Fréttablaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 34
10
Árið var viðburðaríkt og íslenskt
tónlistarlíf sýndi og sannaði að hér
er unnið af metnaði og eldlegum
áhuga.
Tæplega 200 íslenskar hljóm-
plötur voru gefnar út á árinu og
var rúmlega helmingur þeirra lagð-
ur fram til Íslensku tónlistarverð-
launanna. 54 frumflutt tónverk
voru lögð fram í flokki sígildrar og
samtímatónlistar.
Stjórn verðlaunanna ákvað að
fækka tilnefningum úr fimm í þrjár,
og undirstrika þannig mikilvægi
þess að hljóta viðurkenningu fag-
nefnda á vegum Íslensku tónlistar-
verðlaunanna.
Verðlaunin einskorða sig ekki
við útgáfu, og eru tónlistarflytj-
endur einnig tilnefndir fyrir afrek á
tónleikapallinum. Tónleikum fjölg-
ar sífellt; árið 2005 voru taldir um
2.400 tónleikar sem var 54% aukn-
ing frá árinu áður. Talning fyrir árið
2006 stendur nú yfir og má enn gera
ráð fyrir fjölgun frá síðasta ári.
Tónlistarviðburðir ársins voru
fleiri og glæsilegri en nokkru sinni.
Listamenn héldu upp á ýmis afmæli
með stórtónleikum og nýjung var
að umfangsmiklir útitónleikar voru
haldnir bæði í Reykjavík og úti um
allt land þar sem fjölmenni naut
tónlistarflutnings í blíðskaparveðri.
Langþráður draumur rættist
þegar stofnuð var Útflutnings-
skrifstofa tónlistar nú í nóvember
og eru miklar vonir bundnar við
skipulagða útrás íslenskra tónlist-
armanna.
Á þessu ári hillir undir sigur
í baráttumáli um lækkun virðis-
aukaskatts á tónlist og sífellt eykst
samstarf atvinnulífs og tónlistarlífs
með auknum skilningi á verðmæta-
sköpun og mikilvægi þess að vera
menningarþjóð með viðskiptavit.
Þá er aðeins eitt sem við megum
ekki gleyma. Gróskan er ávöxt-
ur uppeldis og því þurfum við að
muna að styðja við listuppeldi og
listsköpun barnanna og unga fólks-
ins.
Þar er lykillinn að sigrum fram-
tíðarinnar.
Margrét Bóasdóttir,
formaður stjórnar Íslensku tón-
listarverðlaunanna.
Stjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna:
Margrét Bóasdóttir, stjórnarformaður
Björn Th. Árnson
Eiður Arnarsson
Pétur Grétarsson
Sigurgeir Sigmundsson
Framkvæmdastjóri:
Berglind María Tómasdóttir
itv@fih.is
www.iston.is
DÓMNEFNDIR: Sígild og samtímatónlist:
Bjarki Sveinbjörnsson, Elín Gunnlaugsdóttir,
Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Selma Guðmunds-
dóttir, Snorri Heimisson. / Djass: Benedikt Garð-
arsson, Hildur Guðný Þórhallsdóttir, Hlín Lilja
Sigfúsdóttir, Vernharður Linnet, Þorsteinn Þor-
steinsson. / Fjölbreytt tónlist: Andrea Jónsdóttir,
Bjarni Bragi Kjartansson, Ólafur Páll Gunnars-
son, Óskar Páll Sveinsson, Ragnheiður Eiríks-
dóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Steinþór Helgi
Arnsteinsson. / Bjartasta vonin: Elísabet Indra
Ragnarsdóttir, Guðmundur Óskar Guðmunds-
son, Högni Egilsson, Ólafur Páll Gunnarsson,
Vernharður Linnet. / Myndband ársins: Arnar
Þórisson, Sigríður Pétursdóttir, Stefán Jónsson. /
Plötuumslag ársins: Halla Guðrún Mixa, Sigrún
Sigvaldadóttir, Stefán Einarsson.
