Fréttablaðið - 31.01.2007, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 31.01.2007, Qupperneq 74
 Það gekk lítið hjá Eið Smára Guðjohnsen í fyrsta mánuði ársins 2007 og þetta var fyrsti mán- uðurinn, síðan hann gekk til liðs við Barcelona, sem honum tókst ekki að skora. Síðasta mark Eiðs Smára, sem var jafnframt það tíunda á tímabilinu, kom gegn mex- íkóska liðinu CF América í heims- bikarkeppni félagsliða 14. desem- ber. Þetta var 21. leikur Eiðs Smára með Barcelona og á þeim tíma var hann með mark á 123 mínútna fresti sem er mjög góður árangur. Síðan þá hefur Eiður Smári leikið átta leiki án þess að skora og er nú markalaus á síðustu 455 mínútun- um sem hann hefur spilað með Barcelona. Eiður Smári hefur verið vara- maður í síðustu þremur leikjum Barcelona og aðeins fengið að spreyta sig í 61 mínútu í þeim. Þetta eru mikil viðbrigði fyrir landsliðsfyrirliðann sem byrjaði inn á í tíu leikjum Barcelona í röð í lok síðasta árs. Bestu mánuðir Eiðs Smára voru október og nóvember þar sem hann skoraði 6 mörk í 10 leikjum og byrjaði alla leiki sem hann spilaði. Eiður skoraði 1 mark í ágúst og september og síðan tvö mörk í síðasta mánuði ársins. Samkeppnin er aðeins að verða meiri nú þegar Samuel Eto’o og Lionel Messi snúa aftur úr meiðsl- um. Argentínumaðurinn Javier Saviola hefur spilað frábærlega að undanförnu og það er alveg ljóst að Eiður Smári þarf að fara að skora ætli hann sér að fá einhver tæki- færi þegar Eto’o og Messi verða orðnir klárir í slaginn. Javier Savi- ola skoraði 8 mörk í 7 leikjum Börs- unga í janúar og hefur nú skorað 12 mörk í 16 leikjum á tímabilinu. Það hafa því aðeins liðið 67,7 mínútur á milli marka hjá honum. Eiður Smári er í 4. sæti meðal marksækn- ustu leikmanna Evrópu- og Spánar- meistara Barcelona en fyrir ofan hann eru Saviola, Ronaldinho og Samuel Eto’o. Barcelona hefur gengið vel þann tíma sem Eiður Smári hefur verið inn á vellinum en markatalan í þessar 1.688 mínútur sem hann hefur spilað í búningi Börsunga er 40-15, Barcelona í vil. Barcelona hefur því skorað með 42,2 mínútna millibili á meðan Eiður er inn á og það eru aðeins Javier Saviola (36,9) og Ludovic Giuly (41,6) sem koma betur út úr þeirri tölfræði. Það eru ekki bara íslenskir knattspyrnuáhugamenn og Eiður Smári sem bíða og vonast til þess að hann finni skotskóna á ný því samkvæmt nýjum samstarfssamn- ingi við Eimskip renna stórar pen- ingaupphæðir til líknarmála þegar Eiður Smári skorar. Í tilkynningu á heimasíðu Eimskips segir að Eim- skip vilji byrja á að heita hálfri milljón króna á Neistann, styrktar- félag hjartveikra barna, fyrir hvert mark sem Eiður Smári skorar í deildakeppninni á þessu tímabili og að sama skapi heitir félagið milljón á Umhyggju, félag til styrktar langveikum börnum, fyrir hvert mark sem Eiður Smári skor- ar í meistaradeild Evrópu á þessu tímabili. Næsti leikur Börsunga er í kvöld gegn Real Zaragoza í spænska Konungsbikarnum og nú er að sjá hvort Eiður Smári fái tækifæri hjá Frank Rijkaard í þessum leik og hvort honum takist að skora langþráð mark, sitt fyrsta í einn og hálfan mánuð. Útlitið er ekkert alltof bjart fyrir okkar mann hjá Barcelona. Eiður Smári hefur ekki skorað í síðustu átta leikjum sínum, á sama tíma hefur Javier Saviola skorað 8 mörk og samkeppnin er jafnframt að harðna. Edgar Davids hefur snúið aftur heim til Ajax Amster- dam þar sem hann hóf knatt- spyrnuferil sinn. Hann skrifaði í gær undir átján mánaða samning við félagið. Davids hefur fá tækifæri fengið hjá Tottenham í haust en hann átti ríkan þátt í velgengni liðsins