Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 10
Vinna við byggingu
500 metra tengibrautar milli Helga-
fellslands og Álafossvegar hefur
verið stöðvuð, segir Stefán Ómar
Jónsson, bæjarritari í Mosfellsbæ.
Úrskurðarnefnd skipulags- og bygg-
ingarmála kvað upp bráðbirgða-
úrskurð þess efnis á miðvikudag og
stöðvaði Mosfellsbær framkvæmd-
irnar tímabundið í gærmorgun.
Rökin fyrir stöðvuninni eru þau
að framkvæmdaleyfið fyrir lagn-
ingu brautarinnar hafi verið kært
til nefndarinnar og að vinna við
hana skuli liggja niðri á meðan
nefndin úrskurðar í kærumálunum.
Nefndin vísaði hins vegar frá kæru
um að framkvæmdir skuli stöðvað-
ar á meðan rekið er fyrir dómstól-
um mál til ógildingar á úrskurði
umhverfisráðherra um að fram-
kvæmdin þurfi ekki að fara í mat á
umhverfisáhrifum.
Hannes Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Helgafellsbygginga,
sem byggir tengibrautina, segir að
það sé alltaf slæmt fyrir verktaka-
fyrirtæki þegar stöðva þarf fram-
kvæmdir og segir að fyrirtækið bíði
eitthvert fjárhagslegt tjón af stöðv-
uninni.
Jón Baldvin Hannibalsson, með-
limur í Varmársamtökunum, segir
að niðurstaða nefndarinnar sé
ánægjuleg. Hann segir að úrskurð-
urinn sýni að sérfræðingar sem
fjalli um lagningu brautarinnar taki
tillit til raka Varmársamtakanna
um þau slæmu áhrif sem fram-
kvæmdin hefur á náttúruna.
Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands (ÞSSÍ) styrkti
nýlega borgaryfirvöld í
Mapútó, höfuðborg Mósambík,
til úrbóta á aðstæðum í skóla
heyrnarlausra í borginni.
Vegna betri aðstæðna hafa
skólayfirvöld nú ákveðið að
opna forskóladeild og fá
heyrnarlaus börn inni í
táknmálsumhverfi áður en
eiginlegt skyldunám hefst í 1.
bekk.
Í fréttatilkynningu frá ÞSSÍ
segir að efnt hafi verið til
hátíðar í skólanum af því
tilefni að úrbótum er nýlokið.
Við athöfnina þakkaði skólastjóri stofnuninni og borgaryfirvöldum
fyrir stuðninginn og sagði aðstöðu til kennslu mundu gerbreytast.
Styrkir skóla heyrnarlausra
www.ellingsen.is
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Meðal fjölda nýjunga á
sýningunni má nefna hin frábæru
Fleetwood Evolution-fellihýsi.
Þau eru eins og sniðin að
íslenskum fjallvegum, með
flutningspalli fyrir fjórhjól,
torfæruhjól eða önnur
útivistarleikföng.
Opið föstudag 8–18
laugardag 10–16
sunnudag 12–16
Nýjasta nýtt í fellihýsum
Sýning í dag og um helgina
Kreditheimild með 0% vöxtum
og engum kostnaði í DMK!
Stundum geta komið upp þær aðstæður að þörf er á láni
til skamms tíma. Þá kemur sér vel að eiga DMK Debetkort
með kreditheimild* á 0% vöxtum.
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON,
í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is
Nýttu þér þessi einstöku kjör.
Sæktu um DMK á spron.is
Aðrir þættir
DMK þjónustunnar eru:
• DMK Yfirdráttarheimild
• DMK Tiltektarlán
• DMK Léttlán
• DMK 90% íbúðalán
• DMK Ráðgjöf
• DMK Reglulegur sparnaður
• DMK Tilboð
A
R
G
U
S
/
07
-0
02
1
* skv. útlánareglum SPRON
Til 1. mars nk. fá nýir
viðskiptavinir í DMK
gjafabréf fyrir tvo í
Borgarleikhúsinu.