Fréttablaðið - 31.01.2007, Side 10

Fréttablaðið - 31.01.2007, Side 10
Fjárlaga- og félags- málanefndir Alþingis luku á mánudag sameiginlegri yfirferð sinni yfir eftirlit með styrkjum til aðila utan ríkiskerfisins. Tilefnið var meðferð forsvars- manna Byrgisins á opinberum peningum en auk þess að skoða það mál sérstaklega hafa nefnd- irnar fjallað almennt um hvernig betur megi hátta slíku eftirliti. Birkir Jón Jónsson, formaður fjárlaganefndar, segir áfram unnið að málinu á vettvangi nefndarinnar og reynt sé að hraða þeim störfum. „Við munum skoða þetta með ráðuneytum og ríkisendurskoðun og það mun koma í ljós hvort breyta þurfi reglum eða lögum.“ Aðspurður útilokar Birkir ekki að frumvarp um breytt vinnulag verði lagt fyrir þingið fyrir slit þess, sem áætluð eru um miðjan mars. „Ég vil alls ekki útiloka það enda ljóst að úrbóta er þörf.“ Hvað Byrgismálið varðar segir Birkir að ábyrgð á því liggi víða enda hafi fjölmargir lýst yfir að þeir beri hluta ábyrgðar við framkvæmd og eftirlit fjár- laga. Sjálfur er hann í þeim hópi. „Það er komið í sinn farveg í kerfinu og menn verða bara að bíða og sjá hver niðurstaðan verður,“ segir Birkir en efna- hagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra hefur málið til rannsókn- ar. Ef þjóðvegur er lagður um svæði þar sem byggð hefur verið skipulögð skal Vegagerðin kosta gerð hljóðmana. Ef byggð er skipulögð að þjóðvegi ber sveitarfélag kostnað við gerð hljóðmana. Hafi umferð um veg aukist verulega umfram það sem áætlað var – og hávaðinn þar með – bera Vegagerð og sveitarfélag kostnað að jöfnu. Kveðið er á um þetta í frum- varpi til vegalaga. Í greinargerð þess segir að umferðarhávaði sé vaxandi vandamál og að erfið álitamál um ábyrgð á aðgerðum hafi risið. Er ákvæðinu ætlað að stuðla að sátt um kostnaðarskiptingu. Ríkið borgi ef vegi er valinn staður við byggð Fjármálaráðherrar Evru-landanna, það er Evrópusambandslandanna þrettán sem eiga aðild að efnahags- og myntbandalaginu, vottuðu í gær að frönskum stjórnvöldum hefði tekist að koma fjár- lagahalla franska ríkisins niður fyrir tilskilin mörk, þrjú prósent af landsframleiðslu, „á trúverðugan og sjálfbæran hátt“. Ráðherrarnir vöruðu í ályktun sinni þó við því að enn væru opinberar skuldir Frakka aðeins yfir mörk- um stöðugleikasáttmála myntbandalagsins, og horf- ur væru á að það breyttist ekki fyrr en í fyrsta lagi á þarnæsta ári. Að Frakkar og Þjóðverjar, stærstu þjóðhagkerfin á evrusvæðinu, skyldu ekki geta haldið sig innan marka stöðugleikasáttmálans síðustu ár hefur verið álitshnekkir. En Þjóðverjar eru taldir einnig munu ná inn fyrir mörkin í ár. Þýska stjórnin hefur lagt metnað sinn í það, enda fer hún nú með formennskuna í ESB og er að undirbúa fjármálaráðherrafund sjö mestu iðn- velda heims, G-7 hópsins svonefnda, sem fram fer í Essen í lok næstu viku. Íslenska ríkið vill afsala sér landsvæði sem skilgreint er sem þjóðlenda. Þetta kemur fram í frumvarpi til laga um heim- ild til að afsala landi og vatnsrétt- indum til Landsvirkjunar vegna Búrfellsvirkjunar, sem tekið var til umræðu á Alþingi á mánudag og var vísað til 2. umræðu og allsherj- arnefndar í gær eftir atkvæða- greiðslu. Með frumvarpinu vill ríkisvald- ið afsala sér eignarrétti á 25 fer- kílómetra landsvæði, sem er eink- um í Búrfells- og Skeljafellslandi, og vatnsréttindum í Þjórsá fyrir virkjun Landsvirkjunar við Búr- fell. Þegar Landsvirkjun var stofnuð árið 1965 lagði íslenska ríkið fram lands og vatnsréttindi á svæðinu, sem það keypti af Fossafélaginu Titan árið 1951, í sameignarsamn- ingi sem það gerði ásamt Reykja- víkurborg. Ríkið átti 50 prósent í Landsvirkjun og Reykjavíkurborg 50 prósent. Með úrskurðum óbyggðanefndar, árin 2002 til 2004, var landsvæðið skilgreint sem þjóðlenda og að þar með ætti ríkis- valdið land- og vatnsréttindin á því. Ríkisstjórnin vill því að land- svæðið og