á síðasta tímabili. Aftur til Ajax Í gær var gengið frá því að Bruno Berner færi til Black- burn frá Basel í Sviss á átján mánaða lánssamningi. Berner er vinstri bakvörður og hefur fallið í ónáð hjá stjóra Basel. Mark Hughes ákvað að gefa honum tækifæri og bauð honum til æfinga hjá Blackburn. Honum var svo í kjölfarið boðinn samningur. Berner lánaður til Blackburn Bandaríski leikmaður- inn Ismail Muhammad er á heim- leið eftir að hafa spilað aðeins sex leiki með Keflavík. Keflavík hafði aðeins unnið 2 af þessum 6 leikj- um og Muhammad var með 17,0 stig og 6,3 fráköst að meðaltali í fjórum leikjum sínum í Iceland Express-deildinni. Ismail hafði hins vegar aðeins gefið samtals 6 stoðsendingar í þessum fjórum leikjum, á móti 59 skotum og náði því greinilega ekki að gera aðra leikmenn liðsins betri í kringum sig. Í undanúrslitaleikn- um gegn Hamar/Selfoss á sunnu- dagskvöldið skoraði hann hins vegar aðeins tvö stig á síðustu 15 mínútum leiksins. Á sama leik- kafla vann Hamars/Selfoss-liðið upp 16 stiga forskot Keflvíkinga og tryggði sér sæti í bikarúrslit- unum. Leikmannamál Keflavíkurlið- anna hafa reynt á stjórnarmenn í vetur. Karlaliðið hefur látið fjóra erlenda leikmenn fara og eru á leiðinni að fá sinn sjötta erlenda leikmann og á dögunum kom í ljós að Kesha Watson væri á leið heim í aðgerð og að kvennaliðið þyrfti þar með sinn þriðja bandaríska leikmann. Þegar nýju leikmennirnir lenda í Keflavík verður heildarfjöldi atvinnumanna Keflavíkur kominn upp í níu leikmenn á þessum fjór- um mánuðum sem eru búnir af tímabilinu. Muhammad lék aðeins sex leiki „Ég hef ekki hugmynd um ástæðu þess að læknirinn leyndi þessu í tvo mánuði. Ég fór í aðgerð til hans vegna ökkla í milli- tíðinni og þá minntist hann ekki á þetta, lét mig ekkert vita hvað kom út úr myndatökunni,“ sagði markvörðurinn Ingvar Kale við Fréttablaðið í gær. Ingvar hefur ákveðið að kæra lækni sem hann leitaði til vegna meiðsla í úlnliði. „Þetta er mjög leiðinlegt mál. Ég fór í segulómskoðun sextánda október og þar sést alveg hvað þetta er. Samt er ég ekki boðaður til bæklunarlæknis fyrr en tveim- ur mánuðum síðar. Sá læknir var alveg undrandi yfir því að ég var ekki búinn að koma fyrr. Hann sagði við mig að það væri best fyrir mig að fá mér lögfræðing til að halda utan um mín mál,“ sagði Ingvar en hann braut bein í úln- liðnum. Hefði læknirinn brugðist strax við hefðu þessi meiðsli ekki verið mikið mál. „Bæklunarlæknirinn segir að ég missi af öllu næsta tímabili og það væri bara jákvætt ef ég gæti spilað eftir það. Það er víst þannig að einn af hverjum fimm sem fer í svona aðgerð nær sér ekki aftur. Það gæti gerst að beinin nái ekki að gróa saman og ef svo fer þá er ég ekki í góðum málum,“ sagði Ingvar sem reynir þó að líta á björtu hliðarnar og er ákveðinn í að reyna að snúa aftur sem fyrst. Ekki er enn vitað hver mun fylla skarð Ingvars í marki Vík- ings en félagið hefur verið orðað við Bjarna Þórð Halldórsson hjá Fylki. Ingvar sjálfur segir sjálfur að þetta sé ekki mikið vandamál og telur varamarkvörðinn Magn- ús Þór Magnússon færan um að taka hans stöðu. „Mér finnst Maggi hafa staðið sig vel og held að hann sé vel inni í myndinni. Ég treysti honum alveg til að spila í minni fjarveru,“ sagði Ingvar sem fékk aðeins 18 mörk á sig í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar. Ingvar Kale ætlar að kæra lækni Suðurströnd 4 Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000 *T ire R ev ie w M ag az in e Bestu dekkin átta ár í röð!*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.