Fréttablaðið - 24.12.2006, Side 54
Flensburg mætti stór-
liði Kiel á útivelli í þýsku úrvals-
deildinni í handbolta í gær og varð
að sætta sig við tap, 36-34. Þetta
var síðasti leikur Flensburg undir
stjórn Viggós Sigurðssonar en
hann tók tímabundið við liðinu
fyrir þetta tímabil vegna veikinda
þjálfara liðsins.
Árangur Viggós á tímabilinu
hefur verið góður en fyrir leikinn
í gær var Flensburg í efsta sæti
deildarinnar, tveimur stigum á
undan Kiel. Kiel hafði hins vegar
yfirhöndina allan leikinn í gær en
staðan í hálfleik var 17-15 fyrir
heimamenn í Kiel.
Liðin höfðu því sætaskipti eftir
þennan sannkallaða toppslag en
bæði lið hafa 27 stig, en Kiel hefur
töluvert betri markamun en Flens-
burg.
Íslendingaliðið Lemgo tapaði
illa á heimavelli fyrir Hamburg í
þýsku úrvalsdeildinni í gær, 33-37.
Lemgo hefur ekki náð að fylgja
eftir góðri byrjun á tímabilinu en
liðið er nú með 21 stig í sjöunda
sæti deildarinnar. Þýska deildin er
þó gríðarlega jöfn og ekki munar
nema sex stigum á Lemgo í sjö-
unda sæti og Kiel sem er í efsta
sæti deildarinnar.
Ásgeir Örn Hallgrímsson átti
ágætan leik fyrir Lemgo í gær og
skoraði 5 mörk en Logi Geirsson
skoraði 1 mark fyrir Lemgo. Kór-
eumaðurinn Kyung-Shin Yoon fór
hins vegar illa með Lemgo og
skoraði hvorki meira né minna en
18 mörk í leiknum.
Viggó kvaddi Flensburg með tapi
Enska úrvalsdeildin:
Það var mikið skorað í
ensku úrvalsdeildinni í gær þegar
heil umferð var leikin. Leikmenn
Arsenal voru svo sannarlega á
skotskónum gegn Blackburn á
heimavelli því lokatölur urðu 6-2
fyrir Lundúnaliðið. Manchester
United gerði góða ferð til Birming-
ham þar sem liðið vann Aston Villa,
3-0, og þá vann Liverpool öruggan
heimasigur á Watford, 2-0.
Arsenal tók á móti Blackburn á
heimavelli og þrátt fyrir að gest-
irnir í Blackburn hefðu komist yfir
á þriðju mínútu með marki frá Sha-
bani Nonda úr vítaspyrnu létu leik-
menn Arsenal það ekki slá sig út af
laginu.
Þegar dómarinn flautaði til
leiksloka hafði Arsenal skorað sex
mörk en lokatölur urðu 6-2. Robin
van Persie skoraði tvö mörk fyrir
Arsenal sem situr nú í fjórða sæti
deildarinnar, 14 stigum á eftir
toppliði Manchester United.
Aston Villa og Manchester
United mættust á Villa Park í
Birmingham og eftir markalausan
fyrri hálfleik settu leikmenn
Manchester United í fluggírinn og
skoruðu þrjú mörk gegn engu
marki Aston Villa í þeim síðari.
Ronaldo skoraði fyrsta markið
og skömmu síðar skoraði Paul
Scholes eitt af mörkum tímabils-
ins. Eftir hornspyrnu náðu varn-
armenn Aston Villa að skalla bolt-
ann út úr vítateignum en þar beið
Scholes, tók boltann á lofti og
þaðan fór hann í slána og inn. Ron-
aldo rak svo smiðshöggið undir
lok leiksins og öruggur 3-0 sigur
Manchester í höfn.
Liverpool fékk Watford í heim-
sókn á Anfield og fór með sigur af
hólmi, 2-0. Markalaust var í leik-
hléi en Craig Bellamy kom Liver-
pool yfir í upphafi síðari hálfleiks.
Það var svo Xabi Alonso sem inn-
siglaði sigur Liverpool með marki
skömmu fyrir leikslok.
Newcastle virðist vera komið á
beinu brautina en liðið fékk Tot-
tenham í heimsókn í gær. Kieron
Dyer og Obafemi Martins komu
Newcastle í 2-0 eftir aðeins sjö
mínútur en Danny Murphy náði að
klóra í bakkann fyrir Newcastle á
15. mínútu.
Lengra komust leikmenn Tot-
tenham ekki og Scott Parker
skoraði síðasta mark leiksins og
Newcastle vann því góðan og kær-
kominn sigur, 3-1.
Heiðar Helguson lék allan leik-
inn í liði Fulham sem varð að sætta
sig við 0-0 jafntefli við West Ham
á heimavelli sínum, Craven
Cottage, í gær. Heiðar fékk gult
spjald í leiknum og verður í leik-
banni í næsta leik, þar sem þetta
var hans fimmta gula spjald á leik-
tíðinni.
Alan Curbishley, knattspyrnu-
stjóri West Ham, náði því ekki að
fylgja eftir góðri byrjun sinni sem
stjóri liðsins en liðið vann
Manchester United um síðustu
helgi í fyrsta leiknum undir hans
stjórn.
Hermann Hreiðarsson lék einn-
ig allan leikinn í liði Charlton sem
sótti Middlesbrough heim en hann
náði ekki að koma í veg fyrir 2-0
sigur heimamanna. Charlton er í
næst neðsta sæti deildarinnar,
stigi ofar en Watford sem situr á
botninum.
Reading tapaði á heimavelli
fyrir Everton, 2-0, þar sem Ívar
Ingimarsson lék allan leikinn í
vörn Reading. Brynjar Björn
Gunnarsson sat á varamannabekk
Reading og kom ekkert við sögu í
leiknum.
Heil umferð var leikin í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær og mörg mörk litu dagsins ljós. Arsenal
vann stórsigur á Blackburn á heimavelli og Manchester United hélt toppsætinu með sigri á Aston Villa.