Fréttablaðið - 31.01.2007, Page 16

Fréttablaðið - 31.01.2007, Page 16
Nokkuð er um óseldar nýjar eignir á höfuðborgar- svæðinu eftir að framboð á nýjum fjölbýlisíbúðum hefur aukist veru- lega á höfuðborgarsvæðinu undan- farin ár. Í vefriti fjármálaráðuneyt- isins kemur fram að í fyrra hafi tekið að hægja á fasteignamarkaði og draga úr eftirspurn á íbúða- markaði. Björn Þorri Viktorsson, formað- ur Félags fasteignasala, segir að markaðurinn hafi leitað jafnvægis. Vissulega sé nokkuð framboð á nýbyggingum en sala þeirra hafi samt tekið vel við sér nú í upphafi ársins því bankarnir séu aftur komnir inn á fasteignalánamarkað- inn. „Markaðurinn er í mjög góðu jafnvægi heilt á litið. Vinsælar og eftirsóttar eignir hafa staðið sig mjög vel í sölu og sumar hafa haldið áfram að hækka í verði en svo hefur kannski dregið úr og dæmi um eina og eina eign sem hefur heldur lækk- að í verði,“ segir hann. Björn Þorri metur markaðinn nokkuð stöðugan á þessu ári, kaup- geta fólk sé góð og svo megi ekki gleyma því að mikill fjöldi fólks hafi flutt til landsins. Fasteign sé frumþörf og þeir sjö til átta þúsund Íslendingar sem höfðu flutt til landsins um áramót þurfi híbýli. Nafnverð íbúða hefur nánast staðið í stað frá miðju síðasta ári en raunverð miðað við neysluvísitölu hefur lækkað, samkvæmt vefrit- inu. Verð breytist ekki jafn hratt og áður og í desember var hraðinn á verðbreytingum kominn undir verðbólguhraða. Í vefriti fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir samdrætti íbúða- fjárfestinga á þessu ári sem nemur fimm prósentum. Á næsta ári er spáð að íbúðafjárfestingar dragist saman um tæp tvö prósent. Nýjar eignir eru óseldar Greiðslubyrði heimilanna eykst um samtals tæpa 22 millj- arða króna á árinu 2007 vegna þess að ríkisstjórninni hefur ekki tekist að halda aftur af þenslu. Það þýðir að meðalfjölskyldan þarf að greiða 250 þúsund krónum meira í afborganir og vexti á árinu en ella. Þetta sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylking- arinnar, í umræðum utan dagskrár um efnahagsmál á Alþingi í gær. Um leið og Ingibjörg Sólrún fagnaði góðri stöðu fyrirtækja og þá helst gríðarlegum hagnaði bankanna gagnrýndi hún efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar harðlega. Gerði hún skuldastöðu heimilanna að sérstöku umtals- efni og sagði stjórn efnahagsmála á kjörtímabilinu einkennast af ábyrgðarleysi. Í andsvari sínu fjallaði Geir H. Haarde forsætisráðherra um efna- hagslífið almennt og sagði það níð- sterkt. Tiltók hann þrjár ástæður fyrir því; mikinn sveigjanleika, sterka stöðu ríkissjóðs og traust og efnað lífeyrissjóðakerfi. Sagði hann hafa reynt á þanþol í efna- hagslífinu en kvaðst jafnframt sannfærður um að við værum komin fyrir vind og að rólegri tímar væru framundan. Hvað varðaði auknar skuldir heimilanna og helstu aðfinnslu Ingibjargar Sólrúnar sagði Geir rétt að skuldir tiltekinna hópa hefðu aukist en horfa yrði um leið til þess að eign- ir hefðu jafnframt aukist og það varanlega. Geir vísaði því til föðurhúsanna að mistök hefðu verið gerð við hagstjórnina og spurði hvort lækk- un skatta, hækkun barnabóta og aðgerðir fyrir aldraða væru mis- tök. Þuríður Backman, VG, sagði vandann ljósan og að rót hans lægi í stóriðjustefnunni. Snúa þyrfti af þeirri braut og gæta þess að vekja ekki væntingar um frekari stór- iðju, slíkt gæti viðhaldið þenslu. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, sagði það alla tíð hafa legið fyrir að þensla yrði á kjörtímabilinu. Hún hafi að vísu aukist vegna aðgerða bankanna á húsnæðismarkaði en þar væri ekki hagstjórnarmistökum stjórn- valda um að kenna. Þá varaði Jón við því sem hann kallaði vanhugs- uð dómsorð stjórnarandstæðinga um efnahagslífið. Sigurjón Þórðarson, Frjáls- lynda flokknum, gagnrýndi útgjöld ríkisins og sagði allar áætlanir hafa farið úr böndunum. Stað- reyndin væri að stjórnarstefnan birtist í vöxtunum og verð- bólgunni. Útgjöld heimilanna aukast um 250.000 Formaður Samfylkingarinnar segir að vegna efnahagsstefnu stjórnvalda aukist útgjöld heimilanna um 250.000 krónur á árinu. Forsætisráðherra segir stöðu ríkis- sjóðs gríðarsterka. Viðskiptaráðherra varar við dómsorðum stjórnarandstæðinga. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S N A T 33 63 8 08 /2 00 6 Öll börn í Barnaskólan- um á Eyrarbakka, um áttatíu tals- ins, voru send heim í fyrradag. Kristinn Bárðarson, kennari og varatrúnaðarmaður við skólann, segir það hafa verið gert í mót- mælaskyni við það sem hann kall- ar sleifarlag við framkvæmdir við skólann. „Verið er að ganga frá tveimur útistofum við skólann. Frágangur- inn hefur ekki verið boðlegur starfsfólki og allra síst börnum. Beiðnum okkar um úrbætur er ekki svarað og því neyddumst við til að bregða á það ráð að senda börnin heim. Með því vonumst við til þess að ná eyrum þeirra sem starfa á framkvæmdasviði Ár- borgar,“ segir Kristinn en til stendur að ljúka þessum fram- kvæmdum í byrjun janúar. Kristinn segir elsta hluta skól- ans vera frá 1913 og vonast til þess að hlutirnir verði komnir í lag fyrir hundrað ára afmæli skólabyggingarinnar. „Þessi skóli er sá elsti á landinu, tók til starfa 1852, og merkilegt að við með þessa merku sögu fáum ekki betri þjónustu en þetta,“ bætir hann við langþreyttur á ástandinu. Kristinn segist ekki hafa heyrt um viðbrögð foreldra barnanna en segir að ekki standi til að senda börnin aftur heim. „Ég trúi ekki öðru en okkar röggsami bæjar- stjóri taki á málinu,“ segir Krist- inn að lokum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.