Fréttablaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 28
Toyota ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína á Íslandi.
Mikið selt af jeppum og jepplingum.
Alls voru 19.516 jeppar og fólksbílar nýskráðir á síðasta
ári. Árið 2005 voru þeir 18.058 og því voru átta prósent-
um fleiri nýir bílar á götunni á 2006 en árið 2005.
Þegar litið er yfir nýskráningar einstakra framleið-
anda kemur yfirburðastaða Toyota bersýnilega í ljós.
Af lista tíu söluhæstu bifreiðategundanna á Toyota
fimm tegundir, þar á meðal þær sem verma þrjú efstu
sætin.
Á síðasta ári seldust 4.919 Toyota-bílar. Svo miklir
eru yfirburðir merkisins að séu sölutölur bílaframleið-
enda í öðru til fimmta sæti yfir söluhæstu bifreiðar á árinu lagð-
ar saman nær sú tala ekki að skáka Toyota. Þessir framleiðendur
eru Ford og Volkswagen með 1.288 selda bíla. Þar á eftir koma
Hyundai og Honda með 1.106 og 951 seldan bíl 2006 en
samanlagt eru þetta 4.633 bílar, 286 bílum færri en Toy-
ota.
Langsöluhæsta fólksbílategundin árið 2006
var Toyota Yaris. Á árinu seldust 1.186 slíkir
bílar, eða 3,2 eintök á dag. Þar á eftir kom Toyota
Corolla með 984 selda bíla á árinu og í þriðja sæti
var Skoda Octavia með 818 selda bíla. Í fjórða
sæti var Toyota Avensis og í fimmta sæti Subaru
Legacy.
Toyota átti einnig tvær söluhæstu jeppabifreið-
arnar. Toyota Land Cruiser seldist í 987 eintökum
og Toyota Rav4 í 611 eintökum. Hyundai Santa Fe
seldist í 471 eintaki og þar á eftir komu Honda
CR-V með 414 selda bíla og Kia Sorento
með 364 selda bíla.
Íslendingar eru Yarisþjóð
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði
Íslensk ímyndarauglýsing fyrir
Volkswagen Passat er nú sýnd
á sjónvarpsstöðvum í Suður-
Kóreu og Ungverjalandi.
Íslensk auglýsing fyrir Volkswag-
en Passat hefur ratað á markaði í
Austur-Evrópu og í Asíu. Auglýs-
inguna gerðu Hvíta húsið og Saga
film fyrir bifreiðaumboðið Heklu.
Auglýsingin var tekin á 35 mm
filmu á völdum stöðum í Reykja-
vík og á Nesjavöllum þar sem
Volkswagen Passat líður um í
svart-hvítum draumaheimi. Leik-
stjóri var Sævar Guðmundsson og
Barði Jóhannsson í Bang Gang
samdi tónlist sérstaklega fyrir
þetta verkefni.
Passat-auglýsingin barst frá
Íslandi til Suður-Kóreu og Ung-
verjalands fyrir tilstilli auglýs-
ingastofu Volkswagen í Evrópu,
DDB International, en þeir hafa
yfir að ráða öflugum gagna- og
auglýsingabanka fyrir umboðsað-
ila VW um allan heim.
Fyrirspurnir hafa einnig borist
frá Taívan vegna auglýsingarinn-
ar þannig að ekki sér fyrir endann
á þessum óvenjulega anga íslensku
útrásarinnar.
Sýnd í Suður-Kóreu