Fréttablaðið - 31.01.2007, Síða 78

Fréttablaðið - 31.01.2007, Síða 78
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Unnur Birna Vilhjálmsdóttir prýddi forsíðu Bombay Times á mánudag. Bombay Times er fylgi- rit eins víðlesnasta dagblaðs Ind- lands, The India Times, í Bombay, sem er fjölmennasta borg landsins en þar búa um þrettán milljónir. Á for- síðu blaðsins er fjallað um nýútkomið sundfatadagatal The India Times, sem skartar tólf íslenskum fljóðum og er Unnur Birna forsíðustúlkan. Eskimo Models annað- ist gerð dagatalsins fyrir The India Times. „Við höfum rekið útibú á Indlandi í tvö ár og The India Times er einn af viðskiptavinum okkar þar,“ segir Andrea Brabin, einn af eigendum Eskimo Models. „Þegar við kynnt- um Ísland sem mögulegan töku- stað leist þeim strax vel á. Þeir vildu að allar fyrirsæturnar yrðu íslenskar og báðu sérstaklega um Unni Birnu.“ Dagatalið er selt í bókabúðum um allt land í Indlandi og auk þess hægt að panta það á netinu. Andrea segir að daga- talið sé mikill byr í segl Eskimo Models og frá- bær auglýsing fyrir Ísland. „Vonandi eiga fleiri eftir að vilja koma hingað og nota Ísland sem tökustað, bæði fyrir ljósmyndir og bíómyndir.“ Unnur Birna hefur dvalið á Ind- landi í janúar en var væntanleg heim í gær. „Hún hefur verið að vinna ýmis verkefni og kynning- arstarf fyrir okkur og það hefur verið mikið fjölmiðlafár í kring- um hana. Þessi forsíðumynd var rúsínan í pylsuendanum,“ segir Andrea, hæstánægð með vel- gengnina. Unnur í bikiníi í Bombay Times „Ef Siggi Hall hefði fæðst fyrir þúsund árum væru til sögur um hann. Siggi hefur afrekað svipaða hluti með hníf og gaffli og hetjur fornaldarinnar með exi og sverði.“ Á þennan hátt hefst ítarleg grein blaðamannsins Johns Carlin í breska blaðinu The Observer um vikudvöl hans með Sigurði L. Hall hér á Íslandi. „Hann kom hingað í sumar og fylgdi mér hvert fótmál í heila viku,“ útskýrir Siggi. „Og það fór bara vel á með okkur,“ bætir mat- reiðslumeistarinn við og viður- kennir að hann hafi ekki hugmynd um hvernig Carlin vissi af honum. Carlin hefur skrifað svipaðar greinar fyrir blöð á borð við The Times og Daily Mail en er á mála hjá spænska dagblaðinu El Pais. Siggi upplýsir í samtali við Frétta- blaðið að Carlin hafi vikuna áður en hann kom til Íslands dvalist með bandaríska stórleikaranum Morg- an Freeman og þar áður með knattspyrnukappanum David Beckham. Siggi vill þó lítið tjá sig um þennan frægðarhóp sem hann er þarna kominn í. „Þetta er nú meira sagt í fyndni en alvöru,“ segir hann. Kokkurinn fór víða með Carlin, þar á meðal í stutta heimsókn á Bessastaði. Carlin kemur það spánskt fyrir sjónir að Siggi skuli hafa getað keyrt upp að dyrum á forsetabústaðnum, bankað upp á og farið inn. „Forsetinn, Ólafur Ragnar Grímsson, benti á að engin leit á mér hefði farið fram né ég beð- inn um skilríki,“ skrif- ar Carlin. „Mér til mikillar undrunar hafði hann rétt fyrir sér. Ef ég hefði haft þann illa ásetning að ráða forseta Íslands af dögum hefði ég getað gert það með rauðvíninu frá Rioja sem ég hafði meðferðis,“ skrifar Carlin og kemst að þeirri niðurstöðu að Ísland sé senni- lega öruggasta land í heimi. Siggi og Carlin komu víða við í Reykjavík þessa viku ef marka má greinina. Drukku meðal annars bjór á Kaffibarnum. „Sem átti að þykja flottur en aðalástæðan fyrir vinsældum hans var sennilega sú að einn eigendanna var hjartaknús- arinn Baltasar Kormákur,“ skrifar Carlin og bætir við að þeir hafi ekki þurft að standa í röð fyrir utan skemmtistaði miðborgarinnar. „Enda Siggi velþekktur á Íslandi frá árum sínum í sjónvarpi,“ skrif- ar Carlin. Og blaðamaðurinn fær að smakka á humarsúpunni frægu hjá Sægreifanum Kjartani Hall- dórssyni. Dómurinn er sá sami og New York Times eins og frægt er orðið. Af þessu góðgæti megi ferða- menn ekki missa. Að endingu er gefin uppskrift að lundarétti að hætti Sigga Hall og matreiðslumeistarinn viðurkennir að þessi grein hafi þegar vakið athygli víða. „Ég hef fengið mikið af símhringingum frá fólki hvaða- næva að úr heiminum sem hefur spurst fyrir þannig að þetta er lesið,“ segir Siggi. … fá hjónin Hansína B. Einarsdóttir og Jón Rafn Högnason, sem reka Hótel Glym með svo miklum sóma að fræga fólkið flykkist þangað til að slaka á. „Ætli þeir viti bara nokkuð af þessu?“ segir Kjartan Hallur Grét- arsson, teiknari og ræðulesari á Alþingi, þegar hann er spurður hvort einhverjir þingmenn hafi gert hosur sínar grænar eftir teikn- ingum hans. Kjartan hefur það fyrir aðalstarf að lesa yfir ræður þingmanna en verk hans á lista- sviðinu hafa vakið mikla athygli að undanförnu og mikil umferð er um My Space-síðuna hans þar sem fólki gefst kostur á að sjá verk listamannsins. Sjálfur vill Kjartan ekki gera mikið úr eigin velgengni enda telur ræðulesarinn allt slíkt tal vera afstætt. Kjartan er hógvær þegar geng- ið er á hann um listina. Segir teikn- ingar sínar bara vera kæk. „Kækur sem er ekki hægt að venja sig af,“ útskýrir hann. „Og ég veit ekkert hvaðan þetta er komið. Ætli þetta sé ekki bara sköpunarþörfin að gera vart við sig?“ Áhugi á verkum Kjartans hefur þó ratað út fyrir landsteinana en honum var boðið að halda sýningu í Bandaríkjunum. „Þeir spurðu mig hvað það kostaði að flytja mig út. Þegar ég hafði svarað þeim heyrði ég ekkert meira,“ segir Kjartan og kímir, tekur listina hæfilega alvar- lega. Reyndar hélt hann sýningu í versluninni Hallberu sem konan hans rekur á Laugaveginum en þar ruku verk Kjartans út eins og heit- ar lummur. Og þrátt fyrir tölu- verða eftirspurn á Kjartan nú engin verk til að selja. Kjartan segir að verk sín hafi litla skírskotun til vinnustaðarins við Austurvöll. „Þetta er í raun þveröfugt við þá ágætu stofnun,“ útskýrir hann. „Þetta eru bara alls konar draumsýnir,“ bætir Kjartan við. Ólæknandi kækur að teiknaGnoðavogi 44, s. 588 8686. Opið alla laugardaga 11-14 SÚR HVALUR - SÚRT RENGI HARÐFISKUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.