Þakkir: Landsbankinn, Icelandair, Fréttablaðið,
Menntamálaráðuneytið, Iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytið, Reykjavíkurborg - Höfuðborgarstofa,
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar,
Hitt húsið, Tónlist.is, Vísir.is, Saga Film, Exton,
RÚV, Borgarleikhúsið, Tónastöðin, Ólafur Unnar
Kristjánsson, Jónatan Garðarsson.
Blað Íslensku tónlistarverðlaunanna: Umsjón,
hönnun og umbrot: Fréttablaðið og Berglind
María Tómasdóttir.
Samtónn er
ábyrgðaraðili
Íslensku tónlist-
arverðlaunanna
Uppskeruhátíð
tónlistarársins
2006 er í dag
„Diskurinn hefst á munkasöng og
endar á Baggalúti,“ segir Berglind
María Tómasdóttir, framkvæmda-
stjóri Íslensku
tónlistarverð-
l a u n a n n a ,
um vegleg-
an geisladisk
sem gefinn er
út í tilefni af
a f h e n d i n g u
verðlaunanna.
B e r g l i n d
segir að ákveð-
ið hafi verið að
gefa út geisla-
disk á hverju
ári í tengslum við afhendingu
Íslensku tónlistarverðlaunanna
hér eftir. Stórir tónlistarútgefendur
taka þátt í þessu framtaki og sjá um
útgáfuna. Að þessu sinni gefa 12
Tónar diskinn út.
Alls eru 19 lög á disknum. Flytj-
endur sem eiga lög á honum eru
Voces Thules, Áshildur Haraldsdóttir
og Atli Heimir Sveinsson, Ásgerður
Júníusdóttir, Atlantshaf, Jóel Páls-
son, Ásgeir Ásgeirsson, Tómas R.
Einarsson, Skúli Sverrisson, Barði
Jóhannsson með Sinfóníuhljóm-
sveit Búlgaríu, Ghostigital, Reykja-
vík!, Lay Low, Pétur Ben, Benni
Hemm Hemm, Hafdís Huld, Sálin
og Gospelkór Reykjavíkur, Hjálmar,
Bogomil og Flís og Baggalútur og
Björgvin Halldórsson.
Geisladiskur Íslensku tónlist-
arverðlaunanna er til sölu í öllum
betri hljómplötuverslunum.
Veglegur
hátíðardiskur
{ íslensku tónlistarverðlaunin }
„Mér finnst þetta líta afskaplega
vel út,“ segir Felix Bergsson sem
er kynnir á Íslensku tónlistarverð-
laununum í kvöld. Afhending verð-
launanna fer fram í Borgarleikhús-
inu klukkan 20.10 og er í beinni
útsendingu í Sjónvarpinu.
„Ég er svo hrifinn af svona
uppskeruhátíðum þannig að ég er
mjög ánægður og spenntur. Þetta
er náttúrulega hið eina og sanna
bransapartí en það er öllum boðið
í það. Áhorfendur fá að fylgjast
með herlegheitunum úr heiðurssæti
heima í stofu,“ segir Felix.
Íslensku tónlistarverðlaunin voru
fyrst afhent árið 1993 og síðustu ár
hefur verðlaunahátíðin sífellt orðið
stærri í sniðum. Mikið er lagt í
sjónvarpsútsendinguna. „Það hefur
farið óskaplega mikil vinna í þetta
svo ég hef trú á því að þetta verði
einkar glæsilegt,“ segir Felix sem er
nú kynnir annað árið í röð.
Fjöldi glæsilegra listamanna
kemur fram á hátíðinni, til að mynda
Stórsveit Reykjavíkur, Pétur Ben,
Lay Low, Víkingur Heiðar Ólafsson,
Voces Thules og Baggalútur ásamt
Björgvini Halldórssyni.
Felix telur að Íslensku tónlistar-
verðlaunin í ár endurspegli vel þá
grósku og fjölbreytni sem sé nú að
finna í íslensku tónlistarlífi. „Upp-
skeran er með hreinum ólíkindum,“
segir Felix sem telur engan vafa
leika á að framtíðin sé afar björt.
Bransapartí sem
öllum er boðið í