Fréttablaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 11
Aðalmyndavél
Hubble-geimsjónaukans bilaði
um helgina og útlit er fyrir að
einungis verði hægt að gera við
hana að hluta nú að því er kemur
fram í tilkynningu Geimvísinda-
stofnunar Bandaríkjanna (NASA).
Hubble-geimsjónaukinn, sem
var skotið á loft árið 1990, hefur
haft gífurlegt mikilvægi fyrir
geimvísindi í heiminum og meðal
annars sent til jarðar skýrustu
myndir sem teknar hafa verið af
myndun vetrarbrauta.
NASA áætlar að senda
geimfara á næsta ári til að gera
við og uppfæra Hubble.
Bilun í Hubble-
sjónaukanum
Laun Eiðs Smára Guðjohn-
sen, fyrir nýgerðan þriggja ára
samstarfssamning við Eimskip,
eru trúnaðarmál að sögn Eggerts
Skúlasonar, talsmanns landsliðs-
fyrirliðans. Samningurinn er á
sviði markaðs- og kynningarmála
og er Eimskip heimilt að nota
nafn og ímynd Eiðs til að kynna
og auglýsa fyrirtækið.
Eggert segir að Eiður fái eina
fasta greiðslu fyrir samninginn.
„Eimskip er að kaupa aðgang að
nafni hans og ímynd til að kynna
fyrirtækið,“ segir Eggert og
bætir því við að Eiður megi að
sjálfsögðu leika í auglýsingum
fyrir aðra á tímabilinu.
Talsmaðurinn segir að laun Eiðs
fyrir samninginn þyki umtals-
verðir peningar hér á landi en
ekki úti í hinum stóra heimi.
Gefa ekki upp
launagreiðslur
Umhverfisstofnun
hefur verið í samstarfi við Land-
helgisgæsluna í gegnum tíðina en
strand Wilson Muuga í Hvalsnes-
fjöru í Sandgerði hvatti Umhverf-
isstofnun til að taka upp þráðinn
og endurnýja samstarfssamning-
inn milli þessara stofnana.
Umhverfisstofnun sendi Land-
helgisgæslunni bréf í byrjun árs-
ins, þakkaði fyrir samstarfið eftir
strandið og óskaði eftir viðræðum
um að tryggja enn betur en fyrr
samstarf stofnananna um eftirlit
með mengun sjávar við Ísland og
viðbrögð við bráðamengun hafs
og stranda.
Í bréfinu segir að sívaxandi
fjöldi olíuflutningaskipa og ann-
arra kaupskipa leggi enn meiri
skyldur á hendur íslenskum
stjórnvöldum um eftirlit, viðbún-
að og viðbrögð við bráðamengun.
Í því ljósi sé óskað eftir viðræð-
um um endurnýjun samstarfs-
samnings um eftirlit með mengun
sjávar, sérstaklega úr lofti, verk-
áætlun um samstarf vegna yfir-
vofandi bráðamengunar, mengun-
arvarnabúnaði í nýtt varðskip og
nauðsynlegan búnað til eftirlits og
viðbragða í flugvélum og þyrlum.
Davíð Egilson, forstjóri
Umhverfisstofnunar, segir að
lögum samkvæmt eigi að vera
samstarf milli þessara stofnana
en verið sé að endurnýja sam-
starfssamninginn, uppfæra hann
og færa til nútímalegs horfs.
Áður hafi verið samstarf, til
dæmis sameiginlegar æfingar,
eins og lögboðið sé en síðan hafi
margt gerst, stofnanirnar skipt
um nafn og því hafi verið ástæða
til að gera samstarfið formlegra
og bæta það.
Vildi endurnýja samstarf við Gæsluna
Arna Schram, formað-
ur Blaðamannafélagsins, krefst
skýringa á því að menntamála-
ráðuneytið hafi hunsað tilnefning-
ar félagsins um fulltrúa í stjórn
Norræna blaðamannaskólans í
Árósum. Þetta kemur fram í
harðorðu bréfi sem hún sendi
ráðuneytinu á dögunum.
Í bréfinu segir að stjórn
Blaðamannafélagsins lýsi undrun
sinni á því að menntamálaráðu-
neytið hafi skipað aðra fulltrúa í
sérfræðinganefnd norræna
blaðamannaskólans NJC í Árósum
en stjórn félagsins tilnefndi.
Ráðuneytið
hunsar tilnefn-
ingar félagsins