vatnsréttindin, sem metin eru á 500 milljónir króna, verði aftur eign Landsvirkjunar. Mörður Árnason og Jóhann Ársælsson, þingmenn Samfylking- arinnar, gagnrýndu frumvarpið á mánudag því þeir telja að afsal rík- isins á landi sem óbyggðanefnd hefur úrskurðað að sé þjóðlenda, geti skapað fordæmi um hvað verði gert við þjóðlendurnar í framtíð- inni. „Það er hvergi talað um það í þjóðlendulögunum með hvaða hætti það ætti að koma til að ríkið selji eða afsali sér eignarrétti á þjóðlendum,“ segir Jóhann. Hann telur að það þurfi að liggja fyrir stefnumörkun um hvað eigi að gera við þjóðlendurnar en ekki að „ríkið hlaupi til og afsali sér eignarréttin- um án þess að sú umræða hafi farið fram“. Undir þetta sjónarmið tók Kol- brún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, í umræðunum. Jóhann sagði þetta fyrsta skrefið í þá átt að selja þjóðlendurnar. Ekkert í þjóðlendulögunum kveður á um að löggjafinn geti ekki afsalað sér eignarrétti á þjóðlend- um. En til þess þarf löggjafinn að samþykkja sérlög sem kveða á um að ríkið afsali sér eignarréttinum; það er markmið þessa frumvarps. Til þess að koma í veg fyrir afsal ríkisins á þjóðlendum þarf að vera kveðið á um það í stjórnarskrá og töluðu Jóhann og Mörður fyrir því að það yrði gert. Ekki náðist í Geir H. Haarde í gær vegna málsins. Vill að þjóðlenda verði að einkaeign Ríkisstjórnin vill samþykkja frumvarp sem í felst afsal þjóðlendu. Tveir þingmenn Samfylkingarinnar vilja ákvæði í stjórnarskrá um að ríkið afsali sér ekki þjóðlend- um. Ekkert í þjóðlendulögum segir að ríkið geti ekki afsalað sér þjóðlendum. Nýjum sjóði, Bók- menntasjóði, er ætlað að taka við hlutverki Bókmenntakynningar- sjóðs, Menningarsjóðs og Þýðingarsjóðs. Samkvæmt frumvarpi menntamálaráðherra á Bók- menntasjóður að styrkja útgáfu íslenskra skáldverka og vandaðra rita sem eru til þess fallin að efla íslenska menningu, styrkja útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslenskri tungu og stuðla að kynningu á íslenskum bókmenntum á Íslandi og í útlönd- um. Bókmenntasjóði eru ætlaðar um 50 milljónir króna á fjárlög- um ársins. Þremur sjóðum slegið í einnHallbjörn Hjartarson hefur sent Höfðahreppi þakkar- bréf vegna fjárstyrks sem hreppsnefndin veitti honum til að reka Útvarp Kántríbæ á Skagaströnd. Hreppsnefndin sagði að með því að samþykkja tillögu oddvitans um að veita Hallbirni styrkinn væri verið að styðja við bakið á þeirri menningar- og kynningarstarfsemi sem Útvarp Kántríbær standi fyrir. Rekstur útvarpsstöðvarinnar mun hafa verið þungur að undanförnu. Styrkurinn frá hreppnum nemur 250 þúsund krónum. Þakkar styrk frá hreppnum Umræður áttu sér stað um deiliskipulagstillöguna og málsmeðferðartillögurnar í Hafnarfirði á bæjarstjórnarfundi í gær. Auka bæjarstjórnarfundur verður í dag til að ganga til atkvæða um málið. Engar afdrifaríkar ákvarðanir voru því samþykktar í gær. Guðrún Ágústa Guðmundsdótt- ir, bæjarfulltrúi Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs, lét bóka mótmæli á bæjarstjórnarfundi í gær og benti á að í staðinn fyrir að bíða með að auglýsa deiliskipu- lagstillöguna væri eðlilegra að senda hana strax í auglýsingu. Aukafundur í dag um álverið Lög hugsanleg fyrir þinglok Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði í gær með Bill Gates, stofnanda Microsoft. Fundurinn var haldinn í Edinborg í tengslum við leiðtogaráðstefnu sem haldin er í skoska þinginu. Gates er áhugasamur um að Ísland verði tilraunavettvangur fyrir nýjan hugbúnað og minntist á þá hreinu orku sem hér er að finna; hún geri fýsilegt að þróa hér ýmsa tækni. Hann tók vel í boð forsetans um að koma til Íslands að kynna sér þetta betur. Forsetanum var afhent nýtt stýrikerfi frá Microsoft, Vista, en íslensk útgáfa af því mun væntanleg á markað. Átti fund með Bill Gates í gær

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.