þarf á gervihnattaöld. Af
öðrum þekktum Reyðfirðingum
segir Helgi popparann Einar
Ágúst bera af. „Við afneituðum
honum lengi vel, þegar hann var
með aflitað hár og í Skítamóral. Í
seinni tíð hefur hann hins vegar
sýnt það og sannað að hann er
sannur Reyðfirðingur.“
Hilmar Sigurjónsson, skólastjóri
grunnskólans á Eskifirði, starfaði
áður sem kennari á Reyðarfirði og
man vel eftir drengjunum. „Þetta
eru allt saman mjög sterkir per-
sónuleikar, þó maður muni nú ekki
eftir einstökum atvikum, en þeim
reyndi maður líka að gleyma,“
segir Hilmar og hlær létt. Hann
rámar þó í að drengirnir hafi verið
húðlatir í skóla, en algjörir snill-
ingar í afsökunum og var það þá
Helgi sem bar af í þeim. Hilmar
segir að enginn léttir hafi fylgt
flutningi hópsins úr bænum, þvert
í mót hafi ákveðin eftirsjá fylgt
þeim. „Á meðan á skólagöngunni
stóð var það ekki gaman, en eftir á
að hyggja eru þetta þeir einstakl-
ingar sem maður man hvað sterk-
ast eftir,“ segir Hilmar um Reyð-
arfjarðarmafíuna að lokum.
Í könnun sem birtist í Fréttablaðinu fyrir örfáum vikum
síðan voru valdir einstaklingar beðnir um að velja mesta
krummaskuð landsbyggðarinnar. Það var Reyðarfjörður
sem hreppti þennan vafasama titil og hafa margir Aust-
firðingar mótmælt þessum niðurstöðum. Það vita það ekki
margir en í framvarðasveit fjölmiðla og harðkjarnarokks á
Íslandi eru nokkrir Reyðfirðingar sem fluttu til Reykjavík-
ur, skömmu fyrir aldamót og eru þeir í dag afar áberandi
á hinum ýmsu sviðum, þó svo að útlit hafi verið fyrir
annað í upphafi.
Leikarinn og leikstjórinn George
Clooney hefur keypt kvikmynda-
réttinn að bókinni The Innocent
Man eftir metsöluskáldið John
Grisham.
Bókin er sú fyrsta frá Grisham
sem er byggð á raunverulegum
atburðum. Fjallar hún um ævi
hafnarboltakappa sem er ranglega
sakaður um nauðgun og morð.
Ekki er vitað hvort Clooney
muni leika aðalhlutverkið eða leik-
stýra myndinni. Hann er um þess-
ar mundir að kynna nýjustu mynd
sína, The Good German, sem er
leikstýrt af Steven Soderbergh.
Kaupir bók
Grishams
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrr í vikunni endaði samband
grínarans Eddie Murphy og söng-
konunnar Mel B frekar snögglega.
Eddie sagði í viðtali að þau væru
hætt saman og
segir nú Mel B
að eftir því
sem hún best
vissi hafi þau
enn verið
saman. „Þetta
var fáránlegt,
við vorum ekk-
ert hætt
saman, við
bara rifumst
nett, það var allt og sumt,“ segir
Mel B. Í viðtalinu sagðist Murphy
heldur ekki viss um hvort hann
væri faðir barnsins sem Mel ber
undir belti, en segir Mel það vera
fásinnu. „Ég hef ekki verið með
neinum öðrum en honum síðan við
kynntumst,“ segir Mel, sem situr
eftir sár og ólétt.
Mel B grun-
aði ekkert
Rússneskir menningardagar á Íslandi
Kammerkór
Tretjakov-listasafnsins
í Moskvu
flytur
RÚSSNESKA
KIRKJUTÓNLIST OG
JÓLASÖNGVA
í Dómkirkjunni föstudaginn
15. desember, kl. 20.00.
Miðar fást við innganginn. Verð 1500 